Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.2007, Side 3

Skinfaxi - 01.08.2007, Side 3
Bjöm B.JótvswK; jvrmAxhM UMPÍ: i Hreyfingin í meðbyr Góðir ungmennafélagar. Það hefur verið gaman að vinna að ungmennafélagsmálum síðustu árin. Undirritaður er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að sitja í stjórn Ungmennafélags (slands síðustu tólf árin, fyrst sem vara- formaður og síðan sem formaður samtakanna. Á margan hátt hafa undanfarin ár verið gjöful og hreyfingin haft með- byr sem hefur m.a. komið fram í fjölgun félaga. Frá árinu 2000 hefur félög- umfjölgað umfjórðung.Við höfum farið úr sextíu og fimm þúsund félög- um í tæp níutíu þúsund á þessu stutta tímabili. Eins og fram kemur í ársskýrslu UMFl þá hefur verið unnið að mörgum skemmtilegum verkefnum síðustu árin og er ekki auðvelt að gera upp á milli þeirra. Menning og æska (Kultur og Ungdom) árið 2000, bygging Þrastalundar, breyting á innra skipulagi UMF( með tilkomu landsfulltrúa og svæðisfulltrúa, efling ungmennastarfs innan hreyfingarinnar, stórefling almenningsíþrótta og íþrótta eldri ungmennafélaga, undirbúningur að uppbyggingu aðalstöðva okkar í miðbæ Reykjavíkur, tilkoma Unglinga- landsmóts um verslunarmannahelgi, endurreisn og uppbygging norrænu ungmennasamtakanna NSU, uppbyggingu tómstundabúðanna að Laug- um, stofnun Vestnorrænu ungmennasamtakanna, stofnun Umhverfissjóðs UMFÍ til minningar um Pálma Gíslason, stórátak í vímuefnavörnum og vörnum gegn vá um kynferðislegt ofbeldi barna og undirbúningur Play the Game-ráðstefnunnar. Ekki er hægt að gera upp á milli þessara eða annarra verkefna sem hafa verið í gangi síðustu árin. Það hefur einnig verið skemmtilegt að vinna að algjörum viðsnúningi í aðkomu opinberra aðila að starfi okkar með stórauknum fjárframlögum. Það hefur gert það að verkum að við höfum m.a. getað aukið starf okkar til muna, m.a. í forvörnum. Að lokum þakka ég öllum ungmennafélögum fyrir samstarfið síðustu árin. íslandi allt. Björn B. Jónsson, formaður UMFl Gunnar Birgisson sæmdur gullmerki UMFÍ Við opnun sögusýningar UMFÍ var Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, sæmdur gullmerki UMFÍ. Það var Björn B. Jónsson, for- maður UMFl, sem sæmdi Gunnar merkinu. Gunnar var formaður landsmótsnefndar og stýrði undirbúningi 25. Landsmóts UMFl af miklum myndarskap. Margrét Lára Viðarsdóttir í heimsókn á Selfossi Margrét Lára Viðarsdóttir hefur í sumar heimsótt ýmsa staði á landinu og unnið að útbreiðslu kvennaknattspyrnu. I sumar kom hún m.a. í heimsókn á Selfoss og spjallaði við ungar knatt- spyrnukonur. Eva Gríms- dóttir var svo heppin að fá lansliðstreyju að gjöf frá Margréti Láru, en Margrét valdi tvær stelp- urafhandahófiáfyrir- lestri sem hún hélt. Eva Grímsdóttir er leik- maður á yngra ári í 4. flokki hjá Umf. Selfoss. SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags Islands 3

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.