Skinfaxi - 01.10.1995, Qupperneq 37
Verður Valur aftur meistari eða fara
KA-menn alla leið í vetur? Hvernig
tekst Þorbergi til með Eyjamenn?
Er Bjarki það sem Aftureldingu
vantaði? Falla Reykjavíkurrisarnir
Víkingur og KR í 2. deild?
Nissan-deildin er nú á fullu og með
hverri vikunni eykst spennan á
toppnum og á botninum. Hér á
eftir spáum við aðeins í spilin um
framhaldið hjá liðum deildarinnar.
Spáðí
handbol
Valur
Það hafa orðið nokkrar breytingar á
Valsliðinu en samt sem áður verða þeir
sterkir í vetur. Þeir eru nú í topp-
baráttunni en þeir sakna mikið fyrrum
fyrirliði síns, Geirs Sveinssonar, sem nú
leikur í Frakklandi. Jón Kristjánsson, Oli
Stefáns, Gummi Hrafnkels og Dagur
hafa farið alla leið áður og leikreynsla
þeirra mun koma þeim langt.
Spá: Undanúrslit í deild úrslit í bikar.
KA
Kúbumaðurinn Duranona er þessa
stundina markahæsti leikmaður Nissan-
deildarinnar og það var mikill fengur
fyrir KA-liðið að fá hann í sínar raðir.
Liðið vantar góðan varamannabekk og
Alfreð Gíslason hefur ennþá og aftur
þurft að taka fram skóna. Varnarleikur
liðsins með Alfreð, Erling, Patrek og
Duranona fyrir miðju skelfir flesta
andstæðinga og á eftir að koma liðinu
langt.
Spá: Urslit í deild.
FH
Þeir hafa komið mjög sterkir til leiks og
Sigurjón Sigurðsson, fyrrum leikmaður
Hauka, hefur blómstrað hjá þeim. Þeir
bíða spenntir eftir því að Héðinn Gilsson
nái sér af meiðslunum og ef leikur liðsins
smellur saman verða þeir
illviðráðanlegir.
Spá: Urslit í deild.
Stjarnan
Þeir líta alltaf vel út á pappírunum en
virðast ekki ná að smella saman. Skúli
Gunnsteinsson yfirgaf þá og liðið virðist
sakna hans. Fillipov verður að sýna
forystuhæfileika ef liðið á að veita Val og
KA samkeppni.
Spá: Undanúrslit í bikar.
Afturelding
Einar Þorvarðarson tók við liðinu af
Guðmundi Guðmundssyni. Liðið er lítið
breytt frá í fyrra en Jason Ólafsson fór til
Italíu en í staðinn fengu þeir Bjarka
Sigurðsson frá Víkingum. Liðið fór illa
af stað en hefur sýnt betri leiki að
undanförnu.
Spá: Undanúrslit í deild.
Selfoss
Valdimar Grímsson tók við Selfossliðinu
eftir slakt gengi þeirra í fyrra. Valdimar
er spilandi þjálfari og gerir það honum
erfiðara fyrir að stjórna liðinu. Einar
Gunnar er enn bara efnilegur og liðið
virðist vanta neistann.
Spá: 8. liða úrslit í deild.
Haukar
Bamruk og félagar fóru vel af stað og
náðu til dæmis jafntefli við Valsmenn að
Hlíðarenda. Það er aldrei að vita hvað
Haukarnir gera þegar þeirra sterkasti
maður, Gústaf Bjarnason, fer að leika að
nýju eftir meiðslin. Haukarnir hafa góða
einstaklinga en það er sama með þá og
mörg önnur lið að breiddin er engin.
Spá: 8 liða úrslit í deild.
ÍR
Hver man ekki eftir því þegar ÍR-ingar
slógu Stjörnumenn út úr 8 liða
úrslitunum í deildinni í fyrra? Liðið er
ungt og mjög misjafnt en hefur sýnt það
að þeir geta sigrað hvaða lið sem er á
góðum degi. Eyjólfur Bragason er að
gera góða hluti.
Spá: 8 liða úrslit í deild.
ÍBV
Þorbergur Aðalsteinsson, fyrrum
landsliðsþjálfari, hefur úr litlu að moða í
Eyjum. Uppbygging er líklega eina
markmið Eyjamanna í vetur og þrátt
fyrir að hafa fengið Sigmar Þröst heim á
liðið enga möguleika á titli.
Spá: A lygnum sjó.
Víkingur
Það er skrýtið að sjá þetta fyrrum
stórveldi í handboltanum berjast fyrir lífi
sínu í Nissan-deildinni. Þrátt fyrir að
hafa einn öflugasta þjálfara deildarinnar
eiga sigrarnir eftir að vera fáir í vetur.
Spá: Fall í 2. deild.
Grótta
Seltjarnarnesliðið er komið með mjög
sterka liðsheild en það er kannski einna
helst að samæfinguna vanti. Grótta
hefur sýnt góða spretti en svo tapað illa,
til dæmis á móti KA í bikarnum.
Spá: A lygnum sjó.
KR
Lang lélegasta liðið í deildinni og ekkert
annað en fall blasir við þeim. KR-ingar
fengu skell í bikarnum á móti ÍH og
sýnir það kannski einna best styrkleika
þeirra.
Spá: Fall í 2. deild.
SKINFAXI37