Skinfaxi - 01.05.1995, Page 6
Fagna því að vinna með
ungmennafélögunum
- segir Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra
„Það er óhætt að segja að þetta hreins-
unarátak ungmennafélaganna og ráðuneyt-
isins hafi farið vel af stað. Ég er að
minnsta kosti ánægður með aðkomu mína
að málinu. Að vísu var byrjað í tíð fyrri
ríkisstjómar og fyrri ráðherra sem var þátt-
takandi í upphafinu,“ segir Guðmundur
Bjarnason umhverfisráðherra um hreins-
unarátak við strendur, haf, ár og vötn
landsins. Hreinsunarátakið fór af stað þann
5. júní sem er alþjóðlegur umhverfisdagur
Sameinuðu þjóðanna.
Guðmundur segist ánægður með sam-
starfið við UMFI og tekur fram að hann
hafi áður átt ánægjulegt samstarf við hreyf-
inguna.
„I minni tíð sem heilbrigðisráðherra
unnum við saman að verkefni sem gekk
undir heitinu „Heilbrigðir lifnaðarhættir
ungs fólks“. Það samstarf var allt með
ágætum og ég fagna því að eiga þess kost
að vinna með ungmennafélögunum á öðr-
um vettvangi. Ég veit það af reynslunni af
þau samtök gera góða hluti og eru áhuga-
söm um að vinna vel að sínum verkefnum.
Ég er því fullviss að það verður ekki
kastað til hendinni,“ segir Guðmundur.
Að skapa landinu ímynd
„Verkefnið er líka mjög mikilvægt og
tvíþætt. Að hreinsa og fegra landið okkar
og einnig að skapa því þá ímynd sem við
erum alltaf að tala um að það hafi en erum
ekki eins sannfærð innst inni að það hafi í
raun. Að minnsta kosti ekki þegar við sjá-
um dæmi eins og ég sá á myndum á mál-
þingi í Keflavík á dögunum. Umhverfis-
fulltrúi Suðurnesja hafði farið um fjörur
Reykjanesskagans og tekið myndir sem
sýndu að það var vissulega þörf að taka til
hendinni.“
Umhverfisráðherra væntir þess að við
úrvinnslu á þessu verkefni muni koma
fram gagnlegar upplýsingar. Ekki til þess
að finna sökudólga heldur til að læra af
reynslunni.
„Það er ekkert fengið með því að þurfa
Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra
að endurtaka þetta tiltekna verkefni að ári
eða eftir fimm ár af því við höfum ekkert
lært.“
Nýta kraftana
Þegar ráðherra er spurður um önnur
hugsanleg samstarfsverkefni ráðuneytis og
ungmennafélaganna segist hann vel sjá að
það megi finna aðra þætti umhverfismála
fyrir þessa aðila að starfa saman að.
„Ég tel mikilvægt að nýta krafta frjálsra
félagasamtaka í svona verkefni. Ég er
sjálfur félagi í Lionshreyfingunni og sá
klúbbur hefur gengið með þjóðvegum að
hreinsa rusl og jafnvel staðið hér útí í
tjörninni í Reykjavík til að hreinsa upp
rusl. Ég vonast til þess að þetta framtak
UMFI verði til þess að aðrir hugsi sig um.
Það er mikil þörf fyrir okkur að vinna ef
við ætlum að standa við þau fyrirheit að ís-
land verði með hreinustu löndum hins
vestræna heims árið 2000. Ef það á að
takast verðum við að taka til í eigin ranni
og breyta hugarfari almennings. Ég vona
að þetta átak verði eitt stórt skref í þá átt,“
segir Guðmundur.
„Einstaklingurinn í sinni daglegu um-
gengni þarf að vera með hugann við málið.
Við horfum á óskaplegt magn umbúða sem
við hendum daglega. I fyrsta lagi verðum
við að draga úr magninu, þá eigum við að
skoða hvað af úrganginum er endumýtan-
legt og að lokum verðum við að koma
sorpinu fyrir á skynsamlegan hátt.“
Ráðuneytið er stjórnvald sem væntan-
lega getur lítið beitt sér í svona málum ef
hinn almenni borgari er ekki með?
„Vilji stjómvalda og opinberra stofnana
verður vanmáttugur ef hugarfar almenn-
ings fylgir ekki með. Ef við horfum til út-
landa hefur neyðin kennt mönnum meira
þar sem þeir hafa þurft að reka sig á í um-
hverfismálum. Við búum í fallegu landi
sem við teljum ómengað en við eigum ekki
að þurfa að reka okkur á til þess að taka til
hendinni. Ef við eigum að viðhalda ímynd
landsins út á við verðum við að bregðast
við strax og áður en allt er komið í óefni.“
Islendingar státa gjaman af fiskafurðum
úr hreinum sjó en er sjórinn við landið eins
hreinn og ómengaður og við viljum halda?
Sagt hefur verið að lengi taki sjórinn við
en á þessi hugsunarháttur við í dag?
„Við eigum að vera allra þjóða fremst í
því að vernda hafið frá mengun því við
eigum alla okkar lífsafkomu þar undir.
Fyrir nokkmm ámm fór ég til Þýskalands í
hópi annara þingmanna og þar var okkur
sýnd skemmd á skógum vegna hins súra
regns. Það er dæmi um umhverfismengun
sem ekki sést fyrr en skaðinn er skeður og
þá getur verið of seint að snúa við.‘
Aldrei virkur
Guðmundur er spurður um tengsl sín
við UMFÍ og segist hann hafa verið mjög
óvirkur þátttakandi í þeim félagsskap.
„A mínum yngri ámm var ég ekki mik-
ill íþróttamaður og í skóla kallaður leiðtogi
6
Skinfaxi