Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2007, Blaðsíða 32

Skinfaxi - 01.08.2007, Blaðsíða 32
Góð þátttaka var í verkefninu Fjölskyldan á fjallið hjá HSK í sumar. PjöUfcyLLm á, Víð ætlum að halda þessu verkefni ótrauð áfram Verkefninu Fjölskyldan á fjallið þetta sumarið lauk fyrir skemmstu. Á fjöllunum eru gestabækur sem fólk hefur ritað nöfn sín í, sem stað- festir þátttöku þess í verkefninu. Mjög góð þátttaka hefur verið í þessu verkefni undanfarin ár og má ætla að svo hafi einnig verið í sumar sem leið. Gestabókum verður safnað á næstunni og þá kemur í Ijós hve margir gengu á fjöll í sumar. Þegar allar bækur hafa borist verða þrír heppnir þátttakendur dregnir út og hljóta sérstaka viðurkenningu fyrir. Héraðssambönd tilnefndu ákveðin fjöll á sínu svæði. HSK tilnefndi Þórólfsfell og Langholts- fjall ÍHrunamannahreppi. Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK, sagði í spjalli við Skinfaxa að verk- efnið á þeirra svæði hefði gengið að óskum í sumar og sér sýndist þátttakan almennt hafa verið góð. „Við vorum sérlega ánægðir með þetta ár. Ganga á Þórólfsfellið tókst mjög vel og var vel sótt en algjör metþátttaka vará Langholtsfjallið því að um 200 manns tóku þátt í göngunni. Við ætlum að halda þessu verkefni ótrauðir áfram enda um þarft og spennandi verkefni um að ræða. Við ætlum að draga út þátttakendur í sumar og þeir hep- pnu verða verðlaunaðir sérstaklega fyrir þátttökuna," sagði Engilbert Olgeirsson. Langholtsfjall HSK stóð fýrir fjölskyldugöngu á Langholtsfjall í Hrunamannahreppi fimmtudaginn 7.júní. Áðuren lagt var af stað á fjallið var þess sérstak- lega minnst að 100 ár eru liðin síð- an Friðrik 8. Danakóngur fór með fylgdarliði um Kóngsveginn og i 32 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.