Skinfaxi - 01.05.1995, Síða 30
Vísnaþáttur
Ungmennafélagið Vesturhlíð hefur nú
starfað í Reykjavík um nokkurra ára skeið.
Félagar eru flestir ungmennafélagar af
landsbyggðinni, sem flust hafa til höfuð-
borgarinnar. A fundum félagsins hefur
haldist sá siður að í fundarboði eru settir
fram fyrripartar, sem síðan eru botnaðir á
fundinum. Misdýrt er kveðið, eins og
gengur, en innan um leynast ágætar vísur.
Umsjónarmaður vísnaþáttarins gægðist í
fundagerðarbók Vesturhlíðar og hér koma
sýnishom af því sem þar er að finna. Gríp-
um fyrst niður, þar sem undirbúningur fyr-
ir landsmót UMFÍ á Laugarvatni stóð sem
hæst.
Fyrripartur:
Senn hvað líður sjáum við
sól á landsmót skína
HÓ botnar:
Spáin bíður, spyrjið þið.
Spennan má ei dvína
SI botnar:
Þá fullhugamir fylla svið,
til framtíðar þeir brýna.
FÞ botnar:
Laugarvatn um landsmótið
leikmynd skapar fína.
Að vetrarlagi er ort:
Válynd byrgja veður sýn,
vetur steytir hnefa.
JG botnar:
Komdu hingað kæra mín,
koss ég skal þér gefa.
HÓ botnar:
Uti haglið á oss hrín,
ei mun hugann sefa.
JÍ botnar:
Ekki gráta elskan mín,
aftur vor mun gefa.
Að lokum skulum við sjá hvaða metnað
félagar hafa fyrir hönd Vesturhlíðar:
Stefnir áfram upp á við,
okkar félag góða.
SS botnar:
Ungu fólki leggjum lið
landinu til góða.
PG botnar:
Ymsum málum leggjum lið
í landsmót skulum bjóða.
FÞ botnar:
Ef við höldum æ þeim sið
aðeins gott að bjóða.
Eins og sjá má af þessu er fjallað um
ýmislegt í vísum Vesturhlíðarmanna.
í lokin koma tveir fyrripartar, sem les-
endur geta spreytt sig á:
Upp til fjalla, út við sjó
allt í blóma sýnist.
Víst má núna víða sjá
veiðimenn í ánum.
Sendið botna til Skinfaxa, utanáskriftin
er:
Skinfaxi-vísnaþáttur
Þjónustumiðstöð UMFI
Fellsmúla 26
108 Reykjavík.
Snjallar vísur eru einnig vel þegnar og
góð saga um tilurð vísnanna má gjarnan
fylgja.
Með kveðju,
Freygarður
Pennavinir
Skinfaxa hafa borist allmörg
bréf frá Finnlandi þar sem ósk-
að er eftir pennavinum. Von-
andi hafa sem flestir íslenskir
unglingar áhuga á að skrifast á
við jafnaldra sína í öðrum lönd-
um. Slík bréfaskipti eru bæði
skemmtileg og lærdómsrík, auk
þess sem þau leiða oft til heim-
sókna síðar meir. Hér á eftir
fara nöfn nokkurra unglinga
sem vilja skrifast á við íslenska
jafnaldra sína.
14 ára finnsk stúlka, sem er
meðlimur í 4H-samtökunum
óskar eftir íslenskum pennavini.
Áhugamál hennar eru að leika á
klarinet, skrifa bréf, sigla, fara í
bíó, (uppáhaldsleikarar: Brad
Pitt, Jim Carrey, Tom Cruise,
Tom Hanks) og hlusta á tónlist
(Bon Jovi!) Hana langar til að
skrifast á við pilt eða stúlku á
aldrinum 13-16 ára og hún lofar
að svara öllum bréfum.
Nafn og heimilisfang er:
Minna Torvinen
Virkkalantie 34b,
08100 Lohja - Finland.
15 ára stúlka óskar eftir ís-
lenskum pennavini. Hún vill
gjaman skrifa á ensku.
Nafn og heimilisfang er:
Marja Mákinen
Valkamanpolku 2 v 13
SF-05840 Hyvinkaa
Finland
15 ára stúlka sem er í 4H-
samtökunum vill skrifast á við
13-16 ára pilt eða stúlku.
Áhugamál eru íþróttir og lestur.
Hún vill gjarnan skrifa á
sænsku eða ensku. Nafnið er:
Sanna Huhtala
Huhtalantie 16
69150 Eskola - Finland
Irina frá Finnlandi óskar eft-
ir að eignast íslenskan pennavin
á aldrinum 18-30 ára. Skrifið
til:
Irina Kuosmanen
Hihnamiehentie 2 as. 4
88200 Otanmaki
Suomi - Finland.
17 ára stúlka óskar eftir
pennavinum. Áhugamál: tón-
list, lestur, dans, fólk og sauma-
skapur. Nafn og heimilisfang
er:
Paula Laine
Paimoiontie 221,
25260 Vaskio - Finland
14 ára finnsk stúlka óskar
eftir að skrifast á við íslenskan
ungling. Áhugamál: tónlist,
söngur, þjóðdansar og 4H.
Skrifið til:
Riikka Laine,
Paimiontie 221,
25260 Vaskio - Finland.
Tvær síðastgreindu stúlkum-
ar vilja báðar skrifa á ensku.
19 ára stúlka óskar eftir ís-
lenskum pennavini. Áhugamál:
íþróttir, tónlist, lestur og frí-
merkjasöfnun. Nafn og heimil-
isfang:
Kirsi Koro
FIN-34740 Koro - Finland
Stúlka, 16 ára óskar eftir
pennavini. Hún er dýravinur og
á hund og þrjá ketti. Hún vill
skrifa á ensku. Nafn og heimil-
isfang:
Elina Kovanen
Kotilahdentie 29
87100 Kajaani - Finland
30
Skinfaxi