Skinfaxi - 01.08.2007, Síða 26
fréitir úr Iwej/fuujUAwu.
Icelandair einn af aðalstyrktaraðilum UMFÍ
Ungmennafélag (slands og lcelandair skrifuðu 10. október sl. undir sam-
starfssamning til þriggja ára á Hilton Hotel Nordica í Reykjavík. Björn B.
Jónsson, formaður UMFl, og Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs lcelandair, lýstu mikilli ánægju með samn-
inginn sem þeir telja að hafi mikið gildi fyrir báða aðila.
Af þessu tilefni sagði Gunnar Már Sigurfinnsson:„lcelandair hefur um
árabil verið einn af stærstu styrktaraðilum íslensku íþróttahreyfingarinn-
ar, hreyfingar sem tugir þúsunda íslendinga um land allt njóta góðs af.
Við erum afskaplega stolt af þessu íslenska afreksfólki og þeim frábæra
árangri sem það hefur náð. Jafnframt erum við afskaplega ánægð að fá að
flytja á hverju ári stóran hóp (slendinga á öllum aldri til keppni erlendis á
vegum Ungmennafélags islands. Með þessu nýja samkomuiagi viljum við
festa það samstarf í sessi og greiða götu UMFÍ."
Björn B. Jónsson sagði meðal annars:„Með þessum samstarfssamn-
ingi er nú með formlegum hætti staðfest samstarf lcelandair og UMFÍ.
Samstarf þessara aðila á sér raunar langa sögu en nú fyrst er gert formlegt
samkomulag varðandi samstarfið og horft til þess að auka það enn frekar í
framtíðinni. Félagar í UMFÍ hafa notið þjónustu lcelandair í gegnum tíðina
á ferðalögum tengdum íþróttum og ráðstefnum á erlendum vettvangi.
Samningurinn nú hefur í heild sinni mikið gildi fyrir alla ungmennafélags-
hreyfinguna. Samkvæmt samningnum mun UMF( kynna lcelandair sem
víðast sem einn af aðalstyrktaraðilum UMF(."
Íþróttaakademían og Ungmennafélag íslands:
Námskeið í viðburðastjórnun
verður haldið í Reykjanesbæ
Íþróttaakademían og Ungmennafélag íslands gangastfyrir námskeiði í
viðburðastjórnun. Námskeiðið stendur yfir dagana 1 .-3. nóvember í
húsakynnum (þróttaakademíunnar í Reykjanesbæ. Fólk í ungmenna-
félagshreyfingunni er hvatt til að taka þátt í námskeiðinu sem er mjög
metnaðarfullt í alla staði. UMFÍ styrkir hvern einstakling um 35.000
krónur og er vonast eftir að félögin sjái sér hag í að senda fólk sitt á
námskeiðið.
Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Heimir Hansson, MA Sport
Management og forstöðumaður upplýsingamiðstöðvar ferðamála á
(safirði, sem hefur stýrt ýmsum íþróttaviðburðum, og Sif Gunnarsdóttir,
MA í menningarfræðum og verkefnisstjóri viðburða hjá Reykjavíkur-
borg. Hún hefur m.a. stýrt Menningarnótt og Vetrarhátíð frá 2003. Aðrir
fyrirlesarar eru Rúnar Óli Karlsson, stjórnandi ferða-, íþrótta- og menn-
ingarviðburða á (safirði, og Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMF(
og umsjónarmaður Unglingalandsmóta UMFl.
Gunnhildur Vilbergsdóttir, verkefnastjóri hjá (þróttaakademíunni í
Reykjanesbæ, segist hafa fengið mjög góð viðbrögð vegna námskeiðs-
ins í viðburðastjórnun.„Það er greinileg þörf fyrir námskeið af þessu
tagi. Umfang bæjar-, íþrótta- og menningarviðburða í dag er slíkt að
fólki finnst bráðnauðsynlegt að fá upplýsingar og fræðslu um þessa
hluti. Við höfum einnig verið í samvinnu með UMF( í leiðtoganám-
skeiðum sem við höldum árlega. Á þeim er farið yfir hvernig á að starfa
í stjórnum og leiðbeint um ræðumennsku og framkomuþjálfun. Við
Þátttakendur á Leiðtoganámskeiði sem haldið var i Reykjanesbæ í
febrúar sl.
höfum átt gott samstarf við UMF( í þessum málum og verður vonandi
framhald á því í framtíðinni," sagði Gunnhildur Vilbergsdóttir, verk-
efnastjóri hjá (þróttaakademíunni.
Skráning á námskeiðið og frekari upplýsingar eru veittar (síma
420 5500 og á akademia@akademia.is. Verð er 65.000 kr. Innifalið er
kennsla, aðstaða, námskeiðsgögn, hádegisverður og kaffi og meðlæti
alla dagana.
Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, ogGunnar Már Sigurfinnsson, fram-
kvæmdastjóri sölu-og markaðssviðs lcelandair takast í hendur eftir undir-
ritun samningsins.
.J
26 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands