Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2007, Blaðsíða 31

Skinfaxi - 01.08.2007, Blaðsíða 31
Bjöm B.Jáwíum lœtw afformtMwkM í UMFÍ: Björn B. Jónsson í ræðustóli á Akureyri þar sem samningar voru undirritaðir varðandi Landsmótið sem haldið verður á Akureyri 2009. „Skemmtilegur tími með öflugu fólki" Björn B. Jónsson, formaður Ungmennaféiags íslands, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs á þingi UMFÍ sem haldið verður í október. Björn tilkynnti þessa ákvörðun sína á stjórnarfundi í Skagafirði um helgina. Björn hefur setið í 12 ár í stjórn UMF(, sex ár sem varaformaður og síðan önnur sex ár sem formaður. Áðuren Björn kom til starfa hjá UMFÍ var hann formaður HSK 1988-1990. „Að starfa í 12 ár í svona stórri hreyfingu, eins og UMF( er, verður að teljast góður tími. Mér finnst hollt að nú eigi sér stað endurnýjun og gott fyrir hreyf- inguna að fá inn nýtt blóð. Það eru spennandi tímar fram undan hjá UMF( en fljótlega hefst bygging á nýjum höfuðstöðvum ÍTryggvagöt- unni sem ráðgert er að taka í notkun 2009. Það er gott að nýr formaður fái tíma til að taka þátt í þeirri uppbyggingu. Þó að ég láti af formennsku á þinginu í haust vonast ég eftir að fá að starfa áfram í hreyfingunni," sagði Björn B. Jónsson. Björn sagðist búinn að eiga frábæran og skemmtilegan tíma þessi tólf ár (stjórninni. Hann hefði á þessum tíma unnið með öflugu fólki sem hefði verið sér afar dýrmætt. „Ég leit á það sem ákveðið tækifæri í lífinu að fá að stjórna svona öflugum samtökum. Þetta tækifæri fékk ég og það gaf mér mikið," sagði Björn B. Jóns- son. - Hvað er það sem stendur upp úrþegarþú líturyfirfarinn veg? „Það kemur margt upp í hugann. Fyrst skal nefna endurskipulagningu á innra starfi UMF( og það finnst mér hafa skipt miklu máli. Margir hafa verið velviljaðir hreyfingunni og er hægt að nefna stjórnvöld og alþingismenn í því sambandi. Uppbyggingin í Þrastaskógi er eftir- minnileg, bæði í skóginum sjálfum og nýja hús- ið. Undirbúningur að nýjum höfuðstöðvum UMF( hefur staðið yfir í þrjú ár en byggingar- framkvæmdir fara nú að hefjast. UMF( hefur staðið fyrir glæsilegum verkefnum í forvörnum. Unglingalandsmótin eru liður í þeim sem og einstök verkefni. Áræðni hreyfingarinnar var mikil að fara út í forvarnir í sambandi við kyn- ferðislegt ofbeldi á börnum. Uppbygging á ung- menna- og tómstundabúðunum er afar ánægju- leg en starfsemin þar er með blómlegum hætti. Það hefur líka verið ánægjulegt að sjá hvað stór hópur manna hefur alltaf verið tilbúinn að starfa með okkur." - Hvernig sérðu framtíð UMFÍfyrirþér? „Ég sé hreyfinguna stækka enn frekar á næstu árum. Við eigum eftir að starfa meira í menningarmálum en meðtilkomu nýrra höfuð- stöðva í Reykjavík opnast miklir möguleikar í þeim efnum," sagði Björn B. Jónsson. V sooa 2B.LANDSMOT UMFÍ W UF* B elkomin til UFÁ >r VIRKNI BYGGINGAVERKTAKI BRIM SEAFOOD ARKITEKTAR B0LH0LTI8 WWW.ARKTHING.IS 4^SPM www.spm.is I SUÐURLANDSSKÓGAR SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands 31

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.