Skinfaxi - 01.05.2002, Side 29
Hvet alla til að fara út að ganga
- segir Helgi Arngrímsson sem vinnur að verkefninu Göngum ísland
Skapti Örn Ólafsson sló á þráöin til Helga
Arngrímssonar á dögunum. Helgi stýrir verk-
efninu Göngum ísland sem UMFÍ stendur að.
Undanfarin 21 ár hefur Helgi verið framkvæmda-
stjóri hjá Álfasteini þar til síðastliðin vetur að
hann snéri sér alfarið að leiðsagnarmálum hvað
gönguleiðir í Borgarfirði eystri varðar, en þar býr
Helgi ásamt fjölskyldu sinni.
Helgi hefur undanfarin fimm til sex ár starfað við leiðsögn á svo-
kölluðum Víknaslóðum við Borgarfirði eystri. Frá Borgarfirði og
suður til Seyðisfjarðar eru 11 víkur og eru Víknaslóðir eins og nafn-
ið ber með sér gönguferðir um þessar víkur. Hvað verkefnið Göng-
um ísland varðar er það ný tilkomið hjá Helga. „Verkefnið er þannig
að við höfum verið að safna saman upplýsingum um gönguleiðir
víðsvegar um landið. Síðan gefum við út smá bækling, einskonar
leiðabók, um þessar gönguleiðir. Við erum komnir með 141 leið í
þessa leiðabók sem er langt umfram það sem við vorum upphaf-
lega að hugsa um,“ sagði Helgi. Þessar gönguleiðir eru allar mið-
aðar við hálftíma til tveggja tíma langar göngur og eru um allt land.
Margra ára verkefni
Hvernig kom það til að þessu verkefni var hrint af stað? „í fyrra var
gert samkomulag milli Ungmennafélags íslands og Heilbrigðis-
ráðuneytisins um að ráðast í þetta verkefni á landsvísu. Síðan í
vetur var gerður samningur við Svæðismiðstöðina á Egilsstöðum
um að hún myndi sjá um þetta verkefni í samstarfi við UMFÍ. í
framhaldi að því var ég síðan ráðin til þess að vinna að þessu
verkefni," sagði Helgi. Verkefnið Göngum ísland er hugsað sem
margra ára verkefni - enda á það alltaf við að sækja ísland heim
og ganga um landið okkar.
Vel hefur gengið að safna leiðum í leiðabókina og til marks um það
komu 40 leiðir þegar frestur til að skila inn leiðum var útrunnin.
„Það gekk alveg rosalega vel að safna leiðum í bókina og erum við
rnjög ánægðir með viðtökurnar. Við höfðum samband við ung-
mennafélögin í landinu og upplýsingamiðstöðvarnar sem síðan
sendu okkur gönguleiðir í leiðabókina," sagði Helgi. Leiðabókinni
verður síðan dreift um land allt ásamt því að veggspjöldum verður
komið upp. „Verkefnið verður vel auglýst á heimasíðu sem við
erum að vinna að og í blöðum og útvarpi." Þeir sem áhuga hafa á
verkefninu er bent á að fara inn á www.ganga .is á Netinu.
Ódýrasta og besta líkamsrækt sem til er
Helgi hvetur fólk til þess að taka fram gönguskóna og taka þátt í
verkefninu með því að ganga eitthvað af þeim leiðum sem í boði
eru. „Ég hvet fólk eindregið til þess að taka þátt í þessu með okkur.
Þetta kostar ekkert og það má segja að ganga sé einhver alódýr-
asta og besta líkamsrækt sem til er. Allir geta gengið og til dæmis
sr fólki sem nýkomið er úr hjartaaðgerðum hvatt til að fara út að
ganga. Þá er það markmið okkar með þessu verkefni að það fólk
sem ferðast um landið í bílunum sínum fari úr þeim og gangi
svolítið. Þetta eru stuttar leiðir og allir ættu að geta fundið ein-
hverja leið sem þeim líkar,“ sagði Helgi.
Gönguleiðirnar í verkefninu eru allar öruggar og margt markvert að
skoða á leiðunum. „Allar þær leiðir sem við bjóðum upp á eru
öruggar og vel merktar. Upplýsingar eru við hverja leið og eins er
haegt að fá göngukort. Þá eru margar af þessum leiðum tengdar
sögulegum staðreyndum og ýmsan fróðleik hægt að fá út úr smá
ðöngutúr. Þannig að hægt á að vera að ganga þessar leiðir án
leiðsögumanns," sagði Helgi sem sagði verkefnið fyrst og fremst
vera hugsað yfir sumartímann en þó væri hægt að ganga leiðirnar
yfir vetrartímann þar sem stikur ættu að lóðsa menn um ef snjóar.
Hluti af stærra verkefni
Nóg er að gera hjá Helga hvað gönguferðir varðar því í júlí mun
hann sjá um gönguferðir í Borgarfirði eystri. „Þegar mínum þætti í
Göngum ísland er lokið í júlí mun ég taka að mér leiðsögn í
gönguferðum um Víknaslóðir. Þó mun ég ekki alveg segja skilið
við verkefnið þar sem ég mun sjá um að dreifa leiðabókunum um
allt land og halda utan um allt saman. En hvað Víknaferðirnar
varðar er um að ræða sex til sjö ferðir sem hver tekur frá tveimur
og upp í sex daga,“ sagði Helgi.
Göngum ísland er hluti af stærra verkefni sem UMFÍ og
Heilbrigðisráðuneytið standa að. „Ungmennafélag íslands er síðan
með stærra verkefni sem er Margskonar ganga. Göngudagur
fjölskyldunnar er þar á meðal ásamt verkefni sem heitir Fjölskyldan
og fjallið síðan stendur til að búa til lítinn bækling sem dreifa á f
grunnskóla í landinu sem er einskonar hvatning fyrir börn að
ganga meira. Þá er hugmyndin að vera með almenna fræðslu um
útveru og göngu innan UMFÍ,“ sagði Helgi.
Sjáum mun á ferðamannastreymi
Helgi var bjartsýnn á að ná fólki út í göngutúra í sumar og sagði
fólk taka yfirleitt vel í verkefni sem Göngum ísland er. „Nú hef ég
starfað töluvert við ferðamál á landsbyggðinni og mín reynsla af
verkefnum sem þessum er að hvatning sem þessi hefur verulega
að segja. Þegar svipað átak var í gangi 1994 í tengslum við 50 ára
lýðveldisafmælið sáum við mikinn mun hér á Borgarfirði eystri á
ferðamannastreymi og vonandi verður svipað uppi á teningunum
hvað þetta átak varðar," sagði Helgi.
Þegar Helgi var spurður að því hvort að hann væri mikill göngu-
garpur sjálfur sagði hann svo ekki vera. „Nei ekki get ég nú sagt
það, en ég geng hins vegar dálítið. Ég passa vel inn í þennan fjöl-
skyldu gönguhóp en er lítið að ganga um fjöll og fymindi," sagði
Helgi og hló að blaðamanni þegar hann var spurður að því hvort
að hann hafi gengið allar þessar leiðir, enda tæki slíkt ærinn tíma.
Göngum ísland var síðan opnað formlega laugardaginn 29. júní
með stuttri gönguferð með Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra.
Ungum og öldnum er því ekkert að vanbúnaði að skella sér út í
fallega náttúru íslands í sumar og taka þannig þátt í verkefninu
Göngum ísland.