Skinfaxi - 01.05.1995, Síða 23
skrifað, en ýmsar hugmyndir
voru í gangi.
Stúlkan kom 1. júlí og fór þá
norður á Grenivík. Hún er frá
þorpi, sem er vinabær Greni-
víkur. Fyrir nokkrum árum
kom hún, ásamt fleiri ungling-
um úr sínu byggðalagi, til
Grenivíkur, þar sem hún dvaldi
í nokkra daga. Henni líkaði
dvölin mjög vel og bað því um
að fá að fara þangað aftur. Það
reyndist auðsótt mál og hún
.,hoppaði hæð sína“ þegar hún
fékk að vita það. Frá Grenivík
liggur leiðin austur á Jökuldal
og einhverja fleiri staði heim-
sækir hún.
Dvelja hér í þrjá
mánuði
Útivistarhópurinn að snœðingi úti í guðsgrœnni, danskri náttúrunni.
Ungmennin dvelja hér á
landi í þrjá mánuði. Þeim er
komið fyrir á heimilum, þar
sem þau taka þátt í starfi og
leik. „íslensk ungmenni virðast ekki mjög áhugasöm um ung-
mennaskiptin,“ sagði Halldóra. „Við auglýstum á allan mögulegan
hátt hér heima og fengum eina umsókn til Noregs, en enga til Sví-
þjóðar. Ef til vill þurftum við að kynna þetta öðruvísi og enn bet-
ur, en mér finnst stundum að í erlendum samskipt-
um þurfi mikið til að krakkar hringi og segist vilja
taka þátt. Þeim finnst þetta framandi og langt í burtu
og eru smeyk við að takast á við þetta viðfangsefni.
Hins vegar er fólk hér heima tilbúið til að taka við
erlendum ungmennum og ég hef fengið upphring-
ingar þar sem það býðst til að taka ungling."
Auk þess sem að ofan greinir var ungbændaráð-
stefna á vegum NSU í Svíþjóð í lok mars. Þangað
fóru tveir félagar á vegum UMFI og voru nijög
ánægðir. Ungbændaráðstefnan verður haldin hér á
landi á næsta ári og þar verður fjallað um landbúnað
og ferðamennsku.
Þátttakendur gefa hugmyndafluginu gjarnan lausan tauminn. Þessi mynd er
einnigfrá ungmennavikunni i Danmörku.
Skinfaxi
23