Skinfaxi - 01.08.2007, Side 24
10. Uh^lMi^aLxMjÍAmJI- UM ft
1Q.UNGLINGA
LANDSMÓT
umfI
HSH valið
fyrirmyndarfélagið á
Unglingalandsmótinu
HSH var valið fyrirmyndarfélagið á Unglinga-
landsmótinu sem fram fórá Höfn í Hornafirði
um verslunarmannahelgina. Þetta er annað árið
í röð sem héraðssambandið nýtur þessa heiðurs
en það varð einnig fyrir valinu á mótinu á Laug-
um í fyrra.Tekið var fram við mótsslitin að það
sem gerði útslagið með að HSH fengi bikarinn
aftur var að allir keppendur HSH héldust í hend-
ur í skrúðgöngunni. Keppendurfrá héraðssam-
böndum og félögum voru nákvæmlega 939.
Flestir keppendur voru frá heimamönnum í USÚ,
alls 127 talsins. UMSK var með 124 keppendur
og frá ÍBR komu 71 talsins.
USÚ fékk
höfðinglega gjöf
Á Unglingalandsmótinu fékk Ungmennasam-
bandið Úlfljótur hálfa milljón króna að gjöf frá
systkinunum frá Hala í Suðursveit ásamt móður
þeirra, Ingibjörgu Zophoniasdóttur. Gjöfin er til
minningar um föður þeirra.Torfa Steinþórsson á
Hala, en hann var mikill áhugamaður um frjálsar
iþróttir og var öflugur ungmennafélagi.
Félögum Flott án
Fíknar boðið í
siglingu á Unglinga-
landsmótinu
Á Unglingalandsmótinu á Höfn í Hornafirði voru
félagar í Flott án Fíknar mættir á staðinn. Þar
vorum við með tjald og buðum upp á heitt kakó
(lagað í tjaldinu af kakómeisturunum, okkur sem
sagt og fleiri klúbbfélögum) og fallegar, gular
Flott án Fíknar-nælur. Kakóið sló alveg í gegn
og margir þreyttir ferðalangar og keppnisfólk
þáðu það, enda nauðsynleg næring fyrir svona
duglegt fólk!
Flott án Fíknar er klúbbur fyrir„úlla" (ungl-
inga) sem ætla ekki að drekka né neyta tóbaks
á meðan þeir eru undir lögaldri! Komu félagar
úr öllum landshlutum og var gaman að hitta þá
svona yfir helgina.
... og af því að Flott án Fíknistar eru alltaf til í
allt, var farið í sjóferð sem var haldin fyrir þá sem
eru skráðir í klúbb. Þeir sem mættu fengu svo
ofboðslega þægilega, flotta og hlýja sjóhatta.
(sjóferðinni var stoppað í Hellisey. Þar fundum
við vita en engan helli! í vitanum var níðþröngt
en mjög gott útsýni úr honum. Fórum við svo
aftur í bátinn og sigldum í höfn í Höfn í Horna-
firði.
Ástrós Steingrímsdóttir og Harpa Hreinsdóttir,
Lindaskóla. Meðlimir Flott án Fíknar.
HSH var valið fyrirmyndarfélagið á 10. Unglingalandsmóti UMFÍá Hornafirði ísumar.
Knattspyrnustúlkur úr UMSK hita upp fyrir leik á Unglingalandsmótinu á Hornafirði ísumar.
Frá langstökkskeppni á Unglingalandsmótinu á Hornafirði.
24 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands