Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.2007, Page 35

Skinfaxi - 01.08.2007, Page 35
fréttW tÁr IweyjwjjUMMÍ Undirbúningur hafinn fyrir Unglingalandsmót í Grundarfirði 2009: Myndin er frá fyrsta fundi undirbúningsnefndar fyrir Unglingalandsmótið sem haldið verður í Grundarfirði um verslunarmannahelgina 2009. Mikil lyftistöng fyrir Snæfellsnesið allt Fulltrúar UMFf og bæjaryfirvalda í Grundarfirði hittust á sínum fyrsta fundi 25. september. Þar var rætt um fyrirhugað Unglingalandsmót árið 2009 sem verður haldið í Grundarfirði. Á Ungl- ingalandsmótinu á Flöfn í Flornafirði í sumar var tilkynnt að stjórn UMFÍ hefði ákveðið að fela FfSFI að halda Unglingalandsmótið árið 2009 í Grundarfirði. Á þessum fyrsta fundi kynntu full- trúar UMFl þær kröfur sem gerðar eru til móts- haldara varðandi aðstöðu og framkvæmd móts- ins. Þá var jafnframt farið yfir hvaða hlutverk FISFI hefði við framkvæmd mótsins sem og Ung- mennafélag Grundarfjarðar, en fulltrúar þessara aðila sátu einnig þennan fyrsta fund. „Eins og kom fram á fyrsta fundinum er í far- vatninu hjá bæjarstjórninni að byggja íþrótta- hús og sundlaug. Nú þegar er hafinn undirbún- ingur að því en búið er að halda fund með verk- tökum á svæðinu. Stefnt er að því að þessum framkvæmdum verði lokið fyrir Unglingalands- mótið I Grundarfirði 2009. Ennfremur er ætlunin að setja gerviefni á frjálsíþróttasvæðið og Ijúka við uppbyggingu á íþróttavellinum. Markmið- ið er að ráðast í þessa framkvæmd strax næsta sumar," sagði Garðar Svansson, formaður Flér- aðssambands Snæfellsnes- og Flnappadalssýslu, F-ISH; í samtali við Skinfaxa. Garðar sagði jafn- framt í bígerð að byggja 2 til 4 sparkvelli við grunnskólann sem verða nýttir á Unglíngalands- mótinu. I vetur er ráðgert að tekin verði í notkun ný reiðskemma á hestamannasvæðinu. - Það hlýtur að vera mikil lyftistöng fyrir bæjarfélagið að fá Unglingalandsmótið til sin? „Það er mikil lyftistöng fyrir Snæfellsnesið allt. Mannvirkin koma til með að nýtast framhalds- skólanum og öðrum íþróttafélögum á Nesinu. Það eru mjög spennandi tímarfram undan en íþróttalíf stendur hér í miklum blóma. Víking- arnir héldu sæti sínu í 1. deild í knattspyrnu og Snæfellingar hömpuðu deildarbikarnum í körfu- knattleiká dögunum.Við erum mjög brattir hér á Snæfellsnesinu og lítum björtum augum til framtíðar," sagði Garðar Svansson. SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 35

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.