Skinfaxi - 01.08.2007, Blaðsíða 7
\
►
f
RitvíjáraœjyaM - Jók KrMjÓH. SÍMurðsum
Máttur UMFÍer mikill
Það hefur verið í nógu að snúast hjá Ungmennafélagi (slands á 100 ára
afmæli hreyfingarinnar. Aldarafmælisins hefur verið minnst með ýmsum
hætti enda margs að minnast á glæstri göngu. Sögusýning UMFf i Gerðar-
safni var metnaðarfull og gerði starfsemi hreyfingarinnar góð skil. Senn
líður að útkomu bókar sem segir sögu UMFf í heila öld í máli og myndum.
Á afmælisárinu fóru fram tvö stór mót, annars vegar 25. Landsmót
UMFf í Kópavogi og hins vegar 10. Unglingalandsmótið á Flöfn í Hornafirðí.
Mikill metnaður var lagður í þessi mót og voru þau framkvæmdaaðilum
þeirra til sóma. Setningarathöfn Landsmótsins var sérlega glæsileg og
verður hún þeim sem viðstaddir voru lengi í minnum.
Unglingalandsmótin hafa fyrir löngu sannað gildi sitt og er ekki
ofsögum sagt að þau séu orðin eitt af flaggskipum hreyfingarinnar. Heilu
fjölskyldurnar koma ár eftir ár á mótin og eiga þar frábæra stund saman.
Það er orðið eftirsóknarvert að halda þessi mót sem draga til sín fjölda
fólks og uppbygging þeim samfara er mikill stökkpallur fyrir héraðssam-
bönd og sveitarfélög sem fá þau til sín. Unglingalandsmótin eru orðin
stærstu íþróttamót sem haldin eru hérá landi og umgjörð þeirra er glæsi-
leg í alla staði.
Einn liður í atburðum afmælisársins er aðkoma UMFÍ að ráðstefnunni
Play the Game sem haldin verður í lok október. Undirbúningur hefur stað-
ið yfir í tæpt ár en ráðstefnan verður ein sú stærsta af þessu tagi sem hald-
in hefur verið. Ráðstefnugestir verða á þriðja hundrað talsins og margir
þekktir fyrirlesarar koma til landsins vegna hennar.
Verkefnin, sem UMFl stendur fyrir, standa flest með miklum blóma og
má í því sambandi minnast á íþróttalýðháskólana, forvarnaverkefnin og
ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum. Ljóst er að búðirnar að
Laugum eru búnar að sanna gildi sitt en aðsóknin segir sína sögu í þeim
efnum. Um tvö þúsund 9. bekkingar sækja búðirnar í vetur og hafa aldrei
verið fleiri. Nánast allar vikur eru fullbókaðar fram á vorið.
Senn líður að fyrstu skóflustungu að byggingu nýrra höfuðstöðva á
frábærum stað ÍTryggvagötunni í Reykjavík. Langur undirbúningur er að
baki og er ég viss um að þessi þjónustumiðstöð á eftir að verða UMF(
mikil lyftistöng þegar til framtíðar er litið. Máttur UMFÍ í íslensku þjóðlífi er
mikill eins og saga hreyfingarinnar í heila öld ber glöggt vitni um. UMFÍ er
fjöldahreyfing með tæplega 90 þúsund félaga og hér eftir sem hingað til
mun hreyfingin vinna að góðum málum.
Nýr formaður mun stýra hreyfingunni að loknu 35. sambandsþinginu
sem haldið verður á Þingvöllum. Björn B. Jónsson, sem verið hefur formað-
ur í sex ár, ákvað að gefa ekki kost á sér til endurkjörs. Birni eru þökkuð vel
unnin störf fyrir ungmennafélagshreyfinguna en um leið er nýjum for-
manni óskað velfarnaðar í starfi.
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson
Ábyrgðarmaður:
Björn B. Jónsson, formaður UMF(
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Ómar Bragi Stefánsson, Krissy o.fl.
Umbrot/hönnun: Örn Guðnason
Prentun: Prentmet
Prófarkalestur: Helgi Magnússon
Auglýsingar: Miðlun ehf. og
Gunnar Bender
Ritnefnd: Anna R. Möller, Einar
Haraldsson, Birgir Gunnlaugsson
og Ester Jcnsdóttir
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFl,
Laugavegi 170-172,105 Reykjavík,
sími: 568-2929,
netfang: umfi@umfi.is
heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFl:
Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki
Torfi Jóhannsson, svæðisfulltrúi,
með aðsetur á (safirði
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi
og verkefnisstjóri forvarna
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa og kynningarfulltrúi
Jón M. (varson, söguritari
Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri
og verkefnisstjóri vegna ritunar á
sögu UMF(
Stjórn UMFÍ:
Björn B.Jónsson, formaður
Helga Guðjónsdóttir, varaformaður
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri
Ásdís Helga Bjarnadóttir, ritari
Anna R. Möller
Haraldur Þór Jóhannsson
Hringur Hreinsson
Jóhann Tryggvason
Einar Jón Geirsson
Einar Haraldsson
Eyrún H. Hlynsdóttir
Forsíðumynd:
Lið UMSK sem sigraði í stiga-
keppninni á 25. Landsmóti UMFÍ
í Kópavogi i sumar.
Ljósmynd Krissy.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags Islands ~J