Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2007, Blaðsíða 21

Skinfaxi - 01.08.2007, Blaðsíða 21
SujrÚAt Björk JaJwlrscLáUÍA', bœjMdjári J Afaweyri: AKUREYRI Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri. Spennandi tímar fram undan Skrifað hefur verið undir nýjan og endurskoðað- an samning milli Akureyrarbæjar og fþrótta- félagsins Þórs um uppbyggingu á félagssvæði Þórs. Markmið samningsins er að bæta verulega æfinga- og keppnisaðstöðu fyrir knattspyrnu á félagssvæði Þórs sem og að byggja þar upp fuil- kominn frjálsíþróttavöll. Á þessu umrædda svæði mun 26. Landsmót Ungmennafélags fslands verða haldið 2009. Með samningnum verður Þór tryggt aukið svæði til æfinga. Einnig verður keppnisvöllurinn tekinn upp og í hann lagðar hitalagnir ásamt nýju grasi. Þá mun verða reist sameiginleg stúka fyrir knattspyrnu og frjálsar íþróttir á svæðinu sem mun þæta alla aðstöðu bæði Þórs og Ung- mennafélags Akureyrar verulega. Það er sameiginlegur skilningur samnings- aðila að um góðan og hagstæðan samning sé að ræða og að spennandi tímar séu fram undan við uppbyggingu svæðisins. Erum að skapa heilsusamlegt umhverfi fyrir bæjarbúa Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, er mjög ánægð með samninginn og segir mjög spennandi tíma fram undan á Akureyri. Skinfaxi sló á þráðinn til bæjarstjórans og innti hann frekar eftir samningnum og því hvað hann hefði í för með sér til framtíðar litið. - Nú blasir við mikil uppbygging íþrótta- mannvirkja á Akureyri. Þetta hlýtur að verða mikil lyftistöng fyrir iþróttalíf almennt séð á Akureyri þegar til framtíðar er litið? „Já, það er óhætt að segja að spennandi tímar séu fram undan á Akureyri hvað varðar uppbyggingu íþróttamannvirkja og þjónustu fyrir bæjarbúa og gesti okkar á því sviði. Við höfum á undanförnum árum verið mjög dugleg við að byggja upp og munum halda því áfram á næstu árum. Má segja að flestar þær íþrótta- greinar sem stundaðar eru hér undir merkjum (þróttabandalags Akureyrar verði komnar með mjög góða aðstöðu fyrir iðkendur sína innan fárra ára. Við teljum að með þessari öflugu upp- byggingu séum við að skapa íþróttahreyfing- unni aðstæður til að vaxa og dafna. Þetta mun renna styrkari stoðum undir aukna þátt- töku barna og unglinga í íþróttum og gefa afreksíþróttafólki möguleika tii að ná langt í sinni íþróttagrein." - Það hefur tekið töiuverðan tima að landa þessum samningi. Er ekki mikill léttir að hann skuli vera kominn ihöfnogaðnú skuii vera hægt að hefjast handal „Það er rétt að samningarnir hafa tekið langan tíma en verkefnið er stórt og mikið og mikilvægast er að velja bestu kostina í stöðunni. Við erum enn innan þeirra tímamarka sem við höfum sett okkur vegna uppbyggingar fyrir Landsmót UMFf og til að bregðast við kröfum leyfishandbókar Knattspyrnu- sambandsins vegna knattspyrnumannvirkja." - Kostnaðaráætlun fyrirþessar framkvæmdir liggur fyrir. Hvað kostar að ráðast iþetta verkefni og tekur ekki ríkið á þátt iþeim með einhverjum hætti? „Það er Ijóst að verkefnin, sem tengjast þessum uppbyggingarsamningum, koma til með að kosta um hálfan miljarð króna. Við höf- um hafið viðræðurvið menntamálaráðherra um þátttöku í kostnaði við uppbygginguna á frjáls- íþróttaaðstöðunni enda hefur verið hefð fyrir því að ríkið leggi fram fjármagn í sambærilega uppbyggingu á undanförnum árum." - Margir vilja meina að uppbygging íþrótta- mannvirkja hafi áhrifá búsetu fólks. Ertu sammála því? „Já, ég tek heilshugar undir það. Ég tel að íþróttaaðstaða, sterk íþróttafélög og öflugt menningarlíf almennt séu þeir grundvallar- þættir sem fólk horfir til þegar það velur sér búsetu. Breytingar í samfélaginu á undanförn- um árum hafa leitt til aukins frítíma fjölskyld- unnar og því er mikilvægt að fjölbreytt og öflug afþreying sé í boði. Góð aðstaða til íþróttaiðk- unar skapar líka fjölmörg tækifæri fyrir ferða- þjónustu sem er jafnframt atvinnuskapandi." - 26. Landsmót UMFl verður haldið á Akureyri 2009. Er ekki spennandi fyrir Akureyri að fá þetta stóra mót til sín en þá verður heil öld síðan að fyrsta mótið var haldið, og það einmitt á Akureyri? „Þegar fulltrúar Ungmennafélags Akureyrar og Ungmennasambands Eyjafjarðar fóru þess á leit við Akureyrarbæ að standa að baki umsókn þeirra til að halda mótið á Akureyri 2009 var þvi auðsvarað. Bæjaryfirvöld eru bæði stolt og ánægð með að þetta stóra afmælismót skuli fara fram hér í bænum og við erum staðráðin í að leggja okkur fram í að halda mótið með glæsibrag," sagði Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri. SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 21

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.