Skinfaxi - 01.05.2002, Síða 8
^fnglingnlnndsmót UMFI í ^tgkkíshólmi
Eiga bæði gullmedalíu fyrir fótbolta!
Leik- og söngparið Selma Björnsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason ætla að
skemmta sér og öðrum á Unglingalandsmótinu.
Boðið verður upp á
glæsilega kvöldvöku á
Unglingalandsmótinu
á sunnudagskvöldið og
það verða aldeilis engir
grænjaxlar sem koma
til með að sjá um
kvöldvökuna, en þau
hjónakornin Selma
Björnsdóttir og Rúnar
Freyr Gíslason munu
sjá um að halda uppi
fjörinu. Þetta skemmti-
lega leik- og söngpar
hlakkar mikið til
Unglingalandsmótsins.
Jæja þiö eruð á leið í Stykk-
ishólm á Unglingalandsmót
UMFÍ. Hvernig líst ykkur á?
„Alveg ofsalega vel. Við höfum
heyrt að þarna verði mörg þús-
und manns þannig að við
hlökkum til.“
Hafið þið komið áður í
Stykkishólm og hvernig
fannst ykkur? „Já, ég kom
þarna á sínum tíma og fór í
skoðunarferð um eyjarnar. Það
var virkilega skemmtilegt. Einn-
ig fór ég til Flateyjar til að taka
upp sjónvarpsmynd með Leik-
listarskólanum, þegar ég var í
námi. Þetta er yndislegur stað-
ur,“ segir Rúnar.
Nú eru þið búin að vera
saman í nokkur ár, en hafið
þið einhvern tímann leikið
saman og hvenær var það
þá? ,,Við lékum saman í
Grease í Borgarleikhúsinu
1998-9 og í Syngjandi í
rigningunni í Þjóðleikhúsinu
2001-02.“
Hvernig gekk það? „Svo-
na líka rosalega vel. Við er-
um allavega ennþá sarnanl"
Hvert er uppáhalds leik-
ritið/söngleikur sem þið
hafið tekið þátt í? „Rocky
Horror í Loftkastalanum,"
segir Selma en upphálds-
leikrit Rúnars er Rent sem
einnig var sýnt Loftkastal-
anum.“
Nú er Unglingalandsmót-
ið í Stykkishólmi vímu-
efnalaus fjölskylduhátíð.
Hvað finnst ykkur um
það? „Alveg frábært.
Svona á þetta að vera.
Áfengi er óþarfi," segja þau
í kór.
„Alveg
frábært.
Svona á þetta
að vera.
Afengi er
óþarfi," segja
þau í kór.