Skinfaxi - 01.10.1995, Síða 6
UMFÍ
- FRÉTTIR
• Knattspyrnulið
Stjörnunnar í Garðabæ
er nú að styrkja lið sitt
fyrir komandi tímabil í
Sjóvá-Almennra deild-
inni. Nú nýlega gekk
Helgi Björgvinsson til
liðs við félagið og mun
hann koma til með að
styrkja liðið mikið á
miðjunni.
• Ungmennafélögin
skipta með sér efstu
sætunum í DHL-
deildinni. Njarðvík,
Keflavík og Grindavík
eru öll í toppbarátt-
unni en að margra
mati verður það helst
lið Hauka sem kemur
til með að ógna þeim í
vetur.
• Knattspyrnulið
Leifturs Olafsfirði
ætlar sér greinilega
stóra hluti í 1. deild-
inni næsta sumar. Nú
nýlega gekk lands-
liðsmaðurinn Daði
Dervic til liðs við
Leiftursliðið og má
með sanni segja að þá
hafi vantað góðan
varnarmann þar sem
þeim gekk mjög illa
að halda markinu
hreinu á síðustu
leiktíð.
• Kvennalið Stjörn-
unnar í handbolta er
hreint óstöðvandi
þessa dagana og fátt
virðist geta komið í
veg fyrir að liðið tryggi
sér íslandsmeistara-
titilinn í vetur.
•Rastislav Lazorik,
sem leikið hefur með
1. deildarliði UBK,
hefur nú skrifað undir
samning við annað
ungmennafélag.
Lazorik mun næsta
tímabil klæðast búning
Leifturs frá Ólafsfirði.
Bókaútgáfa
Afram Latibœr
eftir Magnús Scheving
Það er greinilegt að Magnúsi Scheving líkar það vel að
takast á við ný og krefjandi verkefni en það nýjasta hjá
honum er bókaútgáfa. Magnús gefur meðal annars út
barnabók fyrir jólin sem hlotið hefur nafnið „Afram
Latibær". Að sögn Magnúsar fjallar bókin um bæ sem
er venjulegur nema að því leyti að allir íbúarnir eru
mjög latir. Þar stundar enginn íþróttir, krakkar kunna
ekki að hjóla og hanga heima allan daginn og spila
tölvuleiki. Þeir borða mikið af sælgæti og óhollum
mat og eru nánast búnir að gleyma því hvernig á að
hreyfa sig. Einn góðan veðurdag fær bæjarstjórinn svo
bréf þar sem honum er tilkynnt að bærinn verði að
taka þátt í íþróttamóti sem halda á og með hjálp frá
íþróttaálfinum fara bæjarbúar að undirbúa sig á fullu.
Af bókinni má meðal annars læra skemmtilega leiki og
hvaða mat er hollt að borða.
Semsagt spennandi verkefni framundan hjá Magnúsi
og það verður gaman að sjá hvernig almenningur
tekur á móti Magnúsi Scheving, rithöfundi.
Afmæli
Framkvœmdarstjóri og
frú samtals 80 ára
Ekki alls fyrir löngu héldu
Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFI, og eiginkona
hans upp á fertugsafmæli sín. Mikið
var um góða gesti og voru hátt á
hundrað manns saman komnir þegar
mest var. Sæmundur fékk á sig
nokkur skot í ræðum félaga sinna en
einkum fékk ráðherrann Finnur 1
Ingólfsson fólk til að hlæja þegar
hann fór yfir það helsta í samskiptum
þeirra frænda í gegnum tíðina. I
einni sögunni rifjaði Finnur upp
ferðalag til Spánar þar sem hann
tapaði vegabréfinu sínu og
Sæmundur sagði að það væri nú ekki
mikið mál, hann myndi bara smygla
honum yfir landamærin í skottinu á
bílnum. Það hefði nú verið saga til
næsta bæjar ef að framtíðar-
ráðherraefni á Islandi hefði verið
handtekinn í skottinu hjá Sæmundi.
Pennavinir
Anna Ala-Orvola, 18 ára
38220 Storme
Finland
vill skrifast á við stráka eða stelpur á
aldrinum 18-20 ára.
Áhugamál: íþróttir og hestar
Marja Matikainen, 15 ára
Monolantie 103
54330 SIMOLA
Finland
Áhugamál: Sund og hundar
Outi Valkama, 17 ára
38140 Karpplala
Finland
Rhachlioune Abdallah, 29 ára
12 Impasse my Abdalafid
Maison (1) Ratat 10000
Morocco
vill skrifast á við fólk á svipuðum aldri.
Þið getið sent nafn ykkar á ritstjórn
Skinfaxa ef þið óskið eftir að eignast
pennavin á Islandi.
6 SKINFAXI