Skinfaxi - 01.10.2003, Síða 22
Logi Ölafsson landsliösþjálfari íslands
Stigum skref fram á við
Það verður dregið í riðla fyrir undan-
keppni HM í desember. Það er ómögu-
legt á þessari stundu að segja hverjir
verða okkar mótherjar en hvar liggja
möguleikar okkar að komast á HM
2006?
„Möguleikamir liggja fyrst og fremst í góð-
um drætti svipað og gerðist síðast, en það
er einn hængur á. Nú hafa alþjóðasamtökin
ákveðið að fjölga liðum í hverjum riðli til að
fá fleiri alvöruleiki og
fækka vináttuleikjum sem
stóru þjóðirnar eru mjög
mótfallnar. Þetta gerir
það að verkum að við
getum hugsanlega falllið
úr þriðja styrkleikaflokki
niður í fjórða og fáum þar
af leiðandi þrjú sterk lið
fyrir ofan okkur í stað
tveggja. Það verða s.s.
átta riðlar í stað tíu áður.
Það verður því 51 þjóð
sem keppir um 13 laus
sæti en Þjóðverjar sem
eru gestgjafar komast
beint inn sem 14 liðið.
Við erum þó stað-
ráðnir í að selja okkur
dýrt og halda áfram sem
frá var horfið í EM keppninni. Við teljum
okkur hafa stigið skref fram á við í síðustu
keppni og ætlum að byggja ofan á þá
reynslu. Okkur hlakkar til að sjá hverjir mót-
herjar okkar verða og síðast en ekki síst að
leika gegn þeim.“
Nú hefur íslenska liðið staðið sig ágæt-
lega undanfarin ár en við höfum aldrei
verið eins nálægt því að komast áfram
eins og núna. Hvað er það sem gerir það
að verkum að eins fámenn þjóð eins og
ísland nái þessum árangri eins og raun
ber vitni?
,,Það hefur sýnt sig í leikjum hjá íslenska
landsliðinu að liðið nær aldrei árangri nema
þegar góður andi, sam- og liðsheildin eru til
staðar. Ég held að það hjálpi okkur mjög
mikið að þjóðin er fámenn þar sem leik-
menn liðsins þekkjast mjög vel og eru góðir
vinir. Þeir hlakka því ávallt til að hittast og
taka þátt í svona verkefnum. Ég held að
það hjálpi okkur við að búa til svona góða
liðsheild. Ef við skoðum t.d. bara samstöð-
una hjá þýska liðinu eins og hjá markvörð-
unum Oliver Khan og Jenz Lhemann sem
skiptast ekki á setningum þegar þeir koma
saman. Þeir munnhöggvast heldur frekar í
blöðunum hvor þeirra eigi að vera í liðinu.
Ég sé þetta ekki fyrir mér á milli Árna Gauts
Arasona og Birkis Kristinssonar. Þeir væru
frekar tilbúnar að fara hönd í hönd útaf vell-
inum,“segir hann brosandi. ,,Til þess að
afburðaárangur náist þarf að vera góð og
mikil samstaða innan liðsins og gagn-
kvæmt traust á milli manna.."
Megum ekki glata vinnumóralnum
Nú höfum við aldrei komist alla leið -
hvað er það sem okkur vantar uppá?
„Til að íslenska liðið verði betra þurfum við
fleiri betri einstaklinga. Við þurfum að geta
leyft okkur að fara framar á völlinn með
liðið og þá þurfum við betri fótboltamenn
sem geta haldið boltanum betur hjá sér og
ekki tapað honum á hættulegum svæðum.
Þetta gerum við ekki nema með betri
einstaklingum sem ráða betur við og hafa
betra vald á boltanum. En
jafnvægið í okkar liði er
gott því við erum bæði
með leikmenn sem geta
haldið boltanum en við
megum samt aldrei glata
vinnumóralnum hjá liðinu
framlegðinni inn á vell-
inum. Um leið og það er
farið hjá okkur þá eigum
við ekki möguleika."
íslandsmótinu lauk í
september. Er einhver
gerjun hérna heima og
eru einhverjir ungir og
efnilegir leikmenn að
koma upp sem geta orð-
ið góðir knattspyrnu-
menn?
,,Já, ég held að með útflutningi á leikmönn-
um í gegnum tíðina höfum við fengið
tækifæri til að leyfa ungum drengjum að
spreyta sig þótt við höfum verið að taka inn
mikið af útlendingum. Þeir drengir sem
hafa kannski vakið mestu athyglina í þessu
íslandsmóti eru Veigar Páll Gunnarsson og
Kristján Sigurðsson. En miðað við árangur
U-21 landsliðsins virðast ekki vera margir
afburðaleikmenn á leiðinni. Við þurfum
kannski að leggja meiri rækt við einstak-
linginn í þjálfuninni."
Hústjórnin sér um breytingarnar samdægurs
og prentar nöfnin ut á venjulegan prentara.
Tímasparandi og þjónustuvænt!
Viðhaldsfrítt skiltakerfi fyrir
Sigurbjörn hættir í stjórn UMFI
Sigurbjörn Gunnarsson
gjaldkeri UMFÍ sem setið
hefur í stjórn UMFÍ í átjan
ár á síðustu 20 árum gaf
ekki kost á sér til endur-
kjörs til stjórnar UMFÍ á
þinginu á Sauðárkróki. Mik-
il ánægja var með ársreikn-
inga UMFÍ sem Sigurbjörn
lagði fyrir þingið og skilar
Sigurbjörn af sér góðu búi.
Björn B. Jónssson formað-
ur veitti Sigurbirni þakkarvott frá UMFÍ í lok þings. í stuttri kveðju
Sigurbjarnar kom meðal annars fram að hann hefði áhuga á að
starfa í áfram í þágu UMFÍ en á öðrum vettvangi en í stjórn
félagsins. Þá gáfu þau Sigurður Viggósson, Hildur Aðalsteinsdóttir
og Krístin Gísladóttir sem setið hafa í stjórn UMFÍ ekki kost á sér
áfram og þakkar UMFÍ þeim öllum fyrir vel unnin störf.
www.merkismenn.is