Skinfaxi - 01.05.2002, Page 7
^foglingnlmidsmót UiVlFÍ í ^tgkkishólmi
Voru þá allir sáttir við þessa ákvörðun? „Já, ég hef ekki orðið var
við annað. Það ríkti eining innan stjórnar HSH um ákvörðunina
og í henni átti Snæfell, sem er íþróttafélagið í Stykkishólmi, aðeins
einn fulltrúa af fimm. Þannig að það var mikil samstaða innan
félaganna hérna á svæðinu að halda þetta á einum stað og varð
Stykkishólmur fyrir valinu."
Unglingalandsmótið í Stykkishólmi er það fimmta í röðinni. Er
einhver nýbreytni á mótinu í ár? „Já, nú er mótið opið öllum sem
vilja taka þátt sama hvort menn séu skráðir í ungmennafélag eða
ekki. Þá verður hér haldin hæfileikakeppni í fyrsta sinn og á hún
meðal annars að höfða til þeirra sem ekki hafa áhuga á íþróttum.
I hæfileikakeppninni verður m.a. keppt í leiklist og svokölluðu
rappi, en þar stíga einstaklingar upp á svið og láta ljós sitt skína
fyrir framan dómnefnd og áhorfendur. Þá verður breyting í
íþróttakeppninni þar sem keppt verður í hverjum aldursflokki
fyrir sig en ekki tveimur árum blandað saman. Þá verðum við með
íþróttir fyrir fatlaða þ.e.a.s. sund og frjálsar. Einnig verður, í
samvinnu við Handknattleikssamband Islands haldið mót, þar
sem ákveðnum liðum verður boðin þátttaka. HSI sér alfarið um
þetta og er handboltinn hugsaður sem kynningargrein á mótinu."
Það eru margir sjálfboðaliðar
sem koma að undirbúningnum
en það kostar samt peninga að
halda slíkt mót. Hvernig hefur
gengið að fá styrktaraðila á
mótið? „Styrktaraðilarnir skipta
gífurlega miklu máli þegar haldið
er svona stórt mót. Við fórum
tiltölulega snemma af stað og
ræddum við nokkra hugsanlega
styrktaraðila. Það gekk mjög vel
að ná samningum við nokkra
aðila sem voru tilbúnir að styrkja
þetta verkefni og vonandi getum
við haldið þeirra merki vel á lofti í
undirbúningnum og mótinu
sjálfu. Stærsti styrktaraðilinn er
Stykkishólmsbær, sem styrkir
okkur myndarlega auk þess sem
þeir útvega alla aðstöðu frítt fyrir
mótið. A móti vonum við að
Stykkishólmur, bæjarbúar og
fyrirtæki hér í bænum njóti góðs
af þeim gestum sem heimsækja
okkur og dvelja þennan tíma sem
mótið stendur. Auk þess er slíkt
mót ómetanleg kynnig á bæjar-
félaginu og svæðinu í heild
þ.e.a.s. öllu Snæfellsnesi."
Og þú lofar að sjálfsögðu
skemmtilegu móti og góðu
veðri? „Já, það er alveg klárt. A
mótinu eiga allir eftir að finna
eitthvað við sitt hæfi og skemmta
sér konunglega, jafnt ungir sem
aldnir. Varðandi veðrið þá voru
veðurguðirnir þeir fyrstu sem
samið var við og ég hef enga trú á
öðru en að þeir standi við sitt,"
segir Kjartan Páll að lokum í
góðlátlegu gríni og vonandi mun
veðurblíðan leika við mótsgesti.
Sundlaug - íþróttahús
Líkamsræktarstöö
Opnunartímar sumar 2002
Opnunartími sundlaugar og líkamsæktar er frá
10-21 virka daga og frá 10 - 19 um helgar.
Sími 486 1251
Sundlaug
Útisundlaug 25 x 12,5 m, 4 heitir pottar, þ. m. einn barnapottur.
Margvísleg leiktæki.
Líkamsræktarstöö
Nýlega var tekin í notkun mjög fullkomin og nútímaleg
líkamsræktarstöö sem inniheldur öllu bestu fáanleg tæki og útbúnaö
til heilsuræktar.
ÍJþróttahús
A opnunartíma sundlaugar og líkamræktarstöövar er hægt aö fá
leigöa tíma í okkar glæsilega íþróttahúsi.
Verið velkomin á Laugarvatn.
Kennararháskóli íslands