Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1949, Blaðsíða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1949, Blaðsíða 14
Tvær vélasamstæður í Ljósafossstöðinni, 6250 og 8000 hestöfl. Kjartan T. Örvar Atvinnumöguleikai* vélstjjóra Það kann að þykja lítils um vert, að 40 ár eru liðin frá stofnun Vélstjórafélags íslands, en þó ekki sé lengra um liðið, hafa orðið all- verulegar breytingar á kjörum og atvinnuskil- yrðum vélstjóra. Starf þeirra er orðið víðtæk- ara og grípur á margan hátt inn í atvinnulíf þjóðarinnar. Þeir, sem sóttu nám í Vélskólann 1911, sáu víst ekki annað framundan, en að sigla á togurum, en sú útgerð var þá í upp- siglingu. Um atvinnu í landi var naumast að ræða fyrir vélstjóra; verkstæði voru lítil og fá og engar stórvirkar vélar. Fyrst eftir að raf- magnið fer að ryðja sér til rúms breytist þetta nokkuð til batnaðar. Árið 1894 er fyrsta rafmagnsvirkjunin á dag- skrá, en kemst ekki lengra en á pappírinn; aftur á móti er fyrsta rafstöðin, að vísu lítil, byggð 1906 í Hafnarfirði og var eigandi hennar hinn kunni athafnamaður Jóh. Reykdal. Svo langt var Reykdal á undan sinni samtíð, að fyrst 1911 er næsta stöðin sett upp og er það á Eski- firði. Úr því kemur nokkur skriður á málið. Siglufjörður er næstur árið 1912 og Vík í Mýr- dal og Seyðisfjörður 1913, en þá verður hlé, sem ef til vill hefur átt rót sína að rekja til heimsófriðarins, sem brauzt út 1914. Að styrj- öldinni lokinni er hafist handa að nýju. Árið 1918 er sett upp stöð á Bíldudal og nú eru einnig forráðamenn Reykjavíkur búnir að fá áhuga fyrir málinu. Árið 1921 er Elliðaárstöðin vígð og þótti allmikið mannvirki; þó var stöðin aðeins 1500 h.ö. — Þegar bæjarstjórn Reykja- víkur auglýsti eftir 3 gæzlumönnum við þessa stöð, var aðeins einn umsækjandanna vélstjóri, og var hann ráðinn 1. vélstjóri. Með þessari ráðningu er að vissu leyti brotið í blað, hvað 62 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.