Skinfaxi - 01.08.2007, Blaðsíða 4
Söautýntiiú UMFÍ C QerðMsafaU
Eins og komið hefur fram var sögusýning Ung-
mennafélags íslands opnuð í Gerðarsafni í Kópa-
vogi 5. júlí sl. en UMFl fagnar 100 ára afmæli
sínu á þessu ári. Það var Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti (slands, sem opnaði sögusýninguna
að viðstöddu fjölmenni. Sýningin verður opin til
3. ágúst. Það var List og Saga er annaðist upp-
setningu sýningarinnar, sem spannaði sögu
Ungmennafélags (slands í heila öld.
Sýningin var mjög áhugaverð en hana
prýddu margir hlutir og ómetanlegar myndir
í gegnum tiðina. Myndin var tekin við opnun
sýningarinnar. Frá vinstri eru Guðbjörg Kristjáns-
dóttir, forstöðumaðurGerðarsafns, Björn B.
Jónsson, formaður UMF(, Gunnar Birgisson,
bæjarstjóri í Kópavogi, Ólafur RagnarGrímsson,
forseti (slands, og Björn B. Björnsson, hönnuður
sýningarinnar.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir
U.S.VF
Margrét Helga Þorsteinsdóttir, USVH,
hafnaði í 5. sæti á Heimsmeistaramóti
ungmenna 17 ára og yngri í sjöþraut í
Ostrava íTékklandi í júlí í sumar, er hún
hlaut samtals 5.405 stig.
Margrét Helga sigraði í síðustu
grein þrautarinnar með yfirburð-
um, hljóp á persónulegu meti
2:17,72 mín. Hún varaðeins27
stigum frá 4. sætinu og 89 stigum
frá bronsverðlaunum á mótinu.
Þessi árangur Helgu er að sjálf-
sögðu nýtt meyjamet og þremur
stigum yfir (slandsmeti Kristínar
Birnu Ólafsdóttur (5.402 stig) í
kvennaflokki, en þar sem hæð á
grindum er 76,2 sm í þessu móti,
en ekki 84 sm eins og í kvenna-
þraut, er ekki um (slandsmet
kvenna að ræða, en það er eini
munurinn á þessari þraut og
sjöþraut kvenna.
Lokastaða sex efstu stúlkna í
sjöþrautinni:
1. Katerina Cachová.Tékklandi,
5.641 stig
2. Carolin Schafer, Þýskalandi,
5.544 stig
3. Elisa-Sophie Döber, Þýska-
landi, 5494 stig
4. Fride Linde, Svíþjóð, 5432 stig
5. Helga Margrét Þorsteinsdóttir,
(slandi, 5.405 stig
6. Patricia Marceiello, Sviss,
5.163 stig
Þess má geta að aðeins ein af
þeim stúlkum, sem voru fyrir ofan
Helgu, er jafnaldra hennar, en
hinar eru allar 17 ára á þessu ári.
Árangur Helgu Margrétar í
einstökum greinum:
100 m grindahlaup: 14,56 sek.
Hástökk: 1,63 metrar
Kúluvarp: 11,90 metrar
200 m hlaup: 25,31 sek.
Langstökk: 5,79 metrar
Spjótkast: 35,40 metrar
800m: 2:17,72 mínútur
Þetta er besti árangur íslensks
keppanda á HM ungmenna frá
upphafi. Einar Daði Lárusson náði
7. sæti í áttþraut á mótinu.
4 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands