Skinfaxi - 01.05.2002, Blaðsíða 6
„Jú, þetta er mjög spennandi verkefni og
virkilega gaman að taka þátt í að undirbúa
svona stórt mót í heimabyggð. Eg var
formaður Blaksambands íslands í nokkur
ár eftir að ég flutti hingað héldum við
einmitt öldungamót í blaki hérna í
Stykkishólmi sem var gríðarlega vel sótt og
heppnaðist vel. Þannig að við þekkjum
nokkuð vel til að halda svona stórt mót
hérna í Hólminum."
Hvert er upphaflegt markmið með Ung-
lingalandsmótunum? „Upphaflega var
markmiðið að ná til sem flestra ungmenna-
félaga á unglingsaldri og stuðla að þátt-
töku þeirra í íþróttum og efla félagslega
samkennd þeirra. I dag er Unglingalands-
mót UMFI opið öllum sem hafa áhuga á
að mæta, ekki ein-
gert af ásettu ráði þar sem Unglinga-
landsmótið á Tálknafirði var haldið á sama
tíma fyrir tveimur árum og gekk vel. Við
viljum marka okkur sérstöðu í sambandi
við verslunarmannahelgina,
vera með
er a\shenar
sírvum og
m á\^ers\u a að tor
-^mur s'á,sl með' f°
Adram.r korrrr
petta
róeð börtrunun'
jaluvel að aiar o9
Fyrir hverja er
Unglingalandsmót UMFI? „Það er mest
um að vera fyrir ungu kynslóðina á
mótinu, frá 11-16 ára og má þar m.a. nefna
glæsileg íþróttakeppni, en við leggjum
samt mikla áherslu á að mótið sé fyrir alla
fjölskylduna. Þetta er allsherjar fjölskyldu-
hátíð og við leggjum ríka áherslu á að
foreldrarnir komi með börnunum sínum
og jafnvel að afar og ömmur sláist með í
för. Dagskrá mótsins er miðuð við breiðan
aldurshóp, þar sem allir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi, þetta snýst ekki bara
um íþróttir heldur verður hér alhliða
afþreying á boðstólnum og margt skemm-
tilegt um að vera."
göngu ungmennafélögum
heldur öllum íþróttafélögum á landinu og
þeim sem stunda íþróttir ekki en eru skráð-
ir í íþróttafélög. Lögð er áhersla á fjöl-
breytta dagskrá sem höfði jafnt til kepp-
enda sem og annarra gesta landsmótsins.
Þá er Unglingalandsmót UMFI áfengis- og
vímuefnalaus hátíð og er ætlast til að
hátíðargestir skemmti sér á heilbrigðan
hátt."
Hvað getur gerst ef menn verða uppvísir
af notkun áfengis eða vímuefna? „Þeir
sem geta ekki haldið sig innan þessa
ramma eiga ekki heima á þessu móti og
verður umsvifalaust vísað heim. Við fylgd-
umst með og sáum hvernig þetta gekk fyrir
sig á Tálknafirði fyrir tveimur árum og þar
var gestum sem ekki stóðu sig vísað af
slíkt mót á tveggja
ára fresti og vinna á því sviði sem
snýr að forvörnum. Hvað undirbúninginn
varðar þá hefur mesta vinnan undanfarið
farið í kynningu á mótinu. Við réðum til
okkar í desember í fyrra framkvæmda-
stjóra, Jóhann Hauk Björnsson, og hefur
hann unnið ötullega að undirbúningi og
kynningu mótsins síðan ásamt undir-
búningsnefndinni. Undirbúningur hefur
gengið mjög vel og á þessari stundu erum
við að vinna í framkvæmdaþættinum.
Aðstaðan er öll að verða klár, verið er að
setja gerviefni á atrennubrautir fyrir
hástökk, langstökk og aðrar kastgreinar."
Er þetta búin að vera skemmtileg undir-
búningsvinna? „Já, hún hefur verið það.
Fólk hér á Snæfellsnesi hefur verið sam-
taka og það hefur verið auðvelt að fá það til
að taka þátt í hinum ýmsu undirbúnings-
verkefnum. Þannig að þetta hefur verið
mjög félagslegt og gefandi í alla staði."
Hvað með þau börn sem hafa
lítinn sem enga áhuga á íþrótt-
um. Er þetta mót ekki ætlað
þeim? „Jú, sko sannarlega.
Hérna verður meðal annars
haldin hæfileikakeppni í sam-
ráði við samtök félagsmiðstöðva
og vonumst við að sú keppni nái
bæði til þeirra sem hafa áhuga á
íþróttum og þeirra sem hafa ekki
áhuga á þeim. Þá verða á stað-
num leiktæki, haldnir verða
tónleikar, leiksýningar, kvöld-
vaka og brenna, útvistardagskrá
svo fátt eitt sé nefnt."
Sundlaugin í
Stykkishólmi
er glæsileg,
en hún var
byggð 1999.
Unglinga-
landsmótið er
vímuefnalaust
mót.
mótinu. Að sama skapi munum
við fylgja þessu eftir hérna í
Stykkishólmi. Við fáum einnig
góðan stuðning frá Afengis og
vímuvarnaráði í tengslum við
mótið. Þeir hafa trú á þessu verk-
efni eins og við og við höfum lagt
mikla áherslu á það í kynning-
unni fyrir mótið að þetta sé
vímuefnalaust mót."
Það styttist óðum í mótið.
Hvernig hefur undirbúningi
miðað? „Mjög vel. Mótið er fyr-
stu helgina í ágúst, um versl-
unarmannahelgina, og er það
Ykkur hefur tekist vel að virkja bæjar-
búa? „Já, sannarlega, en það sem hefur
verið kannski einna skemmtilegast við
þetta er að við höfum verið að fá bæjarbúa
í þessa undirbúningsvinnu sem hefur haft
samband við okkur og boðið fram krafta
sína, sem er einstaklega jákvætt og sýnir
hug bæjarbúa til mótsins."
Nú er það HSH (Héraðssamband Snæ-
fellssnes- og Hnappadalssýslu) sem held-
ur mótið en það fer eingöngu fram hérna
í Stykkishólmi. Ástæðan? „Það er rétt að
HSH sótti um mótið fyrir hönd aðildarfél-
aganna á svæðinu. Þegar kom í ljós að við
hefðum fengið mótið tók stjórn HSH þá
ákvörðun að mótið skyldi haldið á einum
stað og varð Stykkishólmur fyrir valinu.
Fyrir því liggja ýmsar ástæður m.a. sú að
aðstæður hérna eru mjög góðar og bærinn
er undir það búinn að taka við miklum
fjölda gesta með góðu móti. Þá hefur
reynslan frá fyrri mótum þar sem keppnis-
greinum og mótshaldi hefur verið dreift á
milli staða, ekki verið nægjanlega góð og
ekki tekist nógu vel til. Þar hefur lands-
móts stemmningin fræga oft týnst og þá
hefur það reynst mörgun erfitt að keyra
þvers og kruss á milli staða til að taka þátt
í ólíkum keppnisgreinum."