Skinfaxi - 01.05.1995, Side 32
Glímuveisla að
Laugum
Allir sigurvegarar á Grunnskólamótinu. Fremri röð frá vinstri: Þórólfur Valsson, Kristján >
Omar Másson, Júlíus Jakobsson, Bjarni Bjarnason, Magnea Svavarsdóttir, Andrea Páls-
dóttir, Hugrún Geirsdóttir og Berglind Kristinsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Jóhannes
Héðinsson, Olafur Kristjánsson, Stefán Geirsson, Margrét Ingjaldsdóttir, Dröfn Birgis-
dóttir, Rakel Theódórsdóttir, Sjöfn Gunnarsdóttir, Inga Gerða Pétursdóttir og Sigrún Jó-
hannsdóttir.
Það var sannkölluð glímuveisla einkum
fyrir yngri kynslóðina að Laugum í Þing-
eyjarsýslu helgina 22. - 23. apríl síðastlið-
inn. Þá fóru fram hvorki fleiri né færri en
fjögur glímumót af ýmsu tagi á vegum
Glímusambands Islands. Það voru Grunn-
skólamót; hluti Sveitaglímu; Meistaramót
og helginni lauk með stóreflis bænda-
glímu. Þeir röskustu kepptu í öllum þess-
um mótum og fengu aldeilis að spreyta sig
á glímuvellinum.
Grunnskólamótið í glímu
Það var líf í tuskunum á 9. Grunnskóla-
móti Glímusambandsins sem hófst kl. 3 á
laugardeginum. Þama vom mættir 57 nem-
endur úr 14 skólum víðs vegar að af land-
inu þeirra erinda að takast á í þjóðaríþrótt-
inni.
Þarna voru bæði ungir byrjendur sem
kunnu eitt bragð aðeins, og þaulvanir eldri
keppendur sem beittu öllum brögðum.
Þarna var keppt í 4. - 10. bekk bæði hjá
stúlkum og drengjum og sigurvegari hvers
bekkjar hlaut titilinn „Grunnskólameist-
ari.“ Engin smáræðis nafnbót og svo fylgdi
lítill bikar í kaupbæti en farandbikar verður
geymdur í skóla sigurvegarans árlangt.
Keppt var á tveim völlum samtímis og
mikið um að vera, flautur glumdu og
glímubúnir garpar ýmist tókust glímutök-
um eða hvöttu samherjana.
Það voru stelpurnar að sunnan, - úr
Rangárþingi, af Laugarvatni og úr Flóan-
um sem röðuðu sér í efstu sætin í keppni
stúlknanna. Norðlensku stúlkurnar úr
Grunnskóla Skútustaðahrepps sigruðu þó
þrefalt í 6. bekk og áttu menn á verðlauna-
palli í 5. og 7. bekk. Rangæingar eignuðust
þrjá meistara, Laugvetningar einn og Flóa-
menn fjóra. Að vísu voru aðeins tveir
keppendur í fjórum flokkum en það stafaði
af því hve áliðið var orðið vetrar því tví-
vegis varð að fresta mótinu vegna ófærðar.
Stúlkurnar afsönnuðu rækilega þá kenn-
ingu að þær ráði ekki við hábrögðin til
jafns við strákana og margar lögðu and-
stæðingana glæsilega á klofbragði.
Nú voru mættir til leiks glímuhópar frá
Sauðárkróki og Reyðarfirði sem nýlega
hófu að iðka þjóðaríþróttina. Þetta voru
aðallega drengir. Þeir settu svip sinn á mót-
ið og eignuðust hvor um sig sinn fyrsta
Grunnskólameistara. Kristján Ómar Más-
son frá Sauðárkróki sigraði í 6. bekk og
Þórólfur Valsson Reyðarfirði sigraði í 7.
bekk drengja.
Þeir eiga margt ólært í glímutækni en
eru ungir og kappsfullir og það fleytti þeim
langt í keppninni sem var mjög spennandi
og fjölmenn og svo jöfn að báðir þurftu að
keppa aukalega til úrslita og urðu þá hlut-
skarpastir. I eldri bekkjunum voru Stefán
Geirsson, Ólafur Kristjánsson og Jóhannes
Héðinsson hinir öruggu sigurvegarar enda
þrautreyndir keppnismenn.
Sveitaglíma yngri fiokka
Strax þegar Grunnskólamótinu lauk var
tekin fyrir keppni yngri flokka í
sveitaglímu sem hafði orðið að fresta
vegna ófærðar um veturinn. Þetta voru
flokkar telpna 10 - 12 ára og sveina 13-15
ára. Þama voru Þingeyingar sigursælir og
er skemmst frá því að segja að þeir sigruðu
með yfirburðum í báðum flokkum. í
telpnaflokknum kepptu sveitir HSÞ og
HSK. Þar hlutu þingeysku valkyrjurnar 14,
5 vinninga en sunnlensku telpurnar 1,5
vinning. I sveinaflokki kepptu sveitir HSÞ,
HSK og Þryms frá Sauðárkróki. Þingey-
ingar voru elstir og öflugastir og sigruðu
léttilega. Skarphéðinsmenn komu næstir en
Þrymsmenn ráku lestina en þetta er í fyrsta
sinn sem þeir spreyta sig í sveitaglímu.
Meistaramótið hófst klukkan 10 að
morgni sunnudags eftir að allir höfðu
skriðið fram úr svefnpokunum og snætt
morgunverð. Keppendur voru 67 og
kepptu í 11 flokkum karla og kvenna.
Heimamenn Þingeyinga hlutu mest af góð-
Meistaramót íslands /
Landsflokkaglíman
32
Skinfaxi