Skinfaxi - 01.02.2004, Blaðsíða 3
ritstjdrinn
Spennandi
sumar
framundan
Landsmótssumar að bresta á
Landsmót UMFÍ er ávallt beðið eftir með mikilli eftirvæntingu af
ungmennafélögum sem og öðrum landsmönnum. Margir hafa lagt
hönd á plóginn við undirbúning 24. Landsmóts UMFÍ og 7.
Unglingalandsmóts UMFÍ, sem fram fara á Sauðárkróki. Keppnis-
aðstaðan á Króknum hefur tekið miklum stakkaskiptum og er orðin
hin glæsilegasta. Fróðlegt verður að sjá hvernig keppnismönnum
reiðir af á mótunum og verður sjálfsagt hart barist þótt léttleikinn sé
ávallt í fyrirrúmi. í Skinfaxa er m.a. rætt við Pál Kolbeinsson for-
mann Unglingalandsmótsnefndar.
Skinfaxi
RITSTJÓRI
Valdimar Tryggvi Kristófersson
LJÓSMyNDIR
Sigurjón Ragnar og Páll Guðmundsson
BLAÐAMAÐUR
Skapti Örn Ólafsson
UMBROT OG HÖNNUN
Valdimar Tryggvi Kristófersson
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Sæmundur Runólfsson
ÁByRGÐARMAÐU R
Björn B. Jónsson
AUGLýSINGAR Öflun
PRENTUN Prentmet
PRÓFARKALESTUR Aðalbjörg Karlsdóttir
PÖKKUN Ás Vinnustofa
Þótt landsmótin skipi stórann sess í hugum margra er margt annað
spennandi að gerast í sumar eins og fram kemur í viðtali við Valdi-
mar Gunnarsson fræðslustjóra, sem upplýsir okkur um verkefni
fræðslunefndar UMFÍ í sumar.
Björn B. Jónsson formaður UMFÍ skrifar grein um umhverfismálin
og Birgir Gunnlaugsson stjórnarmaður skrifar áhugaverða grein um
stöðu félaga hér á landi. Þá voru nokkrir alþingismenn gómaðir og
m.a spurðir um starfsemi UMFÍ og er þar á ferð nokkuð skemmti-
legur lestur. Þá getur yngri kynslóðin fundið ýmislegt við sitt hæfi í
blaðinu en viðtal er við Kalla Bjarna sigurvegara Idol-keppninnar.
Einnig er viðtal við stúlku að nafni Rakel Pálsdóttir en hún sigraði í
söngkeppni Samfés fyrir ekki alls löngu. Ungmennafélaginn Ólafur
Örn Bjarnason sem leikur nú knattspyrnu með Brann í Noregi gerir
okkur grein fyrir stöðunni. Unnar Steinn Bjarndal er nýskipaður
formaður ungmennaráðs UMFí og hann upplýsir lesendur um
hlutverk nefndarinnar. Margt fleira er tekið fyrir í þessu 1. tölublaði
Skinfaxa í ár.
Þakka samfylgdina
Um þessar mundir eiga sér stað ákveðnar skipulagsþreytingar
innan þjónustumiðstöðvar UMFÍ í Fellsmúlanum og mun Skinfaxi
t.a.m. færast yfir á starfsfólk þjónustmiðstöðvarinnar. Þetta er því
mitt síðasta blað og vil ég nota tækifærið og þakka starfsfólki á
þjónustumiðstöðinni, fólkinu sem hefur skipað ritnefnd Skinfaxa á
meðan ég hef ritstýrt blaðinu og viðmælendum mínum kærlega fyrir
samfylgdina.
Með kveðju
Valdimar Tryggvi Kristófersson
Það er Idol-sigurvegarinn Kalli Bjarni
sem prýðir forsíðu Skinfaxa að þessu
sinni. Það var Sigurjón Ragnar,
Ijósmyndari Skinfaxa, sem tók
myndina af Kalla Bjarna og öðrum
viðmælendum blaðsins
RITSTJÓRN
Anna R. Möller
Sigurlaug Ragnarsdóttir
Birgir Gunnlaugsson
Ester Jónsdóttir
STJÓRN UMFÍ
Björn B. Jónsson
Helga Guðjónsdóttir
Anna R. Möller
Ásdís Helga Bjarnadóttir
Birgir Gunnlaugsson
Björn Ármann Ólafsson
Hringur Hreinsson
Einar Jón Geirsson
Einar Haraldsson
Ingi Þór Ágústsson
Jóhann Tryggvason
SKRIFSTOFA SKINFAXA
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ UMFÍ
FELLSMÚLA 26, 108 REyKJAVÍK
SÍMI: 568-2929, FAX: 568-2935
NETFANG: umfi@umfi.is
HEIMASÍÐA: www.umfi.is
Ársáskrift af Skinfaxa kostar 1.796.- krónur
Skinfaxi kemur út 4-5 sinnum á ári.