Skinfaxi - 01.08.2007, Síða 33
kom meðal annars við á Álfaskeiði,
upphafsstað göngunnar á Lang-
hoitsfjall. Af því tilefni var flutt hug-
vekja, félagar úr Karlakór Hreppa-
manna tóku lagið og boðið var upp
á mjólkfrá Birtingaholti.
Lagt var af stað í gönguna á fjall-
ið frá tjaldsvæðinu á Álfaskeiði,
sem er dalverpi í sunnanverðu fjall-
inu þar sem fjölmennar útisam-
komur voru haldnar á árum áður
á vegum Ungmennafélags Hruna-
manna. Póstkassinn er staðsettur á
Kistu, semer hæsta bunga fjallsins,
en þar er endurvarpsstöð Sjón-
varpsins. Göngustjóri var Jóhannes
Sigmundsson, ferðaþjónustubóndi
í Syðra-Langholti og fyrrverandi
formaður HSK. Hann þekkir sögu
svæðisins mjög vel og sagði m.a.
frá konungskomunni.
Jóhannes setti saman nokkrar
visur sem eru komnar í gestabók-
ina. Vísurnar hljóða svo:
Á Langholtsfjall er létt að ganga,
lofa margirþað.
Er blómin smá I brekkum anga
býég mig afstað.
Er af Kistu ægifögur
útsýn víttumsveit.
Landið geymir gamlar sögur
og gömul fyrirheit.
Þessi fagri fjallahringur
fangarhuga minn.
Hérer, ungi Islendingur,
arfurminn og þinn.
Langholtsfjall í Hrunamannahreppi
er 226 m hátt og af fjallinu er frá-
bært útsýni yfir Suðurland. Gangan
á fjallið er auðveld og tekur um
hálftíma hvora leið.
Til að komast að Álfaskeiði frá
Selfossi er ekinn þjóðvegur nr. 1
austur að Skeiðavegamótum. Þar
er ekið inn á Skeiða- og Hruna-
mannaveg nr. 30 og eftir um 20 km
akstur er komið að Stóru-Laxá. Þar
er beygttil vinstri inn á Auðsholts-
veg nr. 340 og þaðan er um 5 km
aksturaðfjallinu.
Sem fyrr segir eru 100 ár liðin frá
heimsókn Friðriks 8. Danakonungs
og fylgdarliðs hans til (slands. Kon-
ungsfylgdin fór Kóngsveginn, sem
svo var nefndur, um Þingvelli, Gull-
foss og Geysi og þaðan yfir Hvítá
við Brúarhlöð og niður Hreppa hjá
Álfaskeiði. Við Álfaskeið var áð og
m.a. boðið upp á mjólk frá Birtinga-
holti.
Þórólfsfell
Um 50 manns tóku þátt í fjöl-
skyldugöngu HSK á Þórólfsfell á
Fljótshlíðarafrétti. Kristinn Jónsson
á Staðarbakka var göngustjóri og
sagði hann frá örnefnum og ýmsu
fleiru sem fyrir augu bar. Ljóst var
að hann þekkir svæðið mjög vel,
enda fjallkóngur í fjallferðum á
Grænafjall, en það nefnist afréttur
Fljótshlíðinga. Eins og í öðrum
fjölskyldugöngum HSK var farið
með póstkassa og gestabók upp
á tind fellsins og er póstkassinn
staðsettur við mastur sem er uppi á
miðju fellinu.
Eins og undanfarin ár tók Guðni
Guðmundsson á Þverlæk í Holtum
þátt í göngunni og hann var að
sjálfsögðu með vísur í farteskinu
og ritaði þær í gestabókina. Hér
eru vísur Guðna um Þórólfsfells-
gönguna:
Mér er fjarri að fara hratt
eða fjöll að klífa um nætur.
Þórólfsfellið þæfingsbratt
þreytir mína gömlu fætur.
Ekki þýðir að fást um slíkt,
ætið þörfað fara á stjá.
Útsýnið hér er engu líkt
yfir fjöll og jökla þrjá.
Golan leikur létt um kinn,
lýjandi fjalla sprettir.
Þrautin leyst í þetta sinn
það er mikill léttir.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 33