Skinfaxi - 01.10.2003, Side 17
Landsmót IJMPÍ á Sauöárkróki 2oo4
sem hefði ekki verið innan seilingar nema
með tilkomu landsmótsins hingað á Sauð-
árkrók. Ég held að bætt aðstaða verði mikil
vítamínssprauta tyrir íþróttalífið hérna í
Skagafirði.
Þá gefur slíkt mót héraðinu mikið því
þetta er stór og skemmtilegur viðburður
sem dregur að sér fjölda fólks. Þetta er
stórhátíð og hefur jákvæð áhrif í alla staði
fyrir héraðið og ekki bara
gagnvart keppnisíþróttunum.
Mótið verður því mikil auglýs-
ing fyrir Skagafjörð. Við erum
að leggja mikið í þetta, ekki
bara fjármagn, heldur er líka
stór hópur af fólki sem hefur
unnið mikið sjálfboðaliðastarf.
Ég held því að þetta muni
skila sér margfalt til baka í
góðri kynningu fyrir sveitarfé-
lagið. Þá er ég viss um að
íþróttaaðstaðan muni koma til
góðs ekki bara fyrir íþróttafólk
í Skagafirði heldur einnig í
öðrum nágrannahéruðum."
Hvert er þitt hlutverk sem formaður
landsmótsnefndar?
,,Að láta þetta mót og þessa samkomu
takast sem best bæði keppnislega og sem
fjölskylduhátíð. Ég kem að undirbúning
mótsins á marga vegu og sé til þess að allt
verði tilbúið þegar stóra stundin rennur
upp. Eigum við ekki að segja að ég sé
ábyrgur fyrir því að mótið muni takast sem
allra best bæði gagnvart keppendum og
öðrum gestum."
Stór hópur fólks tók sig saman
Það þarf að mörgu að huga í undir-
búningi slíks móts. Þótt tæpt ár sé enn í
mótið þá er undirbúningurinn farinn vel
af stað. Hvenær hófst undirbúningurinn
og hvernig miðar honum?
„Undirbúningurinn hófst raunverulega þeg-
ar stór hópur fólks í héraði tók sig saman
um það að sækja um landsmótið. Alvöru
undirbúningur hófst síðan sumarið 2002
þegar farið var í framkvæmdir vegna
íþróttaleikvangsins. Frá þeim tíma hefur allt
verið á fullu og miðar undirbúningi vel.“
Hverjar eru stærstu framkvæmdirnar
fyrir slíkt mótshald?
,,Það er náttúrulega gerð nýs íþróttaleik-
vangs hérna á Sauðárkróki sem verður
besti frjálsíþróttavöllur í þessum heims-
hluta,“ segir Bjarni kokhraustur. „Völlurinn
verður ákveðið aðdráttarafl fyrir frjáls-
íþróttafólk hér á landi og jafnvel erlendis
líka. Nú fyrst getum við haldið alvörumót
með bættri aðstöðu, jafnvel alþjóðlegmót
því efnið sem við notum í völlinn og öll
aðstaða stenst samanburðinn við velli
erlendis þar sem alþjóðlegmót er haldin.
Framkvæmdirnar miðast þó ekki eingöngu
við íþróttavöllinn við þurfum t.d. að útbúa
tjaldsvæði, taka til hendinni í sundlauginni
o.fl. Þannig að það þarf að mörgu að huga
fyrir utan mótshaldið sjálft og skipulagn-
ingu.“
Völlurinn verður ákveðið
aðdráttarafl fyrir frjáls-
íþróttafólk hér á landi og
jafnvel erlendis líka. Nú
fyrst getum við haldið
alvörumót með bættri
aðstöðu, jafnvel
alþjóðlegmót því efnið sem
við notum í völlinn og öll
aðstaða stenst
samanburðinn við velli
erlendis þar sem
alþjóðlegmót er haldin.
Það er ekki hægt að segja annað en þið
séuð stórhuga?
„Já, fyrst ákvörðun var tekin um að halda
landmsótið þá ætlum við að nýta okkur það
til fulls. íþróttaleikvangurinn sem slíkur
verður eins og best verður á kosið.“
Þótt landsmótsnefnd skili veigamiklu
starfi þá eru væntanlega fleiri sem koma
að undirbúningnum og mótshaldinu?
„Já það rétt. Það er hópur fólks sem starf-
ar, og mun fara af stað á næstu vikum, í
ýmsum starfs- og undirbúningsnefndum í
einstökum keppnisgreinum. Það er því stór
hópur fólks sem mun koma að mótinu.
Þetta eru Skagfirðingar yfir höfuð sem
munu aðstoða okkur og svo munu sjálf-
boðaliðar frá öðrum ungmennafélögum
einnig verða okkur til halds og trausts. Við
þurfum mikinn fjölda sjálfboðaliða til starfa
og það hefur gengið vel hingað til að fá fólk
til að starfa fyrir okkur.“
Fer mótið eingöngu fram á Sauðár-
króki? „Já, það er miðað við að allt mótið
fari fram á Sauðárkróki. Þetta fer reyndar
eftir þátttökufjölda og ef hann fer fram úr
væntingum þá getur verið að við þurfum að
fara aðeins út fyrir Sauðárkrók."
Eru einhverjar nýjungar hjá
ykkur í mótshaldinu?
„Við vorum með ákveðnar hug-
myndir, um að fjölga greinum til
stiga, sem voru samþykktar á
sambandsþingi UMFÍ í október.
Þetta eru greinar eins og
kajakaróður, hjólreiðar o.fl. Þá
eru sumar greinar sem hafa
bara verið karla- eða konu-
greinar. Við viljum breyta þeim
og hafa þau fyrir bæði kynin
eins og t.d. körfubolti kvenna
sem ekki hefur verið á lands-
móti. Þá sendum við einnig
tillögu inn á þing UMFI um að
hvert ungmennasamband geti skráð fimm
þátttakendur í hverja grein en aðeins þrír
fyrstu frá hverju félagi fái stig og var sú
tillaga einnig samþykkt. Hingað til hefur
bara mátt skrá þrjá frá hverju félagi í hverja
grein fyrir sig. Hugsunin með þessu er sú
að fleiri fái tækifæri til að spreyta sig á
mótinu því oft er stór iðkendafjöldi hjá
hverju félagi í ákveðinni grein en aðeins
þrír eru valdir til þátttöku. Eigum við ekki að
segja að þetta sé ungmennafélagsandinn í
hnotskurn, að leyfa öllum að vera með.
Þetta gæti því þýtt fleiri þátttakendur á
mótinu. „
Þó að mörgu hafi verið áorkað undan-
farið þá er væntanlega margt eftir óunn-
ið „Það er alveg rétt og það má búast við
að spennunni verður haldið til haga alveg
fram að síðasta dag fyrir landsmótið."
Ætlar formaðurinn að reyna að hala inn
einhver stig fyrir UIVISS? „Já, það hefur
verið rætt. Það verður bara að koma í Ijós
hvort maður fari ekki að æfa eitthvað með
vorinu til að koma sér í from. Við ætlum
okkur stóra hluti og ætlum að reyna að
virkja sem flesta Skagfirðinga til að taka
þátt í mótinu. Annars vil ég bara hvetja alla
landsmenn til að mæta á Sauðárkrók
næsta sumar. Þetta verður mikil og góð
hátíð fyrir keppendur og alla aðra gesti. Við
ætlum að brydda upp á allskyns uppá-
komum fyrir utan [þróttakeppnina til að
gera þetta sem skemmtilegast fyrir alla.
Fólk á að geta komið þótt það sé ekki í
íþróttum og fundið eitthvað við sitt hæfi.“