Skinfaxi - 01.05.2002, Blaðsíða 11
^fngliognlnndsmót UMFÍ í ^tgkbishólmí
Það var algjört lífsspursmál að fá bætta
aðstöðu, segir Einar Einarsson frjálsíþróttaþjálfari HSH.
Einar Einarsson frjálsíþróttaþjálfari HSH
bíður spenntur eftir Unglingalandsmóti
UMFÍ. Hann er fæddur og uppalinn í
Stykkishólmi. Hann flutti þaðan á sínum
tíma til Garðabæjar, hann snéri til baka
til Stykkishólms í fyrra þegar honum var
boðið að gerast héraðsþjálfari í frjálsum
á Nesinu. Einar byrjaði ungur að árum
að æfa frjálsar og einbeitti sér alfarið að
spretthlaupum. Hann var einn okkar
fremsti spretthlaupari og vann ófáa
íslandsmeistaratitlana. Valdimar Kristó-
fersson hitti hann á hlaupabrautinni og
ræddi við hann um þjálfun á Nesinu.
Það er mikill dugnaður í Einari en hann
þjálfar Snæfell í Stykkishólmi, UMF
Grundarfjörð, Víking Ólafsvík, UMF
Staðarsveitar, ÍM og Eldborg sem koma
frá tveimur hreppum á Nesinu og æfa
saman. Félögin eru því dreifð um allt
Snæfellsnes og keyrir Einar á milli staða
til að þjálfa krakkana.
Það er mikil
barátta hérna,
eins og
annarsstaðar
að halda
krökkunum í
íþróttunum
og ég held
það sé
jákvætt að
vera með
héraðsþjálf-
ara sem nær
til allra
krakkanna á
Nesinu
Búinn að læra mikið
En hafði Einar eitthvað verið bendlaður við
þjálfun áður? „Nei, ekkert sem heitir. Þetta er í
raun frumraun og maður hefur lært óhemju mikið
á þessu. Ég kann vel við mig í þessu starfi og tel
mig ná nokkuð vel til krakkanna. Þetta er að vísu
dálítið stór pakki og svolítið slítandi að vera að
þvælast um allt Nesið til að þjálfa. En það býr
gott fólk víðsvegar um Nesið sem réttir mér
hjálparhönd og aðstoðar mig.“
Hvernig var þjálfunin á Nesinu áður en þú
komst? ,,í raun var þetta búið að vera steindautt
í nokkurn tíma en er mikið að taka við sér og lifna
við. Það er mikil barátta hérna, eins og annars-
staðar að halda krökkunum í íþróttunum og ég
held það sé jákvætt að vera með héraðsþjálfara
sem nær til allra krakkanna á Nesinu."
Hvernig fer síðan þjálfunin fram? „Þetta
byggist mikið á tækniæfingum, grunninum og
hafa margir hverjir sýnt miklar framfarir. Maður
verður að vera roslega frjór þvíekki er hægt að
vita hve margir koma á hverja æfingu. Það er því
ekki víst að æfingin sem maður ætlaði að vera
með gangi upp og þá verður maður að vera
tilbúinn með fleiri æfingar sem hentar þeim hópi
sem mætir.“