Skinfaxi - 01.05.2002, Blaðsíða 28
Sækjum ísland heim - gangandi
- segir Ásdís Heiga Bjarnadóttir formaður umhverfisnefndar UMFÍ
í sumar fór Ungmennafélag íslands af
stað með verkefnið Fjölskyldan og
fjallið sem er átaksverkefni um það
að fá fjölskyldur í fjallgöngur.
Skinfaxi var að vonum forvitinn um
þetta verkefni og hafði því samband
við formann umhverfisnefndar UMFÍ,
Ásdísi Helgu Bjarnadóttur, og spurði
hana nánar út í þetta verkefni.
Ásdís Helga Bjarnadóttir er fædd og
uppalin á Hvanneyri og starfar þar við
upplýsingamiðstöðina Lífræna ræktun
sem stofnuð var við Landbúnaðar-
háskólann. Ásdís Helga er búfræði-
og garðyrkjukandídat að mennt og
síðastliðin fjögur ár hefur hún verið
sambandsstjóri Ungmennasambands
Borgarfjarðar. Sfðastliðið haust kom
Ásdís Helga síðan inn í stjórn Ung-
mennafélags íslands og er formaður
umhverfisnefndar UMFÍ. Skapti Örn
Ólafsson bað Ásdísi Helgu að segja
sér aðeins frá umhverfisnefndinni.
„Þegar ný stjórn UMFÍ tók við var
ákveðið eftir tillögu Björns Jónssonar
formanns að gera tilraun með að
skipta starfi hreyfingarinnar upp í
íþrótta-, menningar- og umhverfissvið.
Formaður nefndarinnar kemur úr stjórn
UMFI og síðan koma tveir aðilar ein-
hversstaðar af landinu," sagði Ásdís
Helga, en með henni í umhverfisnefnd
eru Kristín Ágústdóttir sem kemur frá
Náttúrustofu Austurlands og Jóna Þor-
varðardóttir sem kemur frá UMSK.
Markmiðið að fólk kunni að
umgangast náttúruna.
Starf umhverfisnefndar er töluvert og
beinist það þá aðallega að fræðslumál-
um. „Nefndin hefur það að markmiði
að fara yfir umhverfisstefnu UMFÍ og
móta tillögur að framtíðarverkefnum
félagsins. Við höfum farið yfir umhverf-
isstefnu UMFÍ og sáum svo sem ekkert
athugavert við hana en við reynum að
vinna út frá henni,“ sagði Ásdís Helga.
Umhverfisstefna UMFÍ er í fáum orð-
um sú að auka þekkingu fólks í landinu
og kynna fólk fyrir umhverfinu, þannig
að fólk fari betur með náttúruna og
kunni að umgangast hana sem skildi.
Hluti stefnunnar snýr líka að umhverf-
inu innandyra - að fólk flokki endur-
vinnanlega hluti frá rusli. „Við höfum
kynnt okkar hugmyndir á samráðs-
fundum þar sem formenn félaganna
koma saman og þá var umhverfis-
stefnan samþykkt á sambandsþingi
UMFÍ, þannig að það má segja að við
kynnum þessa umhverfisstefnu á
vettvangi Ungmennafélags íslands,"
sagði Ásdís Helga þegar hún var spurð
að því hvernig nefndin kæmi þessum
mikla og góða boðskap til skila.
Gaktu á fjall og þú getur fengið
vinning
Umhverfisnefnd UMFÍ koma saman
fljótlega eftir áramót og var þá ákveðið
að fara af stað með verkefnið Fjöl-
skyldan og fjallið. „Þar sem ár fjallsins
er nú í ár þá fannst okkur tilvalið að
reyna að fá fjölskylduna í fjallgöngur í
tengslum við annað verkefni innan
UMFÍ sem er Göngum ísland. í leiða-
bók Göngum ísland eru síðan tilgreind
12-15 fjöll sem eiga að vera aðgengi-
leg fyrir fjölskylduna,“ sagði Ásdfs
Helga og hélt áfram að segja blaða-
manni frá verkefninu. „í júní var síðan
farið með póstkassa og gestabækur
upp á þessi fjöll þar sem fólk er síðan
beðið um að skrifa nafn sitt ásamt
heimilisfangi og síma. Síðan í haust
verður farið yfir gestabækurnar og
farið yfir þau nöfn sem þar eru og
dregnir út vinningshafar," sagði Ásdís
Helga og vildi ekkert gefa upp um það
hvað yrði í vinning þrátt fyrir þrábeiðni
blaðamanns.
Þá sagði Ásdís Helga að umhverfis-
nefndin hafi verið að vinna spurningar-
lista fyrir þjónustumiðstöðvar Ung-
mennafélags íslands sem eru sex
talsins þar sem fólk er beðið um að
skrá niður pappírsnotkun, orkunotkun
og þvíumlíkt. „Þetta gerum við til þess
að athuga hvort að við getum lagfært
eitthvað áður en við förum með þetta
verkefni eitthvað lengra. En þetta er
hugsað sem framtíðarverkefni en engu
að síður mjög þarft verkefni," sagði
Ásdís Helga.
Getur um leiö veriö fræöandi
Aðspurð um það hvort Ásdís Helga
hefði trú á því að fjölskyldan myndi
fara að ganga á fjöll og fyrnindi í sumar
taldi hún svo vera. „Ég held að það sé
ekki spurning og fólk er farið að sækja
miklu meira út í náttúruna en verið hef-
ur. Það er auðvitað góð heilsubót í því
að fara út að ganga og getur verið
fræðandi fyrir börnin ef foreldrarnir eru
vel að sér í plöntu- og fuglaheitum eða
þá staðháttum og örnefnum í náttúr-
unni. Þar sem núna er til hefti með
merktum gönguleiðum um land allt ætti
fólki ekkert ver að vanbúnaði að skella
sér í smá göngutúr," sagði Ásdís Helga
og vonaðist til þess að fjölskyldan tæki
vel í verkefnið Fjölskyldan og fjallið í
sumar.
Ekki hægt að kynnast landinu betur
en gangandi
En eru stúlkurnar í umhverfisnefnd
UMFÍ góðar fyrirmyndir hvað göngur á
fjöll og fyrnindi varðar? „Ég veit ekki
hvað stöllur mínar í nefndinni eru dug-
legar við göngur en hvað mig sjálfa
varðar er ég nokkuð dugleg að fara í
göngutúra. Við hér hjá Ungmenna-
sambandi Borgarfjarðar höfum síðast-
liðin fjögur sumur skipulagt kvöldgöng-
ur annan hvern fimmtudag allt sum-
arið. Þannig að ég hef farið víða um
Borgarfjörðinn," sagði Ásdís Helga og
var nokkuð sátt við sjálfa sig og vildi
hvetja fólk eindregið til þess að sækja
ísland heim - gangandi í sumar. „Eins
og hvatningin er núna, að sækja ísland
heim, vil ég benda fólki á að maður
kynnist ekki landinu okkar betur en
með því að fara gangandi um það,
ríðandi á hestum eða hjólandi. Maður
kynnist landinu mikið betur á þann
hátt,“ sagði Ásdís Helga.