Skinfaxi - 01.05.2002, Side 25
^fnglingnlnndsmót LIMFÍ í ^tyUUishólmi
Unglingar eru
besta fólk,
segir söng- og leikkonan
Margrét Eir
Skapti Örn Ólafsson hafði samband
við söng- og leikkonuna Margréti Eir
ekki alls fyrir löngu og spjallaði við
hana um íslandsleikhúsið sem hún
stýrir af mikilli röggsemi nú í sumar.
En íslandsleikhúsið mun sýna á Ung-
lingalandsmótinu í Stykkishólmi.
Eins og ávallt lá vel á Margréti Eir og
þegar viðtalið fór fram var hún að
vaska upp í eldhúsinu heima hjá sér.
Til að opna viðtalið formlega spurði blaðamaður hver
þessi Margrét Eir væri og hún svaraði að bragði. „Hún
er má segja ennþá ung stúlka úr Hafnarfirðinum sem hefur
menntað sig sem söng- og leikkona. Þessari stúlku finnst
mjög gaman að vera til og er alltaf hress,“ sagði Margrét
Eir sem má segja að hafi verið syngjandi og leikandi síðan
hún man eftir sér. „Það var varla sú uppákoma í barna-
skóla sem ég kom ekki nálægt, leikrit eða skemmtilkvöld
og alltaf var Margrét Eir með - hvort sem henni líkaði betur
eða verr. Síðan var ég í kór Öldutúnsskóla þegar ég var lítil
og var í honum alveg þangað til ég þurfti að hætta,“ sagði
Margrét Eir með söknuð í röddinni yfir því að hafa þurft að
hætta í kórnum.
Poppið fram yfir klassíkina
Hárið og Meir
í söngleiknum Hárinu, sem var gríðarlega vinsæll á sínum
tíma, söng Margrét Eir meðal annars lagið „Að eilífu." Síðan
gaf hún út jólaplötu fyrir jólin 2000. „Platan var nú ekkert
voðalega jólaleg en hún kom nú samt út um jólin, en þá gaf ég út
mína fyrstu sólóplötu sem hét einaldlega „Meir.“ Á plötunni voru
eingöngu tökulög og vann ég hana með Kristjáni Eldjárn, þeim
öðlingsdreng sem nú er látinn. En það sem er að frétta af mér
núna er að ég er búin að setja saman hljómsveit sem heitir Meir. í
hljómsveitinni eru miklir gæðingar sem samanstendur af mér og
Karli Olgeirssyni, píanó, og Sálinni eiginlega. En ásamt mér og
Karli eru Guðmundur Jónsson, gítar, Friðrik Sturluson, bassa, og
Jóhann Hjörleifsson, trommur. Það má því segja að ég sé með
landslið hljóðfæraleikara á bak við mig,“ sagði Margrét Eir.
Hljómsveitin stefnir síðan að því að gefa út plötu von bráðar og þá
kemur út lag með Meir á plötunni „Svona er sumarið 2002."
Þessi lífsglaði ungi listamaður lagði síðan leið sína til
Bandaríkjanna og nam þar við leiklistarskóla. „Þegar
ég var 23 ára fór ég til Bandaríkjanna og útskrifaðist þaðan
úr leiklistarskóla. Hvað sönginn varðar má segja að ég sé
mikið sjálfmenntuð en ég fór í Tónlistarskólann í Reykjavik
og sótti tíma hjá Siglende Kalmann með klassískri undirstöðu. Á
þessum tíma var ég byrjuð svo mikið í popptónlist að mér fannst
þetta ekki passa alveg nógu vel saman að ég valdi poppið fram yfir
klassíkina. En þegar ég var úti í Bandaríkjunum sótti ég söngtíma
meðfram leiklistamáminu," sagði Margrét Eir.
Hvað sönglistina varðar hefur Margrét Eir komið víða við.
..Það má segja að ég hafi komið víða við í söngferlinum. Söng-
keppni framhaldsskólanna árið 1991 var það fyrsta sem ég lét að
mér kveða hvað sönginn varðar, en ég vann þá keppni og það má
segja að þá hafi ég í fyrsta skipti prufað að syngja popptónlist.
Síðan byrjaði ég í hljómsveitinni Svartur pipar og tók einnig þátt f
undankeppni Eurovision fyrir mörgum árum. Þá kom ég fram í
mörgurn sjónvarpsþáttum og söng eitthvað inn á plötur,“ sagði
Margrét Eir og hélt áfram að rekja söngferilinn. „Það var ekki fyrr
en ég kom fram í söngleiknum Hárinu árið 1994 sem hjólin fóru að
snúast. Ég tók einnig þátt í söngleiknum Rent árið 1999,“ sagði
Margrét Eir.