Skinfaxi - 01.05.2002, Page 18
^yfngliiignlnndsmót UIVIFÍ í ^tgUUishólmi
Á góðar minningar frá Unglingalandsmótum
UMFI, segir Daníel Ali sem tekur þátt í sínu þriðja Unglingalandsmóti
Daníel spilaöi meö jafnöldrum sínum 9. flokki í körfubolta í
vetur en hann fékk einnig nokkur tækifæri til að æfa meö
meistaraflokki félagsins? „Það var að sjálfsögðu mikill munur að
æfa með sínum flokki og meistaraflokki. Það er miklu erfiðara og
einnig er meiri harka á æfingum. En það var frábært að fá tækifæri
til að æfa með þeim og maður lærði mikið á þessu. Það var góð
stemmning á æfingum og liðið vann sér sæti í Úrvalsdeild á nýjan
leik í vetur.“
Þaö styttist óöum í Unglingalandsmót UMFÍ. Hefur þú áður
verið með á unglingalandsmóti? „Já, ég var með á Tálknafirði
fyrir tveimur árum og einnig í Grafarvogi fyrir fjórum árum. Það var
rosalega gaman að taka þátt og góð stemmning enda var hópurinn
góður sem fór og HSH var með næst fjölmennasta liðið á mótinu.
Ég keþþti bæði í frjálsum og körfubolta þannig að það var alltaf
nóg að gera.“
Hvernig gekk? „Það gekk bara nokkuð vel a.m.k. var ég sáttur við
minn árangur."
Hvaö er skemmtilegast viö þessi mót? „Það var mjög gaman að
taka þátt í körfunni en svo er líka gaman að hitta alla þessa krakka,
sem maður hittir ekki á hverjum degi. Þetta er því bæði félagslegt
og gefandi."
Hvernig líst þér á mótið sem fer fram hérna í þinni heima-
byggð? „Mér líst bara vel á það. Þettaverður ábyggilega rosalega
mikið stuð hérna heima. Ég er orðinn nokkuð spenntur fyrir þessu.“
Til hvers hlakkar þú mest á mótinu hérna í Hólminum? „Það er
margt sþennandi á þoðstólnum. Það verður því mikið um að vera
og úr nógu að velja. Ég hlakka þó sérstaklega til að keppa í körf-
unni og svo að hitta aðra keppendur."
Þú byrjaðir ekki aö æfa íþróttir fyrr en
þú varst 11 ára. Hvað varstu aö gera
áður? „Ég eiginlega veit það ekki, í raun
ekki neitt.“
Hvernig stóö þá á því að þú byrjaðir að
æfa? „Ég var reyndar alltaf að prófa, en
var eitthvað smeykur við að byrja á fuliu.
Svo allt í einu kom áhuginn upp og ég
byrjaði þá af krafti. Ég var þá mikið farinn
að fylgjast með íþróttum í sjónvarpinu og
ég held að það hafi gert útslagið hvað
áhugann varðar."
En þótt að körfuboltinn sé framtíðin þá
gefur hann sér einnig tíma til að æfa
frjálsar. „Já, ég æfi hástökk, langstökk og
spretthlauþ, en ég á von á að ég velji
körfuboltann fremur en frjálsar. Ég stefni á
nám í Bandaríkjunum og það væri gaman
að fá tækifæri til að leika með einhverju
skólaliði þar.“
Daníel Ali Kazmí er annar
ungur og efnilegur Hólmari
sem æfir með Snæfelli.
Daníel er 14 ára og æfir
körfubolta og frjálsar. Hann
byrjaði ekki að æfa fyrr en
fyrir þremur árum þótt
ótrúlegt megi virðast en
krakkar í dag, sem fara í
íþróttir, byrja yfirleitt mun
fyrr. Daníel er þó mikið
efni og æfði m.a. með
Snæfelli í meistaraflokki í
körfubolta vetur þrátt fyrir
ungan aldur.