Skinfaxi - 01.04.1997, Side 12
Umhverfismál hafa á undanförnum árum skipað æ stærri sess í
afpjóðfegum samskiptum landa á milli. Stjórnvöld hafa þó víðast
hvar snfið á verðinum ug í mörgum tilfellum hafa þau ekki tekið
við sór fyrr en skaðinn er skeður. Dæmi um þetta er eyðing
regnskógana, Tjernodyl-kjarnorkuslysið í Rússlandi,
skógardauði í Mið- og Austur-Evrópu sökum súrs regns, dauð
vötn og ár vegna mengaðs úrgangs er í þau streymir frá
verksmiðjum. Loftmengun vegna C02 hefur aukist gífurlega
undanfarin ár og er svo komið að í mörgum borgum erlendis
þurfa umferðarlögreglumenn að bera grímu.
Texti: Ómar Banine
Myndir: Sigurjón Ragnar
Flestir vita að gróðurhúsaáhrif og þynning ósonlagsins geta í
framtíðinni leitt til mikilla hörmunga. Hlýnandi loftslag á jörðinni
eykur hættu á að jöklar bráðni en afleiðing þess er að yfirborð
sjávar getur hækkað töluvert. Þessi breyting getur reynst afar
hættuleg fyrir
lönd eins og
Bangladesh þar
sem þau eru
láglend.
Ósonlagið ver
jörðina fyrir
útfjólubláum geislum sólar og eyðing þess sökum mengunar
getur haft mikil áhrif á lífið á jörðinni. Nærtækasta dæmið er
aukin tíðni húðkrabbameins.
Umhverfismál er því eitthvað er varðar öll ríki heims hvar sem
þau eru staðsett á jarðarkringlunni. Á íslandi eru engin stóriðja
samanborið við flest önnur lönd í hinum vestræna heimi. Hér er
einungis eitt álver sem ekki hefur haft nein stórvægileg áhrif á
umhverfið. Mengun hefur því verið talin vandamál er
snertir útlönd en ekki ísland. Umræðan um fyrirhugað
álver á Grundartanga hefur þó sýnt að þetta er smám
saman að breytast. Flestar greinar iðnaðar snerta
umhverfið á einn eða annan hátt. Sú atvinnugrein
sem einna líklegust er til að skaða náttúru íslands
hvað mest í framtíðinni, ef ekki er höfð aðgát, er
ferðaþjónusta.
A Islandi hefur fjöldi fenðamanna
síðastliðin 10 án aukist um 85%
Staðreyndir um íerðaþjónustuna
Ferðamennska verður líklegast stærsti atvinnuvegurinn í
heiminum árið 2000. Árið 1991 ferðuðust 450 milljónir manna
milli landa samanborið við 60 milljónir árið 1960. Ferðamennska
skapar í dag nærri 5,5% af heildartekjum þess sem
aflað er í heiminum. Um 112 milljónir manna starfa
við ferðaþjónustu er gerir hana þegar að stærstu
atvinnugrein í heimi.
Flestir ferðamenn koma frá Vesturlöndum. Frá
Evrópu koma um 57% þeirra og 16% frá N-
Ameríku. Á íslandi hefur fjöldi ferðamanna
síðastliðin 10 ár aukist um 85%. Stefnir í að þeir verði tæp 200
þúsund á þessu ári eða á við meira en 70% af íbúafjölda
landsins.
Umhverfisvæn ferðamennska
Ferðamannaþjónustan er í mörgum tilfellum mjög háð náttúrunni
og auðlindum
Hlýnandi loftslag á jörðinni eykur
hættu á að jöklar bráðni
hennar. Því
þurfa lönd
eins og ísland
þar sem
óspillt náttúra
er aðalaðdráttarafl ferðamanna að vera vel á varðbergi um
landsins gæði.
Þó að ferðaþjónustan geti haft jákvæð efnahagsleg áhrif á
12
r3ÁJ
M '