Skinfaxi - 01.12.1993, Qupperneq 18
Kveðið á sambandsþingi:
Ólína varð ofan á
Það fór ekki hjá því að kastað væri
fram stökum á nýafstöðnu sambands-
þingi á Laugarvatni. Silla á Blönduósi
hafði orð á því hve skyrtan hans Einars
Sig. UMSK-manns væri mjúk. Ingi-
mundur henti þetta á lofti og sagði:
Stífur er Einar Sig. ekki
um það hún Silla ber.
Ætli hún gæjann glöggt þekki
er greyið fatalaus er?
Pálmi Gíslason bætti um betur:
Brátt þinginu líflega lýkur,
menn láta margt fjúka.
Hér Silla strákana strýkur,
bæði stífa og mjúka.
Allmiklar umræður urðu um hvaða
verkefni UMFÍ gæti unnið að í tilefni
50 ára afmælis lýðveldisins á næsta ári.
Einar Ole Pedersen steig í pontu og
stakk upp á því, að unnið yrði að stofn-
un meðferðarheimilis fyrir spilafíkla
sem svo mikið hefðu verið í fréttum að
undanförnu. Þetta varð Pálma Gísla-
syni að yrkisefni:
Pedersen Oli Einar
ekki reynist neitt flón.
Hann efalaust áfjáður meinar
að afvatna Stranda-Jón.
Nokkuð var deilt um orðalag einnar
tillögunnar, sem ujrp var borin. Fóru
leikar þannig að Ólína Sveinsdóttir,
UMSK, bar nokkra fulltrúa af sterkara
kyninu ofurliði og voru hennar orða-
lagsbreytingar samþykktar. Þá sendi
Sigurjón Bjarnason henni miða:
Kostulegt er karlalán,
komust ekki yfir þá.
Kannski kallast þetta smán,
konan lenti ofan á.
Pálmi Gíslason lét ekki sitt eftir
liggja:
Nefnd á loft sér léttstíg brá,
lengi var í önnum,
hér Ólína varð ofan á
öllum nefndarmönnum.
E R K I N G A R
ÁHRIFA MIKLAR
MERKINGAR !
Merkjum hverskyns sportfatnaði Númeringar
Fyrirtœkja- og félagamerki.
Bola og húfuprentun
m
Jilil
FATAMERKINGAR
SKEIFUNNI 3c - SÍMI: 68 00 20 FAX : 68 00 21
Leitið upplýsinga. Gerum tilboð. Sími 680020- Fax: 680021 11
18
Skinfaxi