Skinfaxi - 01.05.2002, Page 12
^fnglingnlnndsmót UMFÍ í ^tgkbishólmi
Er ekki ofboðsleg vinna að keyra á milli
allra þessa staða til að þjálfa? ,,Jú, þetta
er töluverð vinna, en það er ákveðið skipu-
lag á þessu. Því er þó ekki hægt að neita
að þetta er heilmikill rúntur og maður verð-
ur að hafa fyrir þessu. En það er gaman að
vinna með krökkunum og maður kynnist
sveitinni enn betur.“
Mikill efniviður
Er mikill efniviður hérna á Nesinu? ,,Já,
það vantar ekki efniviðinn, en það er oft
grátlegt að fá krakka á æfingar, sem eru
efnilegir og hafa engan metnað til að fylgja
því eftir. Krakkar í dag eru margir hverjir
ekki nógu áhugasamir en svo er að sjálf-
sögðu fullt af krökkum sem eru mjög
áhugasamir. Það er eins og margir krakk-
anna átti sig ekki á út á hvað þetta gengur."
Hvað eru margir að æfa hjá þér? ,,Það
eru um 70 krakkar sem mæta reglulega hjá
mér á Stykkishólmi og í heildina eru þetta
kannski um 170 krakkar sem mæta
reglulega frá þessum fyrrtöldu stöðum.“
Nú er Unglingalandsmótið í byrjun
ágúst. Er mikil tilhlökkun í hópnum?
,,Já, hún er að magnast, en ég held að
krakkarnir muni ekki koma til með að átta
sig almennilega á hlutunum fyrr en í júlí. En
því er ekki hægt að neita að eftirvæntingin
fer stigmagnandi."
Hvað mætir þú með marga til keppni á
Unglingalandsmótið? ,,Það er ekki alveg
komið á hreint ennþá. Þetta er mikil ferða-
helgi og óvíst hvar foreldrarnir verða þótt
maður voni að þau fjölmenni á Unglinga-
landsmótið."
Má ekki gleyma sér í látunum
Nú keppa krakkarnir sem þú þjálfar inn-
byrðis og hver með sínum liði. Hvernig
gengur þjálfaranum að vera hlutlaus?
,,Það gengur ágætlega, en maður verður
að passa sig vel á að gleyma sér ekki í
öllum látunum. Krakkarnir áttu dálítið erfitt
með að skilja þetta í vetur og vildu vita með
hverjum ég héldi, en þau eru farin að átta
sig á þessu núna. Mér varð reyndar þá á í
fyrra að taka þátt héraðsmóti fullorðinna
fyrir hönd Snæfells, bara að gamni. En það
er mikil keppni á milli félaganna á Nesinu
og ég fékk ekki góð skilaboð eftir það frá
hinum félögunum. Þannig að ég held að ég
sleppi öllum mótum eftir þetta.“
Nú æfðir þú eingöngu spretthlaup þegar
þú varst í frjálsum. Eru þjálfarar f dag
strax farnir að sigta út hvaða grein hent-
ar hverjum einstaklingi best um leið og
hann byrjar að æfa og reyna jafnvel að
ýta honum þangað? „Nei, alls ekki. Ég
læt krakkana valsa um alveg eins og þau
vilja. Ég vil að þau prufi sem flestar greinar
svo þau komist að því hvað þeim finnst
skemmtilegast. Ég læt þau samt vita hvar
ég tel þau sterkust og reyni að hvetja þau
til að keppa í þeim greinum á mótum, en
þau finna þetta oftast sjálf. Hvað mig varð-
ar þá festist ég bara í spretthlaupunum,
náði bestum árangri þar.“
Hvernig er íþróttaaðstaðan á Nesinu?
,,Hún er þokkaleg. Á Nesinu eru eingöngu
malarvellir, en það er verið að betrumbæta
frjálsíþróttavöllinn hér i Stykkishólmi fyrir
Unglingalandsmótið og eftir að því líkur nú
í byrjun júlí þá verður aðstaðan alveg
glæsileg."
Þannig að þetta er mikil lyftistöng fyrir
íþróttalífið hér í Stykkishólmi að halda
Unglingalandsmótið? ,,Já, það er engin
spurning. Það var algjört lífsspursmál að fá
bætta aðstöðu til að áhugi krakkanna héld-
ist og ég er alveg sannfærður um að iðk-
endum á eftir að fjölga þegar aðstaðan
verður tekin í gagnið nú í byrjun júlí. Þá fer
líka eftirvæntingin að aukast vegna Ung-
lingalandsmótsins."
Hvað með fyrirmyndir, eins og Jón
Arnar Magnússon, og Völu Flosadóttur.
Hafa þau áhrif á krakkana og áhuga
þeirra? ,,Já, það er engin spurning. Ég
fékk t.d. Jón Arnar á héraðsmótið sem
haldið var hér í apríl til að afhenda verð-
laun. Krökkunum fannst þetta alveg frá-
bært og sumir foreldrarnir misstu jafnvel
andlitið þegar þeir sáu hann. Ég held að
þau hafi einfaldlega ekki trúað því að svona
þekktur einstaklingur gæfi sér tíma til að
mæta á Nesið til að veita verðlaun."
Áttu von á skemmtilegu Unglingalands-
móti? ,,Já, engin spurning. Ég á einnig von
á mikilli og skemmtilegri stemmningu þar
sem aðstæður eru að verða mjög góðar og
mótshaldið fer allt fram á sama stað.“