Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1993, Side 14

Skinfaxi - 01.12.1993, Side 14
Sjálfboðaliðamir tóku sér stutta hvíld en síðan var tekist á við þökumar á nýjan leik. Öflug landsmótsnefnd Landsmótsnefnd USAH hefur unnið ötullega að undirbúningi fyrir þátttöku í landsmótinu næstkomandi sumar. Sagði Valdimar að starf hennar hefði fram til þessa verið bundið við ýmis konar fjáröflun, val nýrra búninga á keppendur og fleira tilheyrandi. „Þessi nefnd hefur starfað mjög vel og hefur tekið að sér alls konar vinnu í fjáröflunarskyni. Nefndarntenn hafa bakað, selt kaffi, tekið að sér að hreingera húsnæði hér og fleira. Þetta er alveg meiri háttar nefnd.“ Varðandi þátttöku sagði Valdimar það öruggt að hún yrði mjög góð. „Við fórum með um eða yfir hundrað manns á síðasta landsmót og við förum ekki með færra núna. Ahugi hér fyrir lands- móti er alltaf mikill og fólk fjölmennir örugglega á Laugarvatn í sumar.“ Unglingalandsmót UMFÍ1995: Undirbúningur í fullum gangi Næsta unglingalandsmót UMFI verður haldið á sambandssvæði USAH 1995. Er mikill hugur í USAH-fóIki og undirbúningur í fullum gangi. Að sögn Valdimars Guðmannssonar formanns USAH fer keppni í fótbolta og frjáls- um íþróttum fram á tveim íþróttavöll- um. Stefnir allt í að keppni í frjálsum íþróttum fari fram á íþróttavelli Umf. Vorboðans og keppni í fótbolta verði á Blönduósi. Þá er ágætur íþróttavöllur á Skagaströnd og ekkert sem mælir gegn því að láta keppni í einhverjum grein- um fara fram á honum, gerist þess þörf. Mótshaldarar hafa komið sér saman um keppnisgreinar. Tillaga þeirra er, að keppt verði í knattspyrnu, golfi, frjálsum íþróttum, körfubolta, hesta- íþróttum, skák og sundi. Verði keppt í síðasttöldu greininni þarf annað hvort að koma til ný sundaðstaða á Blöndu- ósi eða þá að halda keppnina í sund- lauginni á Hvammstanga. Hugað að framkvæmdum Að undanförnu hefur verið hugað að framkvæmdum og endurbótum á íþróttamannvirkjum fyrir mótið. Þykir ljóst, að ekki þurfi að koma til um- fangsmiklar framkvæmdir til að hægt verði að halda það með sóma og sann. Mótshaldarar íhuga nú, hvort unnt reynist að leggja gerviefni á 100 metra brautirnar á Vorboðavellinum. Þegar hefur slíkt efni verið lagt á stökkbraut- irnar. I raun er þegar tilbúin ágætis að- staða fyrir keppni í frjálsum íþróttum, fótbolta, golfi, hestaíþróttum og körfu- bolta. Þá eru menn farnir að líta í kringum sig eftir hentugu svæði undir tjald- búðir. Þykir vel koma til greina að setja þær niður utan þéttbýlis, í næsta nágrenni við Vorboðavöllinn. Þar eru slétt og víðáttumikil tún, sem gætu rúmað bæði fjölmennar tjaldbúðir og bílastæði. Allt eru þetta þó hugmyndir einar, þegar þetta er skrifað. Hafa reynsluna Mótshaldarar kveðast alls óbangnir við að taka á móti miklum fjölda fólks, eins og búast má við að sæki unglinga- landsmótið. Þeir hafa reynslu af slíku eftir að hafa staðið að útihátíðum í Körfuboltinn varð ofan á þegar velja skyldi milli hans og handboltans. Húnaveri. Á síðustu útihátíð voru það til dæmis ungmennafélögin á svæðinu, í samvinnu við aðra heimaaðila, seni sáu um allar veitingar á hátíðinni. Þegar kemur að því að manna starfs- lið á vellinum, horfa Austur-Húnvetn- ingar til nágranna sinna í Skagafirði og Vestur-Húnavatnssýslu. 14 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.