Skinfaxi - 01.10.1995, Qupperneq 5
Það er tekið að halla á árið 1995 og jólin nálgast, en þegar
þessar línur eru settar á blað er þó fátt sem minnir á
jólahátíðina hér í sveitinni enn sem komið er, þessa mestu
hátíð ársins sem veitir okkur birtu og yl í svartasta
skammdeginu.
En það sem fer gegnum huga minn á þessari stundu er 39.
þing Ungmennafélags íslands sem haldið var að Laugum í
Þingeyjarsýslu 18. og 19. nóvember síðastliðinn. Þess verður
trúlega minnst fyrir margra hluta sakir. Þing líkjast að
mörgu leyti íþróttakeppni, við vitum aldrei fyrirfram hver
niðurstaðan verður, sumir sigra en aðrir verða undir En
svona er víst lífið og víst er að við sem vorum þarna lærðum
margt og við skulum nýta okkur þann lærdóm í framtíðinni.
Þingið var starfssamt og um margt ánægjulegt eins og
venja er á þingum UMFI. Við nutum gestrisni Þingeyinga og
fengum að njóta menningarinnar í Reykjadalnum, þar sem
þingfulltrúar fóru í leikhús að Breiðumýri og skemmtu sér
frábærlega vel. Færi ég leikhópnum og öðrum aðstand-
endum leiksýningarinnar bestu þakkir fyrir frábæra
skemmtun.
Ég þarf ekki að rekja gang þingsins fyrir þeim sem þar
voru, en ég ætla að leggja mitt mat á þingið á þessari stundu.
Fyrir þinginu lágu margar tillögur, margar hefðbundnar,
aðrar um breyttar áherslur svo og framtíðarskipulag
Ungmennafélagshreyfingarinnar og síðast en ekki síst tillaga
að reglugerð fyrir landsmót UMFÍ.
Búið var að leggja mikla undirbúningsvinnu í tillögu að
reglugerð fyrir landsmót UMFÍ, bæði fyrir þingið og einnig í
starfsnefndinni á þinginu og færi ég nefndarmönnum bestu
þakkir fyrir gott starf.
Á þinginu kom hins vegar í Ijós að verulegt fylgi var við
að gera róttækari breytingar en tillögur nefndarinnar gerðu
ráð fyrir og ljóst má vera að reglugerðin þarf að vera í
sífelldri endurskoðun.
Stjórn lagði margar tillögur fyrir þingið sem flestar hverjar
hlutu samþykki, öðrum var vísað til stjórnar eða nefnda á
vegum UMFÍ og fáeinar voru ekki samþykktar eins og
gengur. Vissulega hefði ég sem formaður viljað koma öllum
tillögum stjórnar sem minnst breyttum í gegnurn þingið, því
ég er þeirrar skoðunar að þær hafi verið góðar. Við smíð
þessara tillagna og undirbúning að þeim höfðum við
framtíðarhagsmuni UMFÍ að leiðarljósi.
Ég vil framgang ungmennafélagshreyfingarinnar sem
mestan, og hún á að vera gildandi í íslensku þjóðlífi hér eftir
sem hingað til.
Eins og ég sagði áðan voru flestar tillögur stjórnar
samþykktar lítt breyttar, og í stað þeirra sem ekki voru
samþykktar, voru samþykktar aðrar tillögur um sama
málefni. Hvar sem ég starfa vil ég að hlutirnir gangi hratt
fyrir sig og þannig vinn ég einnig á vettvangi UMFI. I
nútímaþjóðfélagi ganga hlutirnir hratt fyrir sig og við erum
fljót að missa af lestinni ef við vinnum ekki hratt og
örugglega og einnig er nauðsynlegt að horfa til framtíðar.
Niðurstaða mín er sú að ég er í meginatriðum ánægður
með þingið, en við þurfum öll að temja okkur vandaðri
vinnubrögð. Ég mun beita mér fyrir því fyrir næsta þing að
stjórnarmenn hver á sínu svæði kynni og fari yfir tillögur
stjórnar með forystumönnum sambandsaðila tveimur til
þremur vikum fyrir þing. Það er mikilvægt að þingfulltrúar
komi vel undirbúnir til þings.
Góðir félagar, að lokum óska ég ykkur öllum, svo og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla, árs og friðar. Hittumst
kát og hress á nýju ári.
Þórir Jónsson
formaður UMFÍ
SKINFAXI 5