Skinfaxi - 01.05.2002, Blaðsíða 3
ritstjórinn
Allirá
Unglingalandsmót
UMFÍ í
Stykkishólmi
Sumarið er fljótt að líða og þegar 2. tbl. Skinfaxa kemur inn um
bréfalúguna hjá þér er komið fram í lok júlí. Sumarstarf UMFÍ hefur
verið fjölbreytt það sem af er og eru mörg verkefni enn í gangi eða að
hefjast. Eitt viðamesta verkefni í sumarsins er Unglingalandsmót
UMFÍ, sem fram fer í Stykkishólmi 2. til 4. ágúst, og er framkvæmdin
í höndum HSFI. Mikil undirbúningsvinna hefur farið fram undanfarna
mánuði og má búast við glæsilegu og fjölmennu móti. Þetta er í
fimmta skiptið sem Unglingalandsmót UMFÍ fer fram og aldrei fyrr
hafa verið jafn margar forskráningar og nú. Sú nýbreytni var tekin upp
fyrir þetta mót að hafa það opið almenningi og hefur það fallið í
góðan jarðveg. Aðstandendur mótsins leggja mikla áherslu á að þetta
sé fjölskylduhátíð enda verður nóg um að vera fyrir alla aldurshópa
auk þess sem Snæfellsnes er stórkostleg náttúruperla og margt hægt
að skoða og gera. Ég er því sannfærður um að allir eigi eftir að
skemmta sér vel, sem leggja leið sína á Unglingalandsmót UMFÍ í
Stykkishólmi.
Skinfaxi er að þessu sinni tileinkaður Unglingalandsmótinu og
verður blaðinu m.a. dreift til allra þátttakenda á mótinu. Meðal annars
er rætt við Kjartan Pál Einarsson formann undirbúningsnefndar móts-
ins, Selmu Björnsdóttur og Rúnar Frey Gíslason leik- og söngpar,
sem munu halda uppi fjörinu á kvöldvökunni, Einar Einarsson frjáls-
íþróttaþjálfara sem lætur sig ekki muna um að keyra allt Snæfells-
nesið til þjálfa krakkana á Nesinu, Óla Jón Gunnarsson bæjarstjóra á
Stykkishólmi, sem er ekki að koma að landsmóti í fyrsta skipti o.fl.
En eins og áður segir er nóg um að vera hjá UMFÍ og ræddi
Skapti Örn Ólafsson við nokkra valinkunna kappa innan hreyfingar-
innar sem stýra um þessar mundir nokkrum áhugaverðum verkefnum
má þar m.a. nefna „Göngum ísland" sem Helgi Arngrímsson sér um
og „Fjölskyldan og fjallið," sem Ásdís Helga Bjarnadóttir formaður
umhverfisnefndar UMFÍ er farin af stað með, en þetta er átaksverk-
efni sem miðar að því að fá fjölskyldur í fjallgöngur.
Að lokum vil ég hvetja alla til að mæta á Unglingalandsmótið í
Stykkishólmi enda verður þar mikið fjör. Þeir sem komast ekki mæli
ég eindregið með að njóti náttúru íslands, taki þátt í verkefnum UMFÍ
og klæði sig í gönguskóna og gangi um landið.
Með kveðju
Valdimar Tryggvi Kristófersson
Forsíðumyndina tók Sigurjón Ragn-
ar, Ijósmyndari Skinfaxa,
íStykkishólmi þegar Skinfaxamenn
heimsóttu staðinn fyrir skömmu.
Krakkarnir á myndinni æfa frjálsar
með Snæfelli og voru að mæta á
æfingu þegar Sigurjón myndaði þau.
Skinfaxi
RITSTJÓRI
Valdimar Tryggvi Kristófersson
LJÓSMyNDIR
Sigurjón Ragnar o.fl.
UMBROT OG HÖNNUN
Valdimar Tryggvi Kristófersson
ÁByRGÐARMAÐU R
Björn B. Jónsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Sæmundur Runólfsson
AUGLýSINGAR Markaðsmenn
PRENTUN Svansprent
DREIFING Blaðadreifing ehf
PÖKKUN Ás Vinnustofa
PRÓFARKALESTUR
Aðalbjörg Karlsdóttir
RITSTJÓRN
Anna R. Möller
Vilmar Pétursson
Sigurlaug Ragnarsdóttir
Birgir Gunnlaugsson
Ester Jónsdóttir
STJÓRN UMFÍ
Björn B. Jónsson
Helga Guðjónsdóttir
Kristín Gísladóttir
Anna R. Möller
Sigurbjörn Gunnarsson
Ásdís H. Bjarnadóttir
Hildur Aðalsteinsdóttir
Sigurður Viggósson
Kjartan P. Einarsson
Svanur M. Gestsson
Birgir Gunnlaugsson
SKRIFSTOFA SKINFAXA
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ UMFÍ
FELLSMÚLA 26, 108 REyKJAVÍK
SÍMI: 568-2929, FAX: 568-2935
NETFANG: umfi@umfi.is
HEIMASÍÐA: www.umfi.is
Ársáskrift af Skinfaxa kostar 1.796.- krónur
Skinfaxi kemur út 4-5 sinnum á ári.