Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1941, Qupperneq 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1941, Qupperneq 10
Þeir, sem fórust með ,,Jarlinum“ Jóhannes Jónsson. Guðmundur M. Thordarson. Um miðjan septembermánuð var farið að óttast um 1/v Jarlinn. Hann fór frá ísafirði með fiskfarm 21. ágúst, áleiðis til Englands, kom við í Vestmannaeyjum, fór þaðan 23. á- gúst. Seldi aflann 1. sept. í Fleetwood og fór þaðan 3. sept. síðan hefir ekkert til hans spurst. Jarlinn var járnskip, 190 brúttósmálestir að stærð, byggður í Englandi 1890 sem togari með 250 hestafla gufuvél, síðar var hann not- aður til línuveiða. 1925 var hann keyptur hing- að til lands, og gerður út á flestar vertíðir og síld á sumrin. Eigendur skipsins voru Óskar Halldórsson og börn hans. Einn eigandinn, sonur Óskars, Theodór, var starfandi sjómað- ur á skipinu. Fjölskyldunum, tengdar sjómannastéttinni, hefir enn fjölgað, sem um sárt hafa að binda af völdum styrjaldarinnar. Hinum látnu hefir verið sýndur virðingar- vottur með minningarathöfn. Engin orð fá umsteypt örlögunum eða end- urheimt liðna úr helju. Hætturnar á leiðum sjómannsins eru nú hundraðfaldar. Enginn veit hvað hefir orðið þeim að fjörtjóni. En hver slíkur atburður á að herða sjómannastétt- ina til átaka um ýtrustu aðgerðir til aukins ör- yggis þeirra, sem áfram halda baráttunni fyr- ir tilveru þjóðar sinnar. Sjómannastéttin í heild vottar aðstandend- um hinna látnu djúpa samúð sína, og hinum föllnu félögum fyllstu virðingu. Skipshöfn ,,Jarlsins“ var þessi: Jóhannes Jónsson, skipstjól’i, Öldugötu 4, Reykjavík. — Fæddur 22. apríl 1877. — Ókvæntur. Guðmundur Matthíasson Thordarson, stýri- maður. Búsettur í Kaupmannahöfn. Var stadd- ur í Englandi þegar Danmörk var hertekin. Fæddur í Rvík 26. janúar 1904. Kvæntur. Átti 1 barn. Eyjólfur Björnsson, 1. vélstjóri, óðalsbóndi í Laxnesi, Mosfellssveit. Fæddur 23. febr. 1883. Kvæntur. Átti 3 börn. Jóhann Sigurjónsson, 2. vélstjóri, Siglufirði. Fæddur 12. febr. 1897. Kvæntur. Átti 2 börn og 1 fósturbarn. Sigurður Gíslason, kyndari, Óðinsgötu 16, Reykjavík. Fæddur 21. janúar 1915. Ekkju- maður. Átti 2 börn. Dúi Guðmundsson, kyndari, Siglufirði. — Fæddur 4. febrúar 1901. Ókvæntur. Átti 1 barn og aldraða foreldra. Halldór Björnsson, matsveinn, Ingólfsstræti 21, Reykjavík. Fæddur 20. febrúar 1920. Ó- kvæntur. Ragnar Guðmundsson, háseti, Gufá, Mýra- sýslu. Fæddur 13. ágúst 1911. Ókvæntur. Konráð Ásgeirsson, háseti, Bolungavík. Fæddur 22. júlí 1912. Ókvæntur. Sveinbjörn Jóelsson, háseti, Skólavörðustíg 15, Reykjavík. Fæddur 23. nóvember 1923. Ókvæntur. Theódór Óskarsson, háseti, Ingólfsstræti 21, Reykjavík. — Fæddur 22. febrúar 1918. — Ókvæntur. VÍKINGUR 10

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.