Skinfaxi - 01.05.2002, Page 5
^fnglingnlnndsmót UIVIFÍ í ^tgkkishólmi
Viljum marka okkur sérstöðu í sambandi
við verslunarmannahelgina,
segir Kjartan Páll Einarsson formaður Unglingalandsmótsnefndar.
STYKKISHÓLMI
2.-4. ÁGÚST 2002
Kjartan Páll Einarsson er formaður
Unglingalandsmótsnefndar og sit-
ur einnig í stjórn UMFI. Kjartan er
einn af þeim sem höfðu
frumkvæði að því að því að
Unglingalandsmótið er haldið á
Vesturlandi. Nú eru aðeins
nokkrar vikur í mótið og
undirbúningsvinnan enn í fullum
gangi þótt að flestar línur séu farn-
ar að skýrast. Valdimar Kristófers-
son hitti Kjartan Pál að máli í
góðu yfirlæti í Stykkishólmi, en
þar fer mótið fram um verslunar-
mannahelgina.
Mótið er öllum opið
Hvernig stóð á því að þú tókst að
þér formennsku í Unglingalands-
mótsnefnd? „Ég kom að þessu máli
strax í upphafi og var einn af þeim
sem mælti fyrir því að Unglinga-
landsmótið færi fram hér á Vestur-
landi. Eftir það var einfaldlega ekki
aftur snúið enda vill það nú oft
verða svo að þegar menn hafa rétt
fram litla fingur að þá fylgir höndin
með."
Hvenær fór þetta ferli af stað? „Um-
ræðan fór af stað strax eftir að
Unglingalandsmótinu í Grafarvogi
1998 lauk. Við fylgdumst vel með
þar og töldum að Vesturland væri
mjög hentugur staður til slíks
mótshalds án þess að fara þyrfti í
mikla og kostnaðasama uppbygg-
ingu á aðstöðu."
Sóttuð þið formlega um mótið
1998? „Nei, við sóttum ekki um fyrr
en í byrjun árs 2000 þegar kom að
því að úthlutað yrði fyrir mótið 2002.
En Unglingalandsmótið er haldið á 2
ára fresti og búið var að ákveða að
halda mótið árið 2000 í Vesturbyggð.
Umræðan fór þó miklu fyrr af stað
og var strax ákveðið 1998 að sækja
um mótshaldið árið 2002."
Þótt þú hafir kannski ekki ætlað
þér í upphafi að stýra þessari
undirbúningsnefnd þá varð raunin
sú, en þér hefur væntanlega þótt
spennandi að taka þátt í þessu
verkefni sem Hólmari?