Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 9
Og veiðifélög, fyrirtæki o.fl. Einnig hefur
komist á samstarf á milli ungmennafélag-
anna og bæjarfélaga um að tengja hreins-
unarátakið við unglingavinnustarf.
Það er alveg Ijóst að um-
hverfið er í okkar höndum
því mengun í náttúrunni er
afmanna völdum
Samhliða hreinsuninni hafa þátttöku-
hópamir skráð niður í sérstaka skráninga-
bók hverskonar rusl hefur safnast. Það
hefur margt athyglisvert safnast saman
þegar hreinsaðar hafa verið strendur lands-
ins, t.d. allskonar plastdrasl, netadræsur,
slitrur af trollum, skósólar, umbúðir af
hreinlætisvömm, dömubindi og ýmiskonar
neytendaumbúðir. Af ár- og vatnsbökkum
hefur safnast töluvert af skotfæmm, veiði-
línum og umbúðum ýmsum neytendavör-
um ásamt plastdrasli. Tilgangurinn með
þessari skráningu er að finna út hverskon-
ar msl þetta er sem finnst á víðavangi. í
haust þegar niðurstöður könnunarinnar
birtast þá verður fróðlegt að sjá hvaða msl
það er sem einna helst hefur verið hreinsað
og hvaða leiðir hafa fundist til að koma í
veg fyrir að þesskonar msl safnist fyrir í
umhverfinu.
Umhverfisverkefnið tengist Náttúru-
vemdarári Evrópu 1995 þar sem um er að
ræða sömu markmið til að efla vitund al-
ntennings til bættrar umgengni við náttúr-
una.
Með þessu átaki sem hér um ræðir höf-
um við stigið nokkur skref í átt að því
markmiði.
Anna Margrét Jóhannesdóttir
verkefnisstjóri umhverfisverkefnis
UMFÍ
Mikið verk hefur þegar verið unnið við hreinsun ífjörum víðs vegar um land. En betur má
efduga skal.
Styrktaraðilar Umhverfisverkefnis UMFÍ1995
O gk% GRÆÐUM mm
Landsvirkjun f LANDIÐ MEÐ QiJB
Skinfaxi
9