Skinfaxi - 01.05.1995, Side 7
„antisportista". í staðinn við að eltast við
fótboltann eða stökkva yfir snúrur fórum
við í gönguferðir um náttúruna. Ég hef tek-
ið gönguferðirnar upp aftur til að hafa
ánægju af því að ganga um náttúruna og
skoða hana. Ég var að vísu skráður í
íþróttafélag míns heimabæjar, Völsungs á
Húsavík, en aldrei virkur þátttakandi,“
segir Guðmundur.
Frjó samtök
Guðmundur bendir á að ungmennafé-
lögin séu rúmlega aldagömul en í stöðugri
endurnýjun.
„Ég tel nauðsynlegt fyrir félagasamtök
að endurnýja sig og finna sér ný verkefni í
takt við tíðarandann þótt þau fylgi sínum
grundvallarmarkmiðum. Það er svo margt
sem ungmennafélögin hafa verið að gera í
gegnum tíðina. Ekki einungis á sviði
íþrótta, heldur á menningarsviði og félags-
sviði. Mér finnst samtökin hafa verið mjög
frjó í sinni hugsun og tek sem dænii þetta
umhverfisátak sem er mjög í umræðunni.
Sú umræða verður þó að vaxa og við meg-
um ekki missa hana til baka heldur verðum
við að halda áfram að efla umhverfisvit-
undina. Því held ég að ungmennafélögin
séu á réttri braut,“ segir Guðmundur.
„Landsmót samtakanna hafa sannað
gildi sitt í fleiru en keppnisíþróttum því þar
er líka keppt í ýmsum starfsgreinum. Sjálf-
ur hef ég sótt nokkur slík mót og einu sinni
orðið þess heiðurs aðnjótandi ávarpa
landsmót þegar verkefnið um heilbrigða
lifnaðarhætti ungs fólks var í gangi.“
Tveggja ára á landsmót
„Vilji stjórnvalda og opinberra stofnana verður vanmáttugur ef hugarfar almennings
fylgir ekki með, “ segir Guðmundur.
Guðmundur man ekki sitt fyrsta lands-
mót en hefur nokkra hugmynd um það af
frásögn móður sinnar og annara aðstand-
enda.
„Þá var ég tveggja ára og var spurður
hvað ég ætlaði að gera á landsmótinu. Þá
var nýbúið að rýja á bænum og ég svaraði
strax og sagðist ætla að fara að klippa fé,“
segir Guðmundur hlæjandi.
Ertu sjálfur búinn að fara að tína rusl?
Skinfaxi
Ert þú áskrifandi?
Það getur þú gerst með einu símtali.
Sími 568 2929
s
Þjónustumiðstöð UMFI
Fellsmúla 26 Reykjavík
„Þegar ég fer í hina árlegu sumargöngu-
ferð með mínum félögum get ég vafalaust
tekið þátt í þessu átaki með einhverjum
hætti.“
Skinfaxi
7