Skinfaxi - 01.02.2001, Blaðsíða 3
ritstjórinn
FJÖLBREYTT FÉLAGS-
STARFINNAN UMFÍ
Skinfaxi
ritstjóri
Valdimar Tryggvi Kristófersson
blaðamaður Ijósmyndir
Gunnar Guðmundsson Sigurjón Ragnar
Valdimar Gunnarsson
Hörður Ingimarsson
Umbrot og hönnun Valdimar Tryggvi Kristófersson
Framkvæmdastjóri Ábyrgðarmaður
Sæmundur Runólfsson Þórir Jónsson
Auglýsingar Markaðsmenn
Prentun Svansprent
Pökkun Vinnustofan Ás
Dreifing Blaðadreifing ehf.
Þá er komið að ákveðnum tímamótum hjá Skinfaxa því
Jóhann Ingi Árnason hefur hætt sem ritstjóri blaðsins.
Er honum þökkuð góð störf fyrir Ungmennafélagið
og er það einlæg von mín að ég nái að feta í fótspor hans.
Engar stórar breytingar verða á Skinfaxa enda félagar í
hreyfingunni almennt verið ánægðir með blaðið en ég mun
þó reyna að koma enn meira inn á það fjölbreytta félagsstarf
sem er í gangi innan UMFÍ. Og vil ég hvetja félagsmenn
víðsvegar af á landinu til að senda mér greinar og myndir eða
vera í sambandi við mig ef einhverjir spennandi og
skemmtilegir hlutir eru í gangi.
Við förum vítt og breitt um völl í þessu tölublaði. En eins
°g allir ungmennafélagar vita þá er félagstarfið innan
ungmennahreyfingarinnar fjölbreytt. Jón Arnar Magnússon
hefur verið að gera ótrúlega hluti að undanförnu en flestir
voru búnir að afskrifa hann. Þá er hann fluttur í bæinn á ný
frá Sauðárkróki og gekk til liðs við Breiðablik. Það styttist í
Landsmótið á Egilsstöðum og Ingimundur Ingimundarson,
hver annar, varð á vegi okkar en hann er framkvæmdastjóri
Landsmótsins. Ákveðið var á stjórnarfundi UMFÍ í febrúar að
ungmennafélögin á Vestfjörðum fengju Landsmótið 2004 og
við litum þar við. Þá hefur leiklistarlífið verið blómlegt í
Borgarfjarðarsýslu og mörg skemmtileg og metnaðarfull verk
verið sett upp. UMFÍ er að fara af stað með nýtt námskeið
sem hefur hlotið nafnið Leiðtogaskólinn og er ætlað öllum
metnaðarfullum leiðtogum og stjórnendum í fclagsstarfi,
atvinnulífi og sveitarstjórnum. Sameingarmálin eru enn á
oddinum og þá hefur ung og efnileg frjálsíþróttakona frá
Skagafirði verið að gera góða hluti að undanförnu auk þess
sem einn besti handknattleiksmarkvörður íslands, Birkir ívar
Guðmundsson Stjörnumaður var gómaður í viðtal.
Ritstjóm
Sigurbjörn Gunnarsson
Anna R. Möller
Vilmar Pétursson
Sigurlaug Ragnarsdóttir
Stjórn UMFÍ
Þórir Jónsson
Björn B. Jónsson
Kristján yngvason
Jóhann Ólafsson
Kristín Gísladóttir
Anna R. Möller
Sigurbjörn Gunnarsson
Sigurður Aðalsteinsson
Helga Guðjónsdóttir
Kjartan Páll Einarsson
Helga Jónsdóttir
Skrifstofa Skinfaxa
Þjónustumiðstöð UMFÍ
Fellsmúla 26
108 Reykjavík
sími: 568-2929
fax: 568-2935
netfang: umfi@umfi.is
heimasíða: www.umfi.is
Valdimar Tryggvi Kristófersson