Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2007, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.08.2007, Blaðsíða 28
Fréttir úr éweyfuujUAtJU Undirbúningur að Play the Game á lokastigi: í mörg horn að líta Undirbúningur fyrir PlayThe Game-ráðstefnuna, sem haldin verður á Grand Hótel dagana 28. október til 1. nóvember, er nú á lokastigi en undirbúning- ur hefur staðið yfir í upp undir ár. Ráðstefnan er einn liður í 100 ára afmæli UMFÍ. Congress Reykjavík hefur haft veg og vanda af undirbúningi ráð- stefnunnar í samvinnu við forsvarsmenn Play the Game og UMFÍ. Þorbjörg Þráinsdóttir, verkefnastjóri hjá Congress Reykjavík, sem hefur undirbúning ráðstefnunnar á sinni könnu, sagði í mörg horn að líta þegar ráðstefna á borð við Play the Game er undirbúin. „Það þarf að bóka sali, gistingu og vinna síðan náið með undirbún- ingsnefndinni að því sem snýrað öllum undirbúningi. Einnig þarfað vinna með birgjum og hótelum. Það er að mörgu að hyggja þegar kemur að ráðstefnuhaldi en þetta er fjölbreytt, spennandi og skemmtilegt starf," sagði Þorbjörg. Hún sagði Play the Game svona meðalstóra ráðstefnu en Congress Reykjavík hefði tekið að sér ráðstefnu með allt að 1200 manns. Birna B. Berndsen og Þorbjörg Þráinsdóttir, verkefnastjórar hjá Congress Reykjavík, og Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFl, eftirundir- ritun samstarfssamnings. Bikarkeppni FRÍ ífrjálsum íþróttum: UMSS keppir í 1. deild að ári Skagfirðingar unnu sigur í Bikarkeppni FRÍ 2. deild sem fórfram á Sauðárkróksvelli helgina 13.-14. september en keppnin var í umsjón UMSS. Sameiginlegt lið UMSE/UFA sigraði karlahluta keppninnar og eru því bikarmeistarar karla 2. deildar. UMSE/UFA hlutu 20 stig en UMSS 19 stig í karlahluta keppninnar. UMSS sigraði hins vegar kvennakeppnina með 22 stigum en UMSE/UFA hlaut 16 stig. Skagfirðingar eru því bikarmeistarar kvenna. UMSS sigraði jafnframt heildarstigakeppnina með 41 stigi en UMSE/UFA fengu 36 stig. Skagfirðingar teljast því bikarmeistarar 2. deildar og hafa unnið sér keppnisrétt í 1. deild að ári. Stigakeppni karla: UMSE/UFA 20 stig, UMSS 19 stig. Stigakeppni kvenna: UMSS 22 stig, UMSE/UFA 16 stig. Heildarstigakeppni: UMSS 41 stig, UMSE/UFA 36 stig. 1 Vinnum saman 1907 - 2007 landgræðsla i 100 ár Græðum ísland Landgræðslufræ Ef þú þarft að græða mela og rofabörð eða rækta fallega grasflöt eigum við fræið handa þér. Ráðgjöf um val á fræi við mismunandi aðstæður. Landgræðsla ríkisins Gunnarsholti, 851 Hellu Sími 488-3000, símbréf 488-3010, land@land.is, www.land.is i 28 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.