Skinfaxi - 01.08.2007, Síða 17
í Helsjön í Svíþjóð
kjallaraholu í þessa verslun sem
er á við fjóra fótboltavelli eða svo.
Eftir það var verslað í tvo tíma
- sumir komu með marga úttroðna
innkaupapoka á meðan aðrir
keyptu minna. Heimkoman var um
kl. 18:00 og þá var matur.
Eftir kvöldmat fórum við (slending-
arnir að skipuleggja kvöldvökuna.
Kvöldvakan byrjaði kl 19:00 á að
Mette Ravn, starfsmaður NSU,
fræddi okkur um Norrænu ung-
mennasamtökin sem UMFÍ er aðili
að. Síðan sýndi Ásdís Helga myndir
frá ungmennavikunni í fyrra, sem
var haldin á íslandi, og fékk nokkra
úr salnum sem höfðu verið þar til
að útskýra myndirnar og segja frá.
Við höfðum öll útbúið Power Point-
kynningu um fsland og veldi þess
sem Auður fór í gegnum. Ásdís
Helga kynnti svo aðeins starfsemi
UMFÍ. Eftir það stýrðu Jónmundur
og Snorri leik sem allir tóku þátt í.
Hann gekk út á það að allir drógu
miða með íslensku orði á og áttu
að bera það fram. Setið var í hring
og stóð einn og einn upp til að lesa
af sínum miða. Það kom okkur
skemmtilega á óvart hvað sumir
náðu íslenska framburðinum vel.
Þá var Auður með leik sem gekk út
á það að flytja spil með munnin-
um milli manna sem var nokkuð
fyndið. Eftir frábæra frammistöðu
okkar tók við hópleikur sem
Kamilla og Frida, tveir af stjórnen-
dum vikunnar, stýrðu. Þær voru
búnar að fela diska sem voru tölu-
settir frá 1 til 56 og stóðu orð aftan
á diskunum. Hóparnir kepptu sín
í milli og gekk þetta út á það hver
yrði fyrstur upp í 56. Liðið kastaði
teningi og ef 5 kom upp reyndu
krakkarnir að finna disk með þeirri
tölu og muna orðið sem stóð á
bakhliðinni. Segja þurfti Kamillu
og Fridu orðið og ef það reyndist
rétt fékk hópurinn verkefni til að
leysa áðuren hann mátti kasta
teningnum aftur. Ef t.d. 5 kom upp
aftur átti maður að reyna finna disk
númer 10 (5+5=10). Þegar þetta
var búið var kvöldhressing og
sungið fram eftir nóttu!
Laugardagur
Morgunmatur var kl. 8:00 að vanda.
Kl. 10:00 var farið í ratleik um nær-
liggjandi svæði. Hluti af ratleiknum
var að tína bláber í skóginum og
blóm í vönd. Síðan var haldið niður
að vatni, farið í fleiri leiki og tekinn
sundsprettur i vatninu. Hádegis-
maturinn var svo hálf eitt. Um kl.
14:00 fengum við námskeið í
sænskum þjóðdönsum og hring-
dönsum sem var mjög skemmti-
legt. Síðan voru Grænlendingarnir
kvaddir með faðmlögum því að
lestin þeirra til Kaupmannahafnar
var að fara. Kl 17:00 var kvöldmat-
ur, þjóðlegir síldarréttir, að mið-
sumarhætti Svía. Kl. 18:00 voru
allir komnir í sitt fínasta og tilbúnir
til að skreyta miðsumarstöngina
(krossinn) með blómvöndunum
sem tíndir voru fýrr um daginn.
Tveir gítarleikarar mættu á svæðið
og harmonikkuleikari. Dansað var
og sungið í kringum stöngina í
meira en klukkutíma. Eftir það var
farið í ýmsa leiki. Svo var haldið
heim í hús og hóparnir verðlaunað-
ir, því að alla vikuna var stiga-
keppni milli hópanna sjö sem voru
myndaðir í upphafi. Að lokum var
myndaður hringur og hver þátttak-
andi faðmaði hina í kveðjuskyni
enda síðasta kvöldið okkar, og
sumir þurftu að fara eldsnemma
daginn eftir. Kvöldhressing var
borin fram og svo spjallað og
sungið fram eftir nóttu.
Sunnudagur
Morgunmatur var kl. 08:00. Síðan
var lagt af stað út á Landvetter-
flugvöll kl 10:00. (farteskinu var
geisladiskur með myndum frá viku-
dvölinni sem undirbúningsaðilarnir
gáfu okkur í kveðjuskyni. Við tók-
um svo flug heim kl 12:45 og lent-
um um kl. 14:00 þar sem fjölskyld-
urnar biðu okkar.
Lokaorð
Ungmennavikan var mjög vel
heppnuð í ár eins og flest árin á
undan. Mjög gaman var að kynnast
öllu þessu fólki frá Danmörku,
Finnlandi, Grænlandi, Suður-Slésvík
og Svíþjóð.
Alltaf var gert eitthvað skemmti-
legt á Ungmennavikum, farið á
ýmis námskeið, í alls konar ieiki og
fleira, mjög fjölbreytt dagskrá. Eins
og yfirlitið sýnir vorum við„Ung-
dom i Rörelse" nær alla vikuna.
Ungmennavikan verður haldin í
Danmörku næsta sumar og hvetj-
um við alla þá sem iiafa áhuga á
að kynna sér málið að gera það.
Ungmennavikan og fleiri slík tæki-
færi, eins og Útilífsvikan, Leiðtoga-
skólinn, leiðtogaþjálfunin, lýðhá-
skólarnir, leiklistarhelgin o.fl. eru
kynntá heimasíðunni www.umfi.
is og www.nsu.is. Vonandi verðum
við enn fleiri á næsta ári sem förum
í gegnum og á vegum UMFÍ! Ef
þið hafið áhuga, látið þá UMFl vita
- umfi@umfi.is
Með kveðju og þakklæti,
Jónmundur Magnús Guðmunds-
son, Auður Kjartansdóttir, Guð-
mundur Snorri Sigfússon og
Ásdi's Helga Bjarnadóttir, fararstjóri.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 17