Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1993, Page 25

Skinfaxi - 01.12.1993, Page 25
skatti (nú virðisaukaskatti) rynni til umhverfisverndar á vegum Landvernd- ar. Hinn helmingur pokaverðsins renn- ur til verslananna sjálfra. Árvekni almennings En hvemig getur fólk þá verið visst um að rétt sé að málum staðið hjá ein- stökum verslunum og að peningarnir sem það greiðir fyrir burðarpokana skili sér til Pokasjóðsins? Það er einfalt. Ef merki Landverndar er í haldi pokans þá fær Landvernd sinn hlut, ef ekki, þá er fólk að styrkja viðkomandi verslun. í þessi fimm ár sem liðin eru frá stofnun Pokasjóðsins hafa viðskipta- vinir verslana verið ótrúlega vakandi fyrir þessu og látið starfsmenn Land- verndar vita ef eitthvað hefur farið úrskeiðis hjá verslunum í þessu efni. Þetta er ómetanlegur stuðningur og raunar eina leiðin til þess að hafa virkt eftirlit. Það er líka vert að hafa það í huga að þetta eru fjármunir sem lands- menn eiga sameiginlega og að þeim peningum verður ekki úthlutað til um- hverfisverndar sem ekki skila sér í sjóðinn. Sem betur fer hefur samstarfið við verslanir yfirleitt gengið vel og flestar þeirra hafa verið til fyrirmyndar og gert skil fyrir selda poka á tilsettum tíma í hverjum mánuði. Styrkveitingar Allt frá árinu 1989 hafa styrkir úr Pokasjóðnum verið auglýstir til um- sóknar í janúar ár hvert og frestur til að skila umsóknum þá tilgreindur. Til þess að úthlutun styrkja sé markviss og að árangur sé tryggður eins og frekast er unnt, hefur Landvernd fengið til liðs við sig fagfólk og sérfræðinga á ýmsum sviðum til að fjalla um um- sóknir, leggja á þær faglegt mat og gera að því búnu tillögur til stjórnar Landverndar um styrkveitingar. Þeir sérfræðingar sem leitað hefur verið til í þessum tilgangi hafa undantekninga- laust brugðist mjög vel við þessari beiðni samtakanna og lagt á sig mikla vinnu við að fara yfir allar umsóknir sem sjóðnum berast. Síðastliðið ár voru umsóknir á þriðja hundrað talsins, en þá fengu um Úr landgrœðslugirðingwini á Hrunamannaafrétti. 70 verkefni styrki. Alls hefur verið úthlutað úr Pokasjóði Landverndar rúmum 70 milljónum króna til 310 verkefna um allt land. Langstærstur hluti þessa fjármagns hefur farið til gróðurverndar og uppgræðslu eða rúmar 53 milljónir kr., til fræðslu og rannsókna tæpar 12 milljónir kr.og rúmar 5 milljónir kr. til annarra verk- efna. A þessu tímabili hefur UMFl og mörg ungmennafélög víðsvegar um land fengið styrki til fjölbreyttra verkefna. Á hverju ári er prentuð skrá yfir styrkþega og styrkupphæðir og liggur hún frammi á skrifstofu Landverndar. Getur hver sem vill fengið hana afhenta þar eða senda í pósti. Þegar þessar tölur eru hafðar í huga ætti öllum að vera Ijóst hversu mikilvægt það er að landsmenn allir standi vörð um þennan eina sjóð í landinu sem helgaður er verkefnum á sviði umhverfisverndar og þá ekki síst störfum almennings að landgræðslu og gróðurvernd. Árangur þessara starfa má sjá um allt land. Mörg þessara verkefna hefði ekki verið hægt að vinna án tilstuðlan Pokasjóðsins og fyrir önnur hefur styrkveiting úr sjóðn- um verið mikilvægur stuðningur og jafnvel hvatt aðra til að láta eitthvað af hendi rakna. Hugsum um þetta, þegar við borgum innkaupapokana okkar og verum stolt af því að eiga þátt í því að gera þessi verkefni að veruleika. Mikið átak hefur verið gert til að grœða upp örfoka svœði á Hrunamannaafrétti. Hér taka menn sér stundarhlé frá því að klippa stikklinga. Skinfaxi 25

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.