Skinfaxi - 01.08.2007, Blaðsíða 16
Líf og fjör á ungmennaviku
Dagana 29.JÚIÍ - 5. ágúst 2007 var
Ungmennavika NSU (Nordisk Sam-
organisation for Ungdomsarbejde)
haldin í Helsjön í Svíþjóð. Við vorum
fjögursem fórum á vegum og með
stuðningi UMFl frá Islandi; Auður
Kjartansdóttir frá Stykkishólmi, Guð-
mundur Snorri Sigfússon frá Hvann-
eyri, Jónmundur Magnús Guð-
mundsson frá Arnþórsholti i Borgar-
firði og fararstjórinn okkar, hún Ásdís
Helga Bjarnadóttir úr stjórn UMFl.
Þátttakendurnir voru aiis 33, frá
aðildarféiögum NSUí Finnlandi, Sví-
þjóð, Danmörku, Suður-Slésvík í
Þýskatandi og Græniandi auk
Islands. Á Ungmennavikum eralltaf
ákveðið þema fyrir hverja viku og
núna varþemað „Ungdom i Rörelse".
Þemanu var vei fylgt eftir í ár þar sem
við ferðuðumst mikið kringum dval-
arstaðinn. Lagt var afstað frá Kefla-
víkurflugvelli sunnudagsmorguninn
29.júlíog flogið beint til Gautaborg-
arþangað sem við vorum sótt og
ferjuð á dvalarstað okkar næstu vik-
una, Helsjön folkhögskola.
Mánudagur
Á hverjum morgni var vaknað kl.
08:00 og borðaður morgunmatur.
Um kl. 09:00 hófst dagskráin. Farið
var upp í rútu og lagt af stað á
slaginu 09:01 tilTjolöholmsslott
sem er kastali á suðurströnd Sví-
þjóðar. Leiðsögumaður sagði okkur
sögu kastalans og breskum skógar-
eigendum hans, en nú er kastalinn
í eigu sveitarfélagsins. Þarna mátti
sjá t.d. fyrstu rafknúnu ryksuguna
- sem hestar þurftu að draga í
kringum húsið og langir barkar
voru þræddir inn um gluggana
til að ryksuga innanstokksmuni.
Búið er að gera kastalann upp og
tekið er á móti hópum sem og
haldnar veislur, s.s. brúðkaups- og
hefðarveislur. Þegar skoðuninni var
lokið fórum við niður á strönd þar
sem okkur var skipt í hópa og við
fórum í leiki. Grillaðar voru pylsur.
Á meðan sumir skelltu sér í sjóinn
fóru aðrir í sólbað. Haldið var heim
um kl 17:00. Þegar heim var komið,
skelltum við okkur í vatnið fyrir
neðan skólann. Kvöldvaka undir
stjórn finnsksænsku þátttakend-
anna var svo um kl. 20:00-21:00.
Þegar henni var lokið var kvöldkaffi
og síðan tekið í spil.
Þriðjudagur
Eftir morgunmatinn var okkur skipt
í þrjá hópa. Fyrsti hópurinn fór og
lærði bak-, handar- og andlitsnudd
hjá sænskri konu sem búið hafði
við Hvammstanga í nokkurn tíma
og talaði íslensku. Þægilegt fyrir
okkur! Næsti hópur fór og lærði að
tálga úr tré, s.s. smjörhnífa,
servíettuhringi o.fl. Þriðji hópurinn
vann úr járni ýmis listaverk. Hver
hópur var á hverjum stað í tvo tíma.
Um kvöldið sáu DGI - dönsku
krakkarnir - um skemmtunina og
kynntu starfsemi félagsins og stóðu
fyrir ýmsum leikjum. Eftir það var
kvöldkaffi, spjall, spil og fleira.
Miðvikudagur
Við vöknuðum eins og vanalega
klukkan 8 og lögðum af stað kl. 9 til
Varberg. Klukkan 10:00 skoðuðum
við stórt virki og fangelsi með leið-
sögumanni. Eftir leiðsögnina löbb-
uðum við á ströndina þar sem var
búið að grilla hamborgara. Eftir
átið fórum við í sandkastalakeppni.
Auðvitað stóðum við okkur frábær-
lega! Eftir sandkastalakeppnina
fórum við íslensku hraustmennin
ásamt fleirum í sjóinn. Hann var
mjög heitur miðað við sjóinn á
Islandi - alveg frábært. Þegar
klukkan sló 16:00 hélt hópurinn
heim til Helsjön og fékk sér mat
í gogginn. Þjóðverjarnir frá SdU
- Suður-Slésvík - sáu um kvöld-
skemmtunina eftir matinn.
Fimmtudagur
Það var vaknað um átta og farið í
morgunmat. Síðan tóku allir draslið
sitt til og lögðu af stað til Gauta-
borgar um kl. 9:00. Rétt eftir að við
komum þangað fórum við í sigl-
ingu um síkin í Gautaborg og út á
fjörðinn. Fengum við þannig ágæta
leiðsögn um borgina. Þegar sigl-
ingunni var lokið fórum við í há-
degismat og fengum að velja milli
kjúklings og nautakjöts á fínum
veitingastað. Um kl. 14:00 máttum
við fara í Liseberg (stærsta tívolí
á Norðurlöndunum) eða annað
sem við vildum. Flestir mættu
snemma í garðinn til að prófa öll
tækin! Þvílíkt ævintýri - æðislegtl!
Heimförin varsíðan um kl. 21:00 og
voru aliir kátir með daginn. Síðan
tók kvöldhressing við þegar við
komum að Helsjön.
Föstudagur
Morgunmatur var að vanda kl 8:00
og var lagt af stað til Öströö-
búgarðsins. Þar var farið í„kinda-
safarí". Farið var inn í sérstaka
vagna sem voru dregnir af dráttar-
vél. Ekið var inn á tún þar sem
kindur voru á beit. Bóndinn sagði
okkur frá sauðfjárræktinni og
býlinu. Hann lét svo hundinn sinn
smala kindunum hvert sem hann
vildi. Síðan keyrðum við meira og
komum að hópi af loðnautum og
fengum við fræðslu um þau. Þá var
safaríið búið. Fórum við þá aftur að
býlinu og fengum veitingar. Þaðan
var keyrt til stærstu lágvöruversl-
unará Norðurlöndunum sem heitir
Gekás. Þar fengum við kynningu
á því hvernig verslunin varð til og
hvernig hún hefur þróast úr einni
16 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags Islands