Skinfaxi - 01.08.2007, Side 30
PávirJóntíOK, -járwuiður UMFÍ 1993-2001:
ÞórirJónsson segir tækifærin óteljandi fyrir ungmennafélagshreyfinguna I framtíðinni.
„Ómetanlegt að hafa
fengið tækifærí til
að starfa fyrír UMFÍ"
„Það verður kannski fátt um svör þegar stórt
er spurt," segir Þórir Jónsson, fyrrum formaður
UMFÍ, þegar hann er inntur eftir því hvað standi
upp úr í 100 ára sögu UMFÍ. „Fljótt á litið í heiid-
ina séð eru það Landsmótin og ekki síst í seinni
tíð Unglingalandsmótin sem þer hæst. Að koma
Unglingalandsmótunum inn á verslunarmanna-
helgina var stór ákvörðun á sínum tíma en hún
hefur heldur betur slegið í gegn. Auðvitað er
hægt að nefna fleiri dæmi enda margt gott
verið gert í gegnum tíðina. Ég get nefnt
umhverfismálin í tíð Pálma heitins Gíslasonar
en hann var mjög duglegur á þeim vettvangi.
Hreyfingin hefur unnið í mörgum góðum mál-
um og kom mörgu í gegn landi og þjóð til
heilla," segir Þórir Jónsson í spjalli við Skinfaxa
en hann var formaður UMFÍ á tímabilinu 1993
til 2001.
Þórir segir hreyfinguna stundum hafa
gengið gegnum erfiða tíma og að stundum
hafi verið hart sótt að henni.„Ég held að ef hún
hefði verið sameinuð þá hefði hún ekki orðið
það sem hún er í dag. Það fór heljarmikil orka
að verja hreyfinguna sameiningu. Það getur vel
verið að einhverjum hafi þótt vitlaust að verja
þetta en ég fer ekkert ofan af því að það hafi
verið rétt að verja hreyfinguna fyrir sameining-
aráformunum," segir Þórir.
- Hvenær hófust kynni þin af ungmenna-
félagshreyfingunni fyrir alvöru?
„Þau hófust í barnæsku. Það biðu allireftir
því að fá aðgang að ungmennafélaginu en
hann fékkst við tíu ára aldurinn. Ég gekk í Ung-
mennafélag Reykdæla í Reykholtsdal en for-
eldrar mínir voru á kafi í starfi hjá félaginu,
móðir mín í leikstarfinu og pabbi í íþróttamál-
unum fram eftir öllu."
- Hvernig atvikaðist að þú varðst formaður
UMFl?
„Ég lenti upphaflega inn í stjórn UMFf sem
gjaldkeri 1985 og gegndi því starfi í sex ár. Ég
var þá kominn í það margt, m.a. sveitarstjórnar-
mál, að mér fannst kominn tími til að hætta í
stjórn sem ég og gerði á þinginu á Húnavöllum
haustið 1991. Þegar Pálmi heitinn ætlaði að láta
af störfum sem formaður var komið að máli við
mig og ég spurður hvernig mér litist á að ég
gæfi kost á mér í formennsku. Ég ræddi þetta
m.a. við Pálma og hann hvatti mig nú frekar en
hitt. Það var síðan á þinginu á Laugarvatni 1993
sem ég var kosinn formaður UMFÍ," segir Þórir.
Þórir segir tímann í formennskunni hafa
verið afar skemmtilegan og mikinn skóla.„Það
er mér afar Ijúft að segja að ég kynntist mörgu
fólki í gegnum hreyfinguna. Alltaf standa upp úr
hjá manni kynni við fjölda fólks sem er jafnvel
enn í dag að vinna í hreyfingunni með einum
eða öðrum hætti. Mikil ferðalög allt í kringum
landið fylgdu formennskunni en mannleg sam-
skipti eru mér afar minnistæð frá þessum tíma.
Þegar maður lítur yfir farinn veg er í raun mjög
dýrmætt og ómetanlegt að hafa fengið tækifæri
að starfa í samtökum á borð við UMF(."
- Hvernig sérð þú ungmennaféiagshreyfing-
una fyrirþéri nánustu framtíð?
„Ég get ekki séð annað en að þessi hreyfing
sé á mikilli siglingu. Ef menn standa vörð um
hana og gæta hennar þá á UMFÍ eftir að verða
hér eftir sem hingað til mjög öflug samtök í
íslensku þjóðfélagi.Tækifærin eru óteljandi og
sjálfsagt á hreyfingin eftir að taka breytingum.
Það hefur í gegnum tíðina verið styrkur UMFl að
laga sig að breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu
og kannski að hafa líka áhrif á breytingarnar.
Ég get ekki séð annað en að UMFÍ eigi bjarta
framtíð fyrir sér," segir Þórir Jónsson að lokum.
30 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands