Skinfaxi - 01.12.1993, Side 28
Iþróttamiðstöðin á Laugarvatni:
Nær fullbókað næsta sumar
Mikil aðsókn er að íþróttamiðstöðinni að Laugarvatni.
„Hér var yfirfullt í allt sumar og
urðum við að vísa mörgum hópum frá.
Allar helgar og jafnvel í miðri viku
höfum við nýtt heimavist héraðsskól-
ans sem eru í húsunum Grund og
Mörk,“ sagði Rósa Ólafsdóttir fram-
kvæmdastjóri íþróttamiðstöðvar Is-
lands á Laugarvatni, þegar Skinfaxi
hitti hana að máli fyrir skömmu.
Rósa sagði að í sumar hefðu verið
allt að 150 manns í senn í gistingu. Um
hefði verið að ræða ýmsa íþróttahópa,
knattspyrnufólk sem sundfólk. Iþrótta-
félag aldraðra hefði dvalið í tvær vikur,
svo og Iþróttafélag fatlaðra sem hefði
verið í þrjár vikur. Þá mætti nefna
samnorræna sumardvöl fatlaðra og
þroskaheftra.
„Hér hefur verið minna um frjáls-
íþróttafólk yfir sumarið en við von-
umst til þess að það komi til með að
breytast með tilkomu nýja vallarins og
aðstöðunnar sem honum fylgir,“ sagði
Rósa. „Frjálsíþróttahóparnir hafa kom-
ið hér töluvert að vetrinum og notað
inniaðstöðuna sem er mjög góð. í
framtíðinni verður hægt að nota braut-
irnar yfir vetrarmánuðina líka, þegar
búið verður að leggja hita í þær.
Fylkir með tíu helgar
„Það er mikið búið að panta eftir
áramól. í vetur verður t.d. íþróttafé-
lagið Fylkir með æfingabúðir hér í 10
helgar fyrir hina ýmsu keppnisflokka,
frá 7. flokki og uppúr, bæði stráka og
stelpur.
Fyrir fólk sem áhuga hefur á vetrar-
íþróttum er þessi staður alveg tilvalinn.
Vatnið hér er lagt meira og rninna yfir
vetrarmánuðina og er það tilvalið til
skautaiðkunar. I nágrenninu er einnig
skíðalyfta auk þess sem hér er frábær
aðstaða til að stunda skíðagöngu, - inn
eftir öllum skóginum og jafnvel upp á
heiði. Svæðið hér er líka vel fallið til
langra sem stuttra gönguferða í allar
áttir. Hvað varðar næsta sumar þá má
segja að það sé að mestu fullbókað.
Það eru þó eftir einhverjir dagar í júní
og ágúst.“
- Hvað með ungmennafélögin, not-
fœra þau sér aðstöðuna sem skyldi?
Ég myndi vilja sjá f'leira fólk utan af
landsbyggðinni, bæði íþróttahópa sem
kæmu hingað til æfinga, svo og aðra
hópa sem myndu lialda hér ráðstefnur
og fundi.“
Stefnt að skólabúðum
- Nýjungar á döfinni?
„Við erunt að reyna að koma á
skólabúðunt hérna en samþykkt þar að
lútandi hefur enn ekki fengist frá
menntamálaráðuneyti. Það eru einar
skólabúðir reknar í landinu núna, að
Reykjum í Hrútafirði. Þær anna engan
veginn öllum grunnskólanemendum á
landinu. En ef af þessu yrði gætum við
jafnvel nýtt okkur starfskrafta nema úr
Iþróttakennaraskólanum sem gætu
skipulagt starf fyrir hópa þá sem liing-
að kæmu. Hóparnir kæmu þá á mánu-
degi og héldu heim á föstudag. Tekið
yrði fyrir mismunandi námsefni og
auðvitað yrðu íþróttanámskeið ofarlega
á blaði, svo og kennsla í heilbrigðis-
og líkamsfræði, næringarfræði og svo
framvegis.
Við höfum hugsað okkur að nem-
endur yrðu úr þremur elstu deildum
grunnskólans, 8.,9. og 10. bekk. Þetta
mál er í biðstöðu eins og er en við ætl-
um að fá hópa hér bæði fyrir og eftir
áramót til að fá reynslu á þetta fyrir-
komulag.“
28
Skinfaxi