Skinfaxi - 01.05.2002, Side 30
Leiðtogaskóli UMFI að Gufuskálum
Ungmennafélag (slands og norrænu sam-
tökin NSU stóðu fyrir leiðtogaskóla fyrir
ungmenni frá öllum norðurlöndum nú í
byrjun júlí. Alls voru 32 nemendur á aldr-
inum 18-25 ára sem tóku þátt í fjölbreyttri
dagskrá. Leiðtogaskólinn var byggður upp
í
IKrakkarnir sem sóttu Leiðtogaskólann
voru ánægðir með hvernig til tókst og
skemmtu sér vel. Valdimar Gunnarsson
verkefnastjóri UMFÍ og framkvæmdastjóri
á fyrirlestrum, ýmsum leikjum, hópefli og
afþreyingu. Skólinn byrjaði kl. 9.00 á
morgnana og var þétt prógram fram eftir
degi og yfirleitt fram undir miðnætti. Fyrir-
lesarar í leiðtogaskólanum voru Sigrún
Stefánsdóttir, sem fjallaði um norræna
samvinnu og fjölmiðla, Rannveig Einars-
dóttir fjallaði deilur og lausnir á vandamál-
um, Kristján Kristjánsson fjallaði um mark-
mið og áætlanagerð og Jóhann Ingi
Gunnarsson fjallaði um leiðtogann í dag.
Skemmst er frá því að segja að krakkarnir
voru himinlifandi með fyrirlestrana sem
þóttu hver öðrum betri. Að fyrirlestrum lokn-
um var farið í ýmsa leiki, keppnir og afþrey-
ingu og má þar nefna, kajakferð, sjóstanga-
veiði, vélsleðaferð upp á Snæfellsjökul,
rafting niður Hvítá og skoðunarferð bæði til
Stykkishólms og um Suðurlandið á loka-
degi leiðtogaskólans. Valdimar Gunnars-
son verkefnastjóri hjá Ungmennafélagi
íslands og framkvæmdastjóri NSU hafði
veg og vanda að undirbúningi og fram-
kvæmd leiðtogaskólans og honum til halds
og trausts var Páll Guðmundsson nýráðinn
kynningarfulltrúi hjá Ungmennafélaginu.
ieiðtogaskólanum. Þau höfðu þetta að
segja um námið f leiðtogaskólanum:
Unnar Steinn Björnsson frá Selfossi:
,,Fyrst og fremst var þessi vikudvöl í
leiðtogaskólanum heilmikil lífsreynsla. Við
kynntumst góðum krökkum víða af norður-
löndunum sem hafa svipuð áhugamál og
eru að vinna að gefandi og heilbrigðu ung-
mennastarfi. Dagskráin var viðamikil og
fjölbreytt og maður þroskaðist sem ein-
staklingur og félagsvera."
Magnús Sigurðarson frá Patreksfirði:
,,Þetta var hreinasta snilld, fátt annað um
það að segja. Þetta var ógleymanleg lífs-
reynsla og maður lærði helling og hefur
vondandi þroskast sem einstaklingur.
Maður kynntist mikið af góðum krökkum
og ég vona að við náum að halda sam-
bandi. Fyrirlestranir voru góðir og afþrey-
ingin var í hæsta gæðaflokki. Þetta var
alveg rafmögnuð ferð.“
Anna Sif Hjaltested úr Garðabæ: ,,Mér
fannst gaman og spennandi að vera með í
leiðtogaskólanum. Góðir fyrirlestrar og frá-
bærir krakkar. Afþreyingin var meiriháttar
enda gerðum við ótrúlega mikið á aðeins
einni viku. Gufuskálar voru svolítið out of
nowhere en það að vera svona einangruð
þjappaði okkur bara enn frekar saman.
Rafting og vélsleðaferðin og fyrirlesturinn
hjá Jóhanni Inga stóðu upp úr og tengdi
okkur böndum sem seint munu rofna.“
Að loknum fyrirlestri einn daginn heimsótti
Anna R. Möller formaður NSU leiðtoga-
skólann og farið var í hugmyndavinnu um
framtíð og starf NSU. Hóparnir skiluðu
mörgum áhugaverðum hugmyndum sem
unnið verður úr á næstunni.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um
leiðtogaskólann á heimasíðu NSU,
www.nsu.is
NSU og Páll Guðumdsson kynningar-
fulltrúi UMFÍ voru ekki síður ánægðir.
Þrjú íslensk ung-
menni tóku þátt í