Skinfaxi - 01.10.2003, Side 13
Landsmót XJMPÍ á Sauðárkróki 2oo4
Hvað þarf til að hægt sé að þjálfa þessa
einstaklingana þannig að þeir komist á
þessi stórmót?
„Það þarf skilvirkari vinnubrögð. Það þarf
að ákveða ef efniviður er fyrir hendi, hvort
á að ná afreksárangri. Þegar það er klárt
þá er bara að leggja í hann. Það vantar
skilvirkni einna helst, ég meina að áætlun-
um sé raunverulega fylgt. Mér finnst of
mikið hálfkák í gangi og skortur á að menn
séu til í að stjórna og vilji taka ábyrgð. En
kannski er ekki að marka mig, ég er
aggressívur í svona málum og þoli illa
spjali fram og til baka um hlutina þegar er
löngu Ijóst hvað þarf að gera. Það vantar
einnig peninga til að fylgja eftir ákvörðunum
um að ná topp-heimsklassa afrekum. Það
verður t.d að vera hægt að greiða þjálfurum
laun og kostnað sem fylgir því að komast í
allra fremstu röð með íþróttamenn. Það er
bara grín að halda því fram að þessir hlutir
séu í lagi.“
Engin
markaðssetning
Hvert er hægt að
sækja fjármagn? Er
það eingöngu til fyrir-
tækja eða getur af-
rekssjóður ÍSÍ breytt
sínum starfsreglum?
,,Ef við lítum aðeins á
málið í heild sinni þá
höfum við þurft að vera
með endalausar tilfær-
ingar í íþróttinni. Þar af
leiðandi höfum við fáa
einstaklinga sem staldra
við í henni nógu lengi til
að ná árangri og það er
ákveðin mannfæð í
heildina tekið í frjálsum íþróttum, nema í
barna- og unglingaflokkum. Lítil umfjöllum í
fjölmiðlum er ástæða þess að íslenskir
frjálsíþróttamenn eru ekki þekktir fyrr en
þeir eru komnir það langt að geta helst
slegið heimsmet. Við höfum ekki geta
markaðssett okkur þannig að íþrótta-
fréttamenn eða þeir sem fara með fjölmiðla
hafi fengið áhuga á íþróttinni fyrr en hún er
komin á slíkt plan að hún er ekki saman-
burðahæf við aðrar íþróttir sem vel er verið
að fjalla um. Meiri umfjöllun er lykilinn að
því að við getum fengið meira fjármagn.
Fjármagn frá fyrirtækjum eða öðrum eig-
endum fjármagns kemur ekki nema það sé
þeim einhvers virði og það er lítils virði ef
frjálsíþróttafólk okkar birtist ekki í sjónvarpi
eða fjölmiðlum þar sem athygli fólks er og
peningarnir koma inn. Þetta er ekki flókið
samspil í mínum huga því meiri sem um-
fjöllunin er þá verður íþróttmaðurinn og
íþróttin verðmætari. Þá er hægt að fá meira
út úr fyrirtækjum og opinberum aðilum líka
því þetta rúllar allt sama hringinn."
Fjármagn frá fyrirtækjum
eða öðrum eigendum
fjármagns kemur ekki
nema það sé þeim
einhvers virði og það er
lítils virði ef
frjálsíþróttafólk okkar
birtist ekki í sjónvarpi eða
fjölmiðlum þar sem athygli
fólks er og peningarnir
koma inn.
Ég hef mælt með þessari
breytingu enda held ég að
mótið verði enn glæsilegra
og stemmningin enn meiri
en verið hefur. Ef þessar
breytingar ná fram að
ganga er ekki lengur hægt
að kasta rýrð á að keppnin
standi ekki undir nafni, sé
hvorki fugl né fiskur eins
og margir aðilar
íþróttabandalaganna hafa
haldið fram hingað til
Vantar athygli
Þannig að þú gagnrýnir fjölmiðla fyrir
slæglega umfjöllun í garð frjálsa
íþrótta?
„Ég veit ekki alveg hvern ég á að gagn-
rýna. Á ég að gagnrýna blaðamanninn eða
íþróttahreyfinguna? Hvar byrjar þetta?
Hvert er hlutverk frjálsíþróttadeilda og
Frjálsíþróttasambandsins? Hvaða hlutverk
hefur blaðamaðurinn? Hverjar eru hans
skyldur gagnvart íþróttinni og sögu hennar.
Eru þær einhverjar eða er þetta bara sölu-
mennska og spurning um athygli ? Hvar á
að byrja á þessu? Endapunkturinn er hins
vegar sá að á meðan fæst ekki meiri athygli
verður framgangur íþróttarinnar hægari."
Mikill metnaður í Skagfirðingum
Ef við snúum okkur að lokum aðeins að
landsmótinu aftur sem verður hérna
næsta sumar. Ætlarðu
að undirbúa þinn hóp
eitthvað sérstaklega
fyrir átökin á heima-
velli?
„Það er mikill metnaður í
okkur. Við unnum frjáls-
íþróttakeppnina á Egils-
stöðum 2001 og ætlum
okkur að gera það aftur.
Það táknar hins vegar
það að við þurfum að
bæta okkur. Mér heyrist á
mínu fólki að þau séu
stemmd fyrir því að ná
árangri á mótinu.“
Á 43. sambandsþingi
UMFÍ sem haldið var á
Sauðárkróki í október
var tekin sú ákvörðun að opna lands-
mótið öllum. Hvernig líst þér á þessa
breytingu?
„Mjög vel. Ég hef mælt með þessari breyt-
ingu enda held ég að mótið verði enn
glæsilegra og stemmningin enn meiri en
verið hefur. Með þessari breytingu er ekki
lengur hægt að kasta rýrð á að keppnin
standi ekki undir nafni, sé hvorki fugl né
fiskur eins og margir aðilar íþróttabanda-
laganna hafa haldið fram hingað til.“
Það eru því spennandi tímar framundan
hjá ykkur. Landsmót að ári og svo ný og
glæsileg aðstaða?
„Já, það er óskaplega gaman að lifa. Ég er
búinn að vera í þessu 25 ár og þetta verður
bara skemmtilegra með hverju árinu sem
líður.“