Skinfaxi - 01.10.1995, Blaðsíða 33
Slaufur verða að jakkafötum
- sagbi Þorsteinn Gubjónsson um félaga sinn Tómas Inga
Þorsteinn Guðjónsson lék mjög vel með liði
meistaraflokks Grindavíkur síðastliðið sumar. Doddi er
þekktur fyrir það að
slá á létta strengi og í
eftirfarandi viðtali
segir hann okkur
hverjum úr Grinda-
víkurliðinu hann
myndi aldrei...
...fara með út að
borða?
Ola Ingólfs, því
maður yrði að fara
með honum í
hádeginu svo hann
ætti möguleika á að
verða saddur fyrir
lokun!
...leyfa að velja á sig
föt?
Tomma, í fyrsta lagi af því þeir segja að hann sé litblindur
(þess vegna spilaði hann með ÍBV og KR) en það hafi nú
batnað mikið eftir að hann komst í lit. í öðru lagi er
honum varla treystandi að velja á sig föt því annar eins
sölumaður er ekki til. Hann lítur á allt sem stórsölu,
slaufur verða að jakkafötum, skóm, skyrtum og ekki má
svo gleyma beltinu!
...fara í útilegu með?
Það er ómögulegt að fara með Steina Jóns í útilegu.
Fjallgöngur, vettvangs- og náttúruskoðunarferðir yrðu að
víkja fyrir hárgreiðslu, því hann yrði langt fram á dag að
greiða flókann úr hárinu sem myndast við að sofa í
svefnpoka.
...sofa með í herbergi?
Eg held að ég myndi ekki leggja í að sofa með Gutta í
herbergi á keppnisferðum. Það er bara tímaspursmál
hvenær hann kemur úr skápnum, hann væri vís til að
„rústa" manni („local" tungumál). Maður myndi ekki
sofa dúr.
...láta elda mat fyrir sig?
Jankó eldar aldrei ofan í mig, það eitt er víst. Hann er
prakkarinn í liðinu og vís til alls. Hann treystir ekki einu
sinni sjálfum sér að elda ofan í sig, það er augljóst á
vaxtarlaginu.
...treysta til að taka úrslitavítið í mikilvægum leik?
Síðasti maðurinn á punktinn yrði Vignir „slátrari", hann
hefur ekki skorað úr víti á æfingu í allt sumar.
Náttúruverndarsinnar hafa meira að segja hringt í Luka
og kvartað yfir því að þegar Vignir tekur víti stofnar hann
fuglalífi í Grindavík í stórhættu.
r __
^/þróttamiðstöðin Jgorgnrnesi
Sundlaugin er opin sem hér segir
veturinn 1995 - 1996.
Mán: 7.00 - 9.00, 12.00 - 13.00, 18.30 - 20.30
Þri: 7.00 - 9.00, 12.00 - 13.00, 18.30 - 22.00
Mið: 7.00 - 9.00, 12.00 - 13.00, 18.30 - 20.30
Fim: 7.00 - 9.00, 12.00 - 13.00, 18.30 - 22.00
Fös: 7.00 - 9.00, 12.00 - 13.00, 16.00 - 22.00
Lau: 9.00 - 16.00
Sun: 9.00-16.00
ÍPRÖTTAMIÐSTÖÐ
SUNDLRUC
Jpundlftug - 'Vntnsleikfimi - poIfimi - ^/jósnbekkur - j$eitir föstudagar
Jrónabað - ^eilsukort - - ^fngbnrnasund - ^eitur pottur
*Ventb veláótHM f
33 SKINFAXI