Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1995, Síða 19

Skinfaxi - 01.05.1995, Síða 19
Ekki byrja á morgun - byrjaðu í dag Frá Reykjavíkurmaraþoni 1994 Frjálsíþróttasamband Is- lands starfar á mjög víðtæku sviði. Það sinnir málefnum af- reksfólksins þ.m.t. skipulagn- ing vegna keppni erlendis. Ennfremur er mikið lagt upp úr þátttöku almennings t.d. með því að skipuleggja hlaup þar sem markmiðin um fjöldaþátt- töku eru í fullu gildi. Þá þarf að skapa verkefni fyrir þann fjölda sem tilheyrir hvorugum þessum hópi. Keppnisfólk sem ekki hefur náð á toppinn þarf viðfangsefni við hæfi og skapa verður unglingum aðstæður til að leggja stund á íþróttir. Margir aðilar þurfa að koma að málum ef góður árangur á að nást. FRÍ er einungis einn hlekkur í þeirri keðju. Árangur okkar besta frjálsí- þróttafólks hefur verið mjög góður það sem af er sumri. Jafnvel er farið að bera saman árangurinn nú og það tímabil sem nefnt hefur verið „frjálsí- þróttavorið". Hér verður ekki farið út í svoleiðis hugleiðingar en það er að sjálfsögðu gleðilegt að slík uppsveifla eigi sér stað og vonandi að frjálsíþróttir eigi hér eftir vaxandi fylgi að fagna. Fjölmörg verkefni eru skipulögð á veg- um FRI í sumar, og reynt að vinna eitthvað á öllum sviðum. Stór landsliðshópur fór á Smáþjóðaleika sem haldnir voru í Lux- emburg í lok maí. Liðið náði þar mjög góðum árangri. í byrjun júni fór hópur á Evrópubikarkeppni landsliða og náði þar frábærum takti og náði kvennaliðið að vinna sig upp um deild. Evrópubikar- keppni landsliða í fjölþraut (2. deild) fór fram á Laugardalsvelli í byrjun júlí en það var mikið verkefni með þátttöku nokkurra erlendra þjóða. Einnig þar náðist frábær árangur. Stærsti viðburður ársins er Heimsmeistaramótið sem að þessu sinni fer fram í Gautaborg í Sviþjóð. Það verð- ur ekki haldið svo nálægt Islandi í náinni framtíð og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir íslendinga að mæta á Heims- meistaramót og hvetja okkar afreksmenn í keppni. Mikið er að gerast meðal samskipta unglinga við aðrar þjóðir s.s. Ólympíudag- ar æskunnar, Evrópumeistaramót unglinga, Eyrarsundsleikar og Norðurlandamót ung- linga í fjölþraut svo fátt eitt sé nefnt. FRÍ2000 FRÍ hefur í nokkur ár haft ákveðna stefnu sem nefnd hefur verið FRI 2000. Þetta felst í áætlun um æfingar og keppni, ásamt markmiðssetningu um árangur til ársins 2000. Valið er í sérstaka úrvalshópa þar sem einstaklingarnir öðlast t.d. þátt- tökurétt í æfingabúðum og eiga möguleika á að keppa við jafnaldra sína erlendis. Framkvæmd þessarar skipulögðu áætlunar er talin vera stór liður í þeim árangri sem nú er að koma í ljós, ásamt því að félögin stunda mörg hver þrótt- mikið starf og leggja þannig geysilega mikið af mörkum. Síðastliðinn vetur leit- aði UMFÍ eftir samstarfi við Frjálsíþróttasambandið um almenningsverkefni sem síðar hlaut heitið Landshreyfing ‘95. Þetta var að sjálfsögðu auðsótt mál enda fellur slíkt við- fangsefni vel að stefnu FRI, sem leggur þannig sitt af mörkum til að stuðla að hollri hreyfingu almenn- ings. Sérstök almennings- hlaupanefnd er starfandi hjá FRÍ. Hennar hlutverk er að vinna að almennings- verkefnum m.a. með því að skipuleggja hlaup fyrir almenning. Viðamesta verkefnið árlega er Reykjavíkurmaraþon sem að þessu sinni er haldið 20. ágúst. Þetta er í 11. skipti sem Reykjavíkurmaraþon fer fram og hefur þátttaka aukist ár frá ári. Gífurleg aukning hefur orðið í fjölda al- menningshlaupa en í sérstakri skrá yfir slík verkefni kemur fram að 65 skipulögð hlaup fara fram á árinu 1995, þar af 28 yfir sumarmánuðina. Fjölgun verkefna er í samræmi við fjölgun þátttakenda en áhugi virðist sífellt aukast. Allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, bæði þeir sem keppa við tímann og aðrir sem skokka eða ganga í góðum félagsskap. En aðalatriðið er að allir hreyfi sig eitthvað og það er engin nauðsyn að taka þátt í skipulögðum verkefnum. Hver og einn verður að gera upp við sig hvaða aðstæður henta. Landshreyfing ‘95 er áskorun til allra landsmanna að rækta líkamann og byggja sig upp fyrir framtíðina. Ekki byrja á morgun - settu þér markmið og byrjaðu strax í dag. Vertu með - fyrir þig. F.h. FRÍ Gunnar Jóhannesson. Skinfaxi 19

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.