Skinfaxi - 01.05.2002, Page 23
^fnglingnlnndsmót UMFÍ í ^tgkkishólmi
Gífurlega jákvætt fyrir svæðið í heild
• •
sinni, segir Ásthildur Sturludóttir ferðamálafulltrúi Vesturlands
Ásthildur Sturludóttir er nýkomin heim aftur
til Stykkishólms eftir nám í stjórnmálafræði,
eins og hún vill orða það, en hún ólst upp í
Stykkishólmi. Ásthildur vinnur sem ferða-
málafulltrúi og atvinnuráðgjafi á Vesturlandi
og þótt að nóg sé að gera hjá stúlkunni þá
ákvað hún að taka að sér verkefni fyrir Ung-
lingalandsmótsnefndina, og stýra afþreyingar-
dagskrá mótsins. Valdimar Kristófersson settist
niður með Ásthildi sem var hin hressasta.
Fjölskyldan saman
Unglingalandsmótið er ekki bara íþrótt-
amót heldur mót fyrir alla fjölskylduna
og þið gerið dálítið mikið úr því? ,,Jú, við
leggjum mikið upp úr því að fjölskyldan geti
komið saman og átt góða helgi, eitthvað að
krökkunum keppi en þeir sem hafa ekki
áhuga á því geta samt átt góða stund, farið
í ýmsa leiki og gert margt annað skemm-
tilegt sem verður í boði. Það verða mörg
leiktæki á staðnum og er frítt í þau flest. Allt
verður þetta í göngufæri þannig að foreld-
rar eiga að geta lagt bílnum yfir helgina og
verið á rölti um bæinn og fylgst með öllu því
sem verður að gerast á rnótinu."
Hvað er helst á dagskrá fyrir utan
íþróttamótið? ,,Við verðum með sérstakt
leikjasvæði, þar sem hægt verður að fara í
fullt af leikjum, þar verða leiktæki eins og
hoppkastali og ýmis tæki sem hafa tengst
17. júní hátíðarhöldum, svo verða tónleikar,
íslandsleikhúsið verður með leiksýningar,
hæfileikakeppni, kvöldvaka, brenna, gó-
kart o.rn.fl."
Ætlar í gamla HSH gallann
Hvernig stóð á því að þú tókst að þér að
verða fulltrúi afþreyinga fyrir unglinga-
landsmótið? ,,Ég var nú bara einfaldlega
beðin um í vetur að taka þetta að mér.
Kannski fyrst og fremst af því að ég er
ferðamálafulltrúi á Vesturlandi. Nú þar sem
ég keppti í gamla daga í frjálsum og hef
þennan ungmennafélagsanda þá kom
okkert annað til greina en að taka þetta að
tnér," segir hún hlæjandi meðan hún rifjar
upp gamla tíma í huganum og bætir síðan
við: „Ég hlakka því mikið til og sérstaklega
að draga upp gamla HSH gallann og
klæðast honum þessa helgi.“
Hvað er langt síðan þú
fórst í hann? „Það var á
Landsmótinu í Mosfells-
bæ1990 sem ég klæddist
HSH gallanum síðast,
sælla minninga."
Þannig að þú hefur ver-
ið mikil íþróttamann-
eskja á þínum yngri ár-
um? ,,Já, já, ég æfði af
kappi á mínum yngri árum, en þetta minnk-
aði aðeins þegar ég fór í Háskólann vegna
tímaskorts. Ég fylgist enn vel með og tek
þátt í þessu í gegnum yngri systkini mín.“
Hvaða íþróttagreinar voru í uppáhaldi
hjá þér? ,,Ég æfði frjálsar og körfubolta
þ.e.a.s. þessar týpísku íþróttagreinar fyrir
Hólmara."
Mikið ævintýri
Þannig að þú hefur verið spennt fyrir
verkefninu þegar það bauðst? ,,Já, ég
leit strax á það sem mikið ævintýri að fá að
taka þátt í undirbúningsvinnunni og mótinu
sjálfu. Ég hef einnig tekið eftir því að jafn-
aldrar mínir sem og aðrir bæjarbúar eru
mjög spenntir fyrir mótinu og það vilja allir
leggja sitt af mörkum til að gera þetta að
glæsilegu og eftirminnilegu móti.“
Þetta er vissulega fjölskyldumót, en
keppnisgreinarnar eru flestar fyrir yngri
kynslóðina, en það hefur samt ekki áhrif
á það að eldri kynslóðin er spennt og
bíður eftir mótinu? ,,Það er mikill áhuga
hjá „eldra fólkinu" í bænum og flestir bíða
spenntir eftir þessari helgi.“
Nú starfar þú sem ferðamálafulltrúi hér
á Vesturlandi. Hvaða þýðingu hefur
þetta mót fyrir ykkur? ,,Það hefur
gríðarlega mikla þýðingu fyrir svæðið í
heild sinni. Það er ekki um hverja helgi sem
um 10.000-15.000 manns leggja leið sína
hingað. Við ætlum að taka vel á móti þess-
um gestum, sýna þeim og kynna Vestur-
landið mjög vel og þá erum við sannfærð
um að við eigum eftir að fá þetta fólk aftur í
heimsókn. Þannig að unglingalandsmótið
hefur mikla þýðingu fyrir okkur og er gífur-
lega jákvætt fyrir svæðið í heild sinni.“
Og hvað er hægt að gera hérna á
Vesturlandi? ,,Það er margt og skemmti-
legt. Menn geta farið í bátsferðir m.a.
skoðað eyjarnar hérna í kring og farið í
hvalaskoðun. Þessar ferðir hafa verið mjög
vinsælar og svo er einnig hægt að fara á
kajaka, skoða söfn, fara á ótal veitinghús,
upp á Snæfellsjökul, skoða Snæfellsnesið í
heild sinni sem er ein náttúruperla og
svona mætti lengi telja.“
Þannig að það verður eitthvað fyrir alla
á Unglingalandsmótinu? ,,Já, það verður
nóg um að vera fyrir alla
aldurshópa jafnt unga
sem aldna. Ég mæli því
með því að fólk skelli
sér á Unglingalands-
mótið um verslunar-
mannahelgina því
hérna verður gam-
an saman.“